Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 11:00

Rory vann Tiger í 360 milljóna hring þeirra í Kína

Rory McIlroy og Tiger fengu um 3 milljónir bandaríkjadala (360 milljónir íslenskra króna) fyrir að spila sýningahring á Lake Jinsha International golfvellinum í Kína í dag. Þar af fékk Tiger 2 milljónir en Rory 1 milljón. Það var ákveðið fyrirfram.

Það var hins vegar Rory sem bar sigurorð af Tiger á hringnum með 1 höggi.  Það var búinn að vera mikill spenningur meðal golfáhangenda í Zhengzhou í Kína, enda ekki á hverjum degi sem nr. 1 og nr. 2 á heimslistanum mætast í einvígi sem þessu.

Rory hafði betur var á 5 undir pari, 67 höggum en Tiger á 68 höggum.

Þeir léku báðir um helgina; Rory í Shanghaí þar sem hann landaði 2. sætinu á BMW Masters en Tiger var í Malasíu og krækti sér í 4. sætið þar á CIMB Classic.

Þetta er 3. sigur Rory í 11 viðureignum við Tiger en Tiger vann Rory nýlega með 6 höggum á World Golf Finals í Tyrklandi.

Hvorugur; Tiger eða Rory taka þátt í WGC-HSBC Champions sem hefst nú í vikunni í  Mission Hills, Kína. Næsta mót Rory er Singapore Open, sem hefst 8. nóvember n.k. og Tiger spilar aðeins í 1 móti enn á 2012 keppnistímabilinu, þ.e.World Challenge í Kaliforníu í lok næsta mánaðar.