Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2012 | 08:30

Bandaríska háskólagolfið: Berglind í 15. sæti á Lady Pirate – Sunna og golflið Elon í 4. sæti í liðakeppninni eftir fyrri dag

Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Sunna Víðisdóttir, GR og Elon taka þátt í tveggja daga móti, Lady Pirate Intercollegiate í Greenville Country Club, í Norður-Karólínu. Mótið stendur dagana 8.-9. október. Þátttakendur eru 104 frá 20 háskólum. Berglind spilaði fyrri hringinn á 2 yfir pari, 74 höggum og er í 15. sæti í einstaklingskeppninni.  Lið Berglindar UNCG deilir hins vegar 12. sæti eftir fyrri dag mótsins. Sunna lék á 5 yfir pari, 77 höggum og deilir 33. sæti í einstaklingskeppninni. Sunna er á 3. besta skorinu í liði sínu og telur frammistaða hennar því í árangri golfliðs Elon, en það er í 4. sæti í keppninni. Golf 1 óskar Berglindi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2012 | 08:00

Ken Venturi valinn í Frægðarhöll kylfinga

Fyrrum sigurvegari á Opna bandaríska og 14 faldur sigurvegari á PGA Tour, Ken Venturi hefir verið valinn í Frægðarhöll kylfinga. Ken Venturi, 81 árs, sem hlýtur inngöngu í Frægðarhöllina vegna afreka sinna um ævina verður vígður í höllina 6. maí n.k. í the World Golf Village in St. Augustine, í Flórída. „Þetta er bara heiður,“ savði Venturi á blaðamannafundi á Pebble Beach Golf Links í heimaríki sínu Norður-Kaliforníu. „Stærsta viðurkenningin í lífinu er að vera minnst og ég þakka Frægðarhöllinni fyrir að muna eftir mér.“ „Mér var kennt af Byron Nelson og ég spurði hann eitt sinn: „Hvernig get ég endurgreitt þér fyrir allt sem þú hefir gert fyrir mig?“ Hann sagði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 15:15

Steve Williams að hugsa um að hætta

Steve Williams, kylfusveinn Adam Scott gaf í skyn við ný-sjálensku útvarpsstöðina Radio Live í morgun að hann hyggist hætta störfum í lok næsta árs. Williams var einn frægasti kylfusveinn Tiger Woods og saman unnu þeir 13 risamótstitla saman. Jafnfrægt er þegar Tiger rak Williams og þeim síðarnefnda sárnaði svo að hann var m.a. vændur um að hafa haft í frammi kynþáttafordóma við Tiger. Síðan þá er gras gróið yfir málið og Williams starfar nú sem áður segir sem kylfusveinn Ástralans, Adam Scott. Fyrir starfslok sagðist Williams ætla að reyna að fá Scott til þess að taka þátt í New Zealand Open. Til þess að lesa upprunalegu fréttina SMELLIÐ HÉR:  Byggt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 12:45

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra, Berglind, Íris Katla og Sunna keppa í dag

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og USF hefur leik í dag á Edean Ihlanfeldt Invitational, í Sahalee, Sammamish, Washington. Mótið stendur dagana 8.-10. október. Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og  Sunna Víðisdóttir, GR og Elon,  spila í sama mótinu Lady Pirate Invitational. Mótið stendur dagana 8.-9. október og fer fram í Greenville, Norður-Karólínu, en gestgjafi er East Carolina. Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og the Royals, golflið The University og Queens, Charlotte leggja land undir fót og spila í Flórída næstu tvo daga.  The Royals taka þátt í Shark Shootout á West Palm Beach í Flórída. Golf 1 óskar þeim Eygló Myrru, Berglindi, Sunnu og Írisi Kötlu góðs gengis!


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 12:35

Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi hefur leik á Kings College Invitational í dag

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, Íslandsmeistari í holukeppni 2011, hefur leik á Kings College Invitational í dag. Mótið er tveggja daga mót frá 8.-9. október 2012.  Það fer fram í Bristol, Tennessee. Golf 1 óskar Arnóri Inga góðs gengis!


