Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 15:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna hefur leik á Palmetto Intercollegiate á morgun

Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon háskóla hefja keppni á Palmetto Intercollegiate mótinu í Suður-Karólínu á morgun. Mótið fer fram dagana 28. og 29. október.  Þátttakendur eru um 90 frá 17 háskólum. Golf 1 óskar Sunnu góðs gengis í mótinu! Til þess að fylgjast með Sunnu og gangi mála í mótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 15:15

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn í 24. sæti á Landfall Classic eftir 1. dag

Í gær hófst í Country Club of Landfall í Wilmington, Norður-Karólíu Landfall Classic mótið. Í mótinu taka þátt Berglind Björnsdóttir, GR og UNCG og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest.  Þátttakendur eru 90 frá 17 háskólum. Ólafía Þórunn spilaði á 2 yfir pari, 74 höggum og er í 24. sæti eftir 1. dag. Hún var á 2. besta skori í liði sínu sem er sem stendur í T-7, þ.e. deilir 7. sætið með NC State í liðakeppninni Berglind átti ekki sinn besta dag; lék á 10 yfir pari, 82 höggum og er T-84 þ.e. í einu af neðstu sætunum, en var eftir sem áður á 2. besta skori í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 15:00

PGA: Boo Van Pelt og Robert Garrigus leiða eftir 3. dag í Malasíu – Tiger í 10. sæti – hápunktar og högg 3. dags

Það eru Boo Van Pelt  og Robert Garrigus sem leiða  eftir 3. dag á CIMB Classic á samtals 16 undir pari, hvor; 197 höggum; Van Pelt (70 65 62) og Garrigus (64 64  69).  Boo Van Pelt var á 11 undir pari fyrir lokaholuna og sprakk á limminu fékk skramba; skorkortið 11 fuglar, 6 pör og 1 skrambi! Einu höggi á eftir þeim félögum er Bandaríkjamaðurinn Chris Kirk og er einn í 3. sæti. Í 4. sæti Brendon de Jonge og Jbe Kruger báðir frá Afríku; Jbe Suður en de Jonge frá Zimbabwe. Báðir voru þeir á samtals 14 undir pari, hvor. Brian Harman er einn í 6. sæti og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 14:44

LPGA: Inbee Park leiðir fyrir lokahringinn á Sunrise mótinu í Taíwan

Það er Inbee Park frá Suður-Kóreu sem leiðir eftir  3. dag Sunrise LPGA Taíwan Championship, sem fram fer í Yang Mei í Taíwan. Hún er búin að spila á samtals 18 undir pari, 198 höggum (65 69 64) og hefir 2 högga forystu á Suzann Pettersen frá Noregi. Suzann er búin að spila á 16 undir pari, 200 höggum (69 65 66) og er 2 höggum á eftir Park. Í 3. sæti er nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Yani Tseng, sem er enn öðrum 2 höggum á eftir; búin að spila á samtals 14 undir pari, 202 höggum (67 69 66). Catriona Matthew er í 4. sæti á samtals 12 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 11:30

Evróputúrinn: Hanson er enn með nauma forystu eftir 3. dag í Shanghai

Peter Hanson frá Svíþjóð heldur naumri forystu í Lake Malaren í Shanghai fyrir lokahring BMW Masters. Hanson er búinn að spila á 16 undir pari, 200 höggum (66 64 70).  Hann sagði m.a. eftir 3. hringinn: „Vindurinn var á móti sem gerði allt svolítið vandasamara og sumir af pinnunum voru faldir. Það er frábært að spila með Rory. Í hvert sinn sem maður fær tækifæri til að spila við nr. 1 á heimslistanum þá er það frábært. Vonandi næ ég að verða framar en hann en ég held að það verði erfitt á morgun og ég verð að spila svolítið betur en ég gerði í dag.“ Í 2. sæti á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 11:15

