Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 13:00

G-Mac leggur til að Olympíugolfnefndin taki ákvörðun um hvort hann og Rory spili fyrir England eða Írland

Graeme McDowell var með nokkuð óvenjulega uppástungu í viðtali sem tekið var við hann fyrir BMW Masters. Varðandi það fyrir hvaða þjóð hann og Rory McIlroy ættu að keppa á Ólympíuleikunum 2016 sagði hann eftirfarandi: „Við erum í sérstakri stöðu á Norður-Írlandi, þannig að við erum með einn fót í báðum liðum. Ég held að það myndi vera miklu auðveldara ef einhver tæki ákörðunina fyrir okkur. Olympíugolfnefndin ætti að hafa milligöngu og taka ákvörðun um með hvoru liðinu við spilum Írlandi eða Bretlandi.“ Conor Nagle golffréttapenna hjá WUP finnst hugmynd G-Mac fáránleg því hann segir engan geta tekið ákvörðun um þjóðerni fyrir einhvern annan; það verði hver að gera upp Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Davíð Skarphéðinsson – 26. október 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Davíð Skarphéðinsson. Davíð er fæddur 26. nóvember 1987 og á því 25 ára stórafmæli!!! Hann er í Golfklúbbnum Keili.  Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Davíð Skarphéðinsson (25 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mark Bucek, f. 26. október 1961 (51 árs);  David Miley f. 26. október 1966 (46 ára)  Melodie Bourdy,(nýliði á LET) 26. október 1986 (26 ára) ….. og ….. Helga Jóhannsdóttir; GK (49 ára) Elísabet Sigurbjarnadóttir (47 ára) Anton Ingi Þorsteinsson; GA (37 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 09:15

LET: Carlota Ciganda leiðir á Suzhou Taihu Ladies Open eftir 1. dag

Það er spænska stúlkan Carlota Ciganda, sem tekið hefir forystuna í Suzhou Taihu Ladies Open í Kína á 1. degi.  Carlota kom inn á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum. Hún tapaði hvergi höggi fékk 7 fugla og 10 pör.  Þetta er í fyrsta skipti sem 22 ára nýliðinn á LET, Carlota Ciganda spilar í Kína. Carlota sagði m.a. eftir hringinn: „Ég spilaði mjög traust golf af teig og átti góð aðhögg á flatirnar. Ég hugsa að lykillinn hafi verið púttin því ég var að pútta vel.“ Í 2. sæti aðeins 1 höggu á eftir er landa hennar Tania Elosegui, þ.e. á 6 undir pari, 66 höggum. Enska stúkan Florentyna Parker Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 09:00

PGA: Robert Garrigus leiðir í Malasíu eftir 2. dag – Tiger í 5. sæti – hápunktar og högg 2. dags

Bandaríkjamaðurinn Robert Garrigus leiðir á CIMB Classic mótinu í Malasíu þegar það er hálfnað. Hann er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 128 höggum (64 64) og hefir 2 högg forystu á Jbe Kruger frá Suður-Afríku. Ástralinn Greg Chalmers og forystumaður gærdagsins Bandaríkjamaðurinn Troy Matteson deila 3. sætinu á samtals 10 undir pari. Tiger Woods, Brendon de Jonge frá Zimbabwe og Kevin Na, sem frægur er fyrir að ætla aldrei að koma sér að því að slá af teig deila 5. sætinu á samtals 9 undir pari, 5 höggum á eftir forystumanninum. Til þess að sjá stöðuna þegar CIMB Classic er hálfnað SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 08:45

LPGA: Suzann Pettersen og Inbee Park efstar og jafnar í Taíwan þegar Sunrise mótið er hálfnað

Norska frænka okkar Suzann Pettersen og Inbee Park frá Suður-Kóreu eru efsta og jafnar þegar Sunrise LPGA Taíwan Championship er hálfnað í Yang Mei í Taíwan. Báðar eru þær búnar að spila á 10 undir pari, 134 höggum hvor; Pettersen (69 65) og Park (65 69). Suzann átti glæsihring í dag upp á 7 undir pari, þar sem hún fékk 7 fugla og 10 pör og tapaði þ.a.l. hvergi höggi.  Þetta var hringurinn sem Park átti í gær en í dag gekk verr hún fékk 5 fugla og 2 skolla og þ.a.l. jafnaði komst Pettersen upp við hlið hennar. Þriðja sætinu deila tvær góðar Yani Tseng nr. 1 á Rolex-heimslista Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 08:30

