Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2012 | 09:00

Af hverju Callaway hefir engar áhyggjur af því að Mickelson noti TaylorMade tré í Asíu

Phil Mickelson er á samningi hjá Callaway, sem sér kappanum fyrir öllum golfútbúnaði, en golfútbúnaðarfréttir eru nú vinsælar eftir meintan ábatasaman samning Rory við Nike (sem hvorki hefir fengist staðfestur af Rory né Nike). En nú sást til Phil nota TaylorMade RocketBallz 3-tré á HSBC-mótinu í Mission Hills,  Kína!!!  Venjulega myndi slík sýn leiða til sögusagna um að yfirvofandi væri riftun auglýsingasamnings Phil við Callaway, en skv. Harry Arnett, varaforseta markaðsmála hjá Callaway var ástæða fyrir því að TaylorMade kylfan var í poka Phil. „Fyrir nokkrum vikum var Phil að leita að 3-tré sem væri einhvers staðar á milli venjulega 3-trés hans og drævers í lengd, þar sem það var það Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 3. 2012 | 02:00

Rory McIlroy skrifaði undir samning við Nike – gerir auglýsingu fyrir Nike með Tiger

Rory McIlroy skrifaði nú fyrir nokkrum klukkustundum undir auglýsingasamning við Nike fyrir a.m.k. $200 milljónir. Meðan að talsmaður Nike neitaði að tala um það sem fyrirtækið nefndi „sögusagnir og vangaveltur,“ þá staðfesti FoxSports.com  seint föstudagskvöldið að bandarískum tíma  það sem hefir verið nefnt verst geymda leyndarmálið þ.e. að samningur Nike við Rory McIlroy væri í burðarliðnum. Jafnframt kom fram hjá FoxSports að McIlroy hefði þegar komið fram í fyrstu auglýsingu sinni ásamt Tiger Woods sem fer í loftið snemma næsta árið, 2013. Fyrir framan kvikmyndatökuvélarnar taka Tiger og Rory upp þráðinn þar sem við var skilið í Kína og tala sín á milli um fjarlægðina sem fæst út úr nýjum rauðum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 20:00

GKG: Þrír herramenn sem láta vonskuveður ekki hindra golfiðkun

Heldri borgarar eru duglegir að nýta sér það að Mýrin er opin yfir veturinn og mæta á hverjum morgni og spila. Vonsku veður er um allt land í dag, þakplötur farnar að fjúka og hjálparsveitir kallaðar út. Það kemur því töluvert spánskt fyrir sjónir að sjá þessa herramenn tía upp á fyrsta teig og láta ekki slíka smámuni aftra sér frá daglegri golfiðkun. Texti: Agnar Már Jónsson á heimasíðu GKG


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 18:30

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (28. grein af 34): Celine Palomar

Franski kylfingurinn Celine Palomar átti afmæli fyrir nokkrum dögum átti 30 ára stórafmæli!!!  Hún fæddist 30. október 1982 í Avranches í Frakklandi.  Hún er nú í 2. sæti eftir 1. hring Sanya Ladies Open á Yalong Bay golfvellinum í Sanya, í Kína. En Palomar er líka ein af nýju stúlkunum á LET, sem hlaut kortið sitt eftir þátttöku í Q-school LET á La Manga fyrr á árinu.  Nánar tiltekið varð hún í 7. sæti ásamt Jessicu Yadloczky, sem fyrr hefir verið kynnt. Celine Palomar gerðist atvinnumaður í golfi 2009 og spilaði fyrstu tvö árin á Banesto Tour þar sem hún varð í 5. sæti á stigalista mótaraðarinnar. 2011 spilaði hún á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 17:45

LET: Joanna Klatten efst eftir 1. dag Sanya Ladies Open

Franski kylfingurinn Joanna Klatten leiðir eftir 1. dag Sanya Ladies Open.  Klatten kom í hús á 3 undir pari, 69 höggum. Hún fékk 3 fugla, 14 pör og 1 skolla. Eftir hringinn sagði Klatten m.a.:  „Mér finnst eins og ég hafi þurft að hafa minna fyrir þessu en leikfélagar mínir vegna þess að þær þurftu oft að slá með trjám á par-4 holurnar og ég var oft bara með stutt járn, þannig að ég er ánægð með hringinn minn í dag. Ég var að verða of tæknileg þannig að nú vildi þjálfarinn minn að ég hugsaði um ekkert nema skotmarkið. Ég spila aðeins hraðar og það hjálpar; maður fer fram Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 15:00