LET: Carlota Ciganda leiðir enn eftir 2. dag Suzhou Taihu Ladies Open í Kína

Það er spænska stúlkan og nýliðinn á LET Carlota Ciganda sem er enn í forystu á Suzhou Taihu Ladies Open, sem fram fer á golfvelli Suzhou Taihu International Golf Club í Suzhou, Kína. Carlota er búin að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum (65 70). Hún er með 2 högga forystu á þá sem er í 2. sæti hina þýsku Caroline Mason (68 69). Það var vindur og þoka sem var að há stúlkunum í Suzhou en eftir hringinn sagði forystukonan Ciganda m.a.: „Ég er sjálfsörugg og er að spila vel en allt getur gerst á einni holu, bara einu höggi.“ Enn öðru höggi á eftir (Masson) er enska Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 27. 2012 | 08:45

Rick Jensen: Greg Norman „fór ekki í kerfið“ á the Masters 1996

Hér á eftir fer ágætis grein James Achenbach hjá Golfweek í mjög lauslegri íslenskri þýðingu. Það sem er til umfjöllunar er það sem gerðist fyrir meira en 16 árum nánar tiltekið 14. apríl 1996 þegar ástralski kylfingurinn Greg Norman var með 6 högga forystu fyrir lokahringinn á the Masters risamótinu; þ.e. var á samtals 13 undir pari (63 69 71) en lauk mótinu með hring upp á 78 högg og var á samtals 7 undir pari, 281 höggi og varð í 2. sæti  á eftir Sir Nick Faldo, sem lauk keppni á samtals 12 undir pari,  276 höggum (69 67 73 67) og vann þar með upp 7 högg þegar sigurinn blasti við Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 20:45

Golfgrín á föstudegi

1) Hjónin spila saman golf. Hann er sífellt að finna að höggum hennar. Og allt í einu ….. á par-3 holunni … fær hún ÁS …. Holu í höggi!!! Hún snýr sér við í von um að fá hrós.  Hann: „Ef þú slærð svona lærirðu aldrei að pútta!!!“ 2) Tvær konur spjalla saman á 19. holunni í Golfklúbbnum. „Hefurðu heyrt þetta um Veróníku?“ sagði ein. „Nei, hvað er með hana?“ „Hún á að hafa myrt mann sinn og hún er nú í gæsluvarðhaldi.“ „Í alvöru? Hvernig fór hún að því?“  „Með golfkylfu!“ „Áhugavert! Hvað þurfti hún að slá mörg högg?“ 3) Jói talar við boltann sinn, tekur mikla aftursveiflu en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 19:30

Ólafur Björn spilaði á 74 höggum á 3. degi í Florence

Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur  þátt í úrtökumóti fyrir PGA Tour í Florence, Suður-Karólínu.  (Komast má á heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:) Ólafur Björn var á 74 höggum á 3. degi mótsins og er sem stendur í einu af neðstu sætunum.  Samtals er Ólafur Björn búinn að spila á 9 yfir pari, 219 höggum (74 71 74). Aðeins 17 efstu og þeir sem eru jafnir í 17. sætinu komast áfram á 2. stig úrtökumótsins. Ljóst er því að Ólafur Björn kemst því miður ekki á 2. stig úrtökumótsins. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á úrtökumótinu í Florence SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 19:00

GKG í 8.-9. sæti á EM klúbbliða eftir 2. dag

GKG er í 8.-9. sæti eftir tvo keppnisdaga af þremur á EM klúbbliða sem fer fram á Kýpur. Liðið er samtals á einu höggi undir pari, en Frakkar eru efstir í mótinu á 24 höggum undir pari. Alfreð Brynjar Kristinsson lék á 70 höggum í dag og er á 5 höggum undir pari í heildina og í 6. sæti í einstaklingskeppninni. Kjartan Dór Kjartansson lék á 74 höggum í dag en Guðjón Henning Hilmarsson taldi ekki í dag, en hann var á 77 höggum. Mótinu lýkur á morgun. Golf 1 óskar þeim Alfreð Brynjar, Guðjón Henning og Kjartani Dór góðs gengis á morgun! Sjá má stöðuna á European Men´s Club Lesa meira