Evróputúrinn: Peter Hanson leiðir þegar BMW Masters er hálfnað

Það er Svíinn Peter Hanson, sem leiðir þegar BMW Masters er hálfnað. Hanson er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 130 höggum (66 64) og var aðeins 2 höggum frá því að jafna vallarmetið í dag. Í 2. sæti er nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy, 2 höggum á eftir Hanson, á samtals 12 undir pari, 132 höggum (67 65). Svíinn Robert Karlson er nú loks aftur kominn í sitt gamla form eftir fremur dapurt gengi undanfarið en hann er í 3. sæti, á samtals 9 undir pari. Fjórða sætinu deila 4 kylfingar: Jamie Donaldsson, sem setti vallarmet í gær 62 högg en átti afleitan hring upp á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 08:00

Golfvellir á Kýpur: Minthis Hills

EM klúbbaliða fer nú fram á Minthis Hills golfvellinum á Kýpur og tekur karlasveit GKG þátt og gengur vel.  Það er því ekki úr vegi að fræðast aðeins um Kýpur og golfvellina þar og verður hér fjallað um Minthis Hills, þar sem mótið fer fram. Kýpur (gríska: Κυπριακή Δημοκρατία) er eyjan, þar sem Afródíta, gyðja ástar og fegurðar fæddist. Kýpur er 3. stærsta eyjan og sú austasta í Miðjarðarhafinu, hún liggur suður af Tyrklandi og í norðvestan við Líbanon og Sýrland. Kýpverjar hlutu sjálfstæði frá Bretum 1959 og hefur norðurhluti eyjunnar verið undir stjórn Tyrklands en suðurhluti undir stjórn Grikkja. Kýpur fékk aðild að Evrópusambandinu 1. maí 2004. Eyjan er 9.251 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 26. 2012 | 07:00

Ian Poulter og brellugolfhöggameistarinn Geoff Swain – myndskeið

Ian Poulter þarf ekki að hafa áhyggjur af að missa vinnuna sína á næstunni – en þar sem enginn veit sína ævina …. þá er gott að vita að hann gæti átt sér framtíð á öðru sviði – golfbrelluhöggum. Fyrir Ryder keppnina fór Poulter að hitta golfbrelluhöggameistarann Geoff Swain.  Skyldi Olazábal hafa vitað af því hvað Poulter var að bauka? Auðvitað er Poulter atvinnumaður og að láta erfið högg líta út fyrir að vera auðveld tilheyrir.  En þau eru bara nokkuð flott golfbrelluhöggin hjá Ian Poulter. Best er að skoða þau sjálf með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 20:30

Alfreð Brynjar lék best GKG-inga á EM klúbbliða – GKG í 5.-6. sæti eftir 1. dag

Alfreð Brynjar Kristinsson, Guðjón Henning Hilmarsson og Kjartan Dór Kjartansson spila nú á Kýpur í EM klúbbliða (European Men´s Club Trophy). GKG vann sér inn þátttökurétt á mótinu eftir sigurinn í Sveitakeppni GSÍ í ágúst, en alls taka 25 þjóðir þátt í mótinu. Spilað er á Minthis Hills golfvellinum. Alfreð Brynjar lék best strákanna úr GKG í dag, en hann var á 4 undir pari, 67 höggum og deilir 5. sætinum með öðrum.  Guðjón Henning var á 1 yfir pari, 72 höggum og Kjartan Dór rak lestina í dag á 8 yfir pari, 79 höggum. Tvö bestu skorin af 3 telja. Sveit GKG er í 5.-6. sæti eftir 1. dag Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2012 | 18:45

Ólafur Björn á 71 höggi á 2. degi í Florence

Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur nú þátt í úrtökumóti fyrir PGA Tour í Florence, Suður-Karólínu.  (Komast má á heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:) Ólafur Björn er búinn að spila á samtals 5 yfir pari, 145 höggum (74 71). Hann bætti sig um 3 högg milli hringja;  fékk 4 fugla og 5 skolla og var á 1 yfir pari í dag. Ómögulegt er að segja í hvaða sæti Ólafur Björn er því svo margir eiga eftir að ljúka leik. Í efsta sæti sem stendur eru tveir kylfingar á samtals 6 undir pari, 134 höggum hvor en það eru Chris Gallagher frá Norður-Karólínu og Wes Homan frá Ohio.  En eins og segir Lesa meira