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 12:30

8-manna Turkish World Finals með Tiger og Rory fer fram í Tyrklandi þrátt fyrir óeirðir

Nú í vikunni fer í fyrsta sinn fram Turkish World Finals mótið þar sem m.a. taka þátt  Rory McIlroy og 14 faldur risamóts sigurvegari Tiger Woods.  Skipuleggjendur sögðu fyrr í dag að mótið myndi fara fram þrátt fyrir óeirðir á svæðinu. Tyrkneski herinn skaut m.a. yfir landamærin inn í Sýrland eftir að sprengju var varpað frá Sýrlandi á landamærabæinn Akcakale, allt til þess að undirstrika viðvaranir frá höfuðborginni Ankara um að öllum árásum á tyrkneskt landsvæði yrði svarað í sömu mynt. Þetta er 5. dagurinn í röð sem Tyrkir svara fyrir sig þegar sprengjum frá Norður-Sýrlandi, þar sem sveitir forsetans Bashar al-Assad hafa verið að berjast við uppreisnarmenn, sem eiga landsvæði alveg við tyrknesku landamærin. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórunn Einarsdóttir – Ægir Örn Ólason og Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 8. október 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír, en allir eiga þeir stórafmæli. Þetta eru þau Þórunn Einarsdóttir,  Ægir Örn Ólason og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.  Þórunn er fædd 8. október 1937 og á því 75 ára merkisafmæli í dag; Ægir Örn Ólason fæddist 8. október 1972 og er því 40 ára í dag og Guðmundur Ágúst er fæddur 8. október 1992 og er því 20 ára í dag. Komast má á facebooksíður afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með daginn hér að neðan: Þórunn Einarsdóttir (75 ára) Ægir Örn Ólason (40 ára) Guðmundur Ágúst Kristjánsson (20 ára) Aðrir frægir kylfingar eru:  Margaret Curtis, f. 8. október 1883- d. 24. desember 1965;  Thomas Dickson „Tommy“ Armour Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 10:00

The Clicking of Cuthbert 4. saga: Sundruð hjörtu

„I play in the winter. You get the course to yourself, for the world is full of slackers who only turn out when the weather suits them. I cannot understand how they get the nerve to call themselves golfers.“ (Lausleg þýðing: „Ég spila á veturna. Maður hefir völlinn fyrir sjálfan sig því heimurinn er fullur af slæpingjum sem koma bara þegar veðrið hentar þeim. Ég get ekki skilið hvernig þeir dirfast að kalla sig kylfinga.“ Þannig hefst 4. sagan í Clicking of Cuthbert þegar ungur maður í tweed-fötum kemur beinfrosinn inn í klúbbhúsið eftir golfhring í desember þegar snjór er yfir öllu,  pantar sér heitan drykk og sest niður hjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2012 | 06:50

PGA: Ryan Moore sigraði á JT Shriners Hospitals for Children Open – hápunktar og högg 4. dags

Það var Bandaríkjamaðurinn Ryan Moore sem sigraði á TPC Summerlin golfvellinum í Las Vegas í gærkvöldi. Ryan Morre sem lék á samtals 24 undir pari, 260 höggum (61 68 65 66).  „Nokkrir síðustu dagar voru erfiðir,“ sagði Moore, sem hér áður var í bandaríska háskólagolfinu og spilaði golf með University of Las Vegas og býr í Las Vegas og þekkir TPC Summerlin út og inn. „Við Brendon voru hnífjafnir og hann var að spila frábært golf.  Ég náði fugli einhver staðar á leiðinni þegar það skipti máli og náði að fara fram úr honum í lokinn.“ Í 2. sæti, 1 höggi á eftir varð Brendon de Jonge frá Zimbabwe á 23 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2012 | 18:00

Evróputúrinn: Fjórði sigur Grace í höfn í ár!

Branden Grace frá Suður-Afríku sigraði á Dunhill Links Championship í dag.  Spilað var á 3 golfvöllum í Skotlandi: St. Andrews, Carnoustie og Kingsbarns. Þetta er 4 sigur nýliðans Grace á Evrópumótaröðinni í ár en hann hefir áður sigrað á Joburg Open, 15. janúar 2012; Volvo Golf Champions 22. janúar og Volvo China Open 22. apríl 2012. Grace spilaði á samtals 22 undir pari, 266 höggum (60 67 69 70). Hann hlaut í verðlaunafé € 617,284 (sem eru u.þ.b. 97,5 milljónir íslenskra króna). Í 2. sæti varð Daninn Thorbjörn Olesen 2 höggum á eftir Grace á samtals 20 undir pari, 268 höggum (63 69 66 66). Sjá má nýlega umfjöllun Golf 1 um Lesa meira