Frægir kylfingar: Rokkarinn Alice Cooper bendir á svindlara meðal fræga fólksins í golfinu – myndskeið

Rokkarinn Alice Cooper hefir viðurkennt að hann svindli reglulega í golfi og eins hefir hann komið upp um nokkra fræga spilafélaga sína þ.á.m. fyrrum Bandaríkjaforseta Bill Clinton og viðskiptajöfurinn Donald Trump, en hann segir þá báða sveigja reglurnar á golfvellinum. Cooper sem er einna frægastur fyrir smellinn „School’s Out” er alveg ágætis kylfingur – var m.a. á lista yfir bestu tónlistarmennina í golfinu, sem Golf Digest birti fyrir 6 árum, en þá var hann með 5,3 í forgjöf. Hann hefir sjálfur sagt að golfið hafi hjálpað sér að yfirvinna áfengissýkina kringum 1980 – hann hafi þurft á annarri jafnsterkri en heilbrigðari fíkn að halda og fundið hana í golfinu. Hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 13:00

Sandy olli skemmdum á Bethpage Black

Bethpage Black golfvöllurinn er sá erfiðasti af 5 golfvöllum Bethpage State Park á Long Island í New York og í miklu uppáhaldi hjá Íslendingum og öðrum sem hann hafa spilað.  Þar fór Barclays mótið fram s.l. ágúst og Opna bandaríska risamótið árin 2002 og 2009 svo eitthvað sé talið. Komast má á heimasíðu Bethpage með því að SMELLA HÉR:  Þegar hvirfilvindurinn Sandy reið yfir urðu allir 5 vellir Bethpage State Park fyrir miklum skemmdum, m.a. liggja 800 tré víðs vegar um völlinn.  Andrew Wilson, vallarstjóri Bethpage þakkar fyrir að ekkert trjánna skemmdi flatir, en segir að þeir sem kunnugir séu völlunum muni taka eftir breytingum, þar sem mörg kunnugleg tré vanti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Karitas Sigurvinsdóttir – 2. nóvember 2012

Afmæliskyfingur dagsins er Karitas Sigurvinsdóttir, Karitas er fædd 2. nóvember 1963. Hún er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS). Karitas hefir tekið þátt í fjölda golfmóta og staðið sig með ágætum. Hún er gift og á tvær dætur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Karitas Sigurvinsdóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Isette Pearson; f. 2. nóvember 1861 – d. 25. maí 1941;  Dave Stockton, 2. nóvember 1941 (71 árs) ….. og …… Anna Katrín Sverrisdóttir (21 árs) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 09:00

Tiger segir þreytu ástæðu þess að hann spilar ekki í WGC-HSBC Champions

Tiger Woods sagði þreytu vera ástæðu þess að hann sleppti World Golf Championship HSBC Champions mótinu í Kína í þessari viku. Meðan að Adam Scott og Louis Oosthuizen náðu 1. sætinu eftir 1. hring í $7 milljón dollara mótinu í  Shenzhen í gær, þá var hinn 36 ára Tiger með pútthóptíma fyrir unglinga  í Singapore. Aðalstuðningsaðilinn (HSBC-bankinn) var mjög óánægður með að Tiger og nr. 1 á heimslistanum McIlroy ákváðu að sleppa mótinu þrátt fyrir að vera í landinu (Kína) og spila þess í stað á sýningarmóti, sem gaf vel í aðra hönd (Tiger fékk $ 2 milljónir og Rory $ 1 milljón). Tiger sagði að sig hlakkaði til að keppa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2012 | 08:30

WGC: Louis Oosthuizen stingur hina af þegar HSBC Champions er hálfnað – myndskeið

Louis Oosthuizen leiðir á WGC-HSBC Champions mótinu á Lake Malaren í Kína þegar mótið er hálfnað.  Hann er búinn að stinga hina af, á 5 högg á næstu kylfinga þá Adam Scott og Ernie Els, sem deila 2. sætinu. Oosthuizen er búinn að spila á samtals 16 undir pari, 128 höggum (65 63).  Hann ásamt Els voru á besta skorinu í nótt heilum 9 undir pari. Skorkortið hans var skrautlegt hann var með örn, 8 fugla, 8 pör og 1 skolla. Fjórða sætinu deila Jason Dufner og Shane Lowry á samtals 10 undir pari, 134 höggum. Enn einu höggi á eftir á samtals 9 undir pari, 135 höggum hvor eru Lesa meira