Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 20:15
Birgir Leifur var á 73 höggum á 2. degi úrtökumótsins í Flórída

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnumaður í GKG, spilaði í dag 2. hring á 2. stigi úrtökumóts fyrir PGA Tour 2013. Keppt er á Plantation Preserve Golf Course & Club, í Plantation, í Broward sýslu, í Suður-Flórída. Sjá má heimasíðu golfstaðarins með því að SMELLA HÉR: Birgir Leifur lék á 2 yfir pari, 73 höggum í dag, fékk 1 fugl, 15 pör og 1 skolla og 1 skramba. Samtals er Birgir Leifur búinn að spila á 1 yfiir pari, 143 höggum (70 73) og er sem stendur í 62. sæti. Einkavinur Tiger Woods, Notah Begay er í 68. sæti, 2 höggum á eftir Birgi Leif. Í efsta sæti er „heimamaðurinn“ Rob Oppenheim, á samtals Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 20:00
Afmæliskylfingar dagsins: Jacob Thor Haraldsson og Nicolas Colsaerts – 14. nóvember 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Jacob Thor Haraldsson og belgíski Ryder Cup kylfingurinn Nicolas Colsaerts. Jacob Thor fæddist 14. nóvember 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Nicolas fæddist 14. nóvember 1982 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Jacobs Thor til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Jacob Thor Haraldsson (50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Charles Blair Macdonald, f. 14. nóvember 1855 – d. 21. apríl 1939 ….. og …… Ágústa Hansdóttir (54 ára) Petrea Jónsdóttir (63 ára) Lára Halla Snæfells Bent Larsen Fróðason (35 ára) Golf 1 óskar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 19:30
Nokkrar staðreyndir um Anniku Sörenstam

Vissuð þið eftirfarandi um einn albesta kvenkylfing allra tíma, Anniku Sörenstam, sem enn er uppáhaldskylfingum margra Íslendinga, þótt hún hafi lagt kylfiurnar á hilluna og keppi ekki lengur á atvinnumannamótunum og kemur aðeins fram í stöku móti oftar en ekki til stuðnings góðu málefni? * Á atvinnumannsferli sínum vann Annika í 72 opinberum mótum LPGA, þ.á.m. á 10 risamótum og 18 öðrum alþjóðlegum mótum. * Sem barn var Annika alhliða íþróttamaður. Hún var meðal bestu tennisspilara í Svíþjóð, hún spilaði fótbolta og er frábær á skíðum. * Annika var svo feimin sem unglingur að hún þrípúttaði af ásetningi til þess að verða ekki í 1. sæti og þurfa ekki að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 19:15
Branden Grace stefnir á að sigra SA Open

Eftir að hafa sigrað 4 sinnum á nýliðaári sínu á Evrópumótaröðinni, þá getur Branden Grace náð að toppa þetta allt saman með titli sem hann setur ofar öllu: að sigra heima í Suður-Afríku á SA Open. Skotinn Richie Ramsay er eini alþjóðlegi kylfingurinn sem tekist hefir að sigra á hinu sögulega South African Open síðasta áratuginn, þannig að þeir sem líklegastir eru taldir til að sigra í Serengeti nú um helgina eru Suður-Afríkumennirnir Branden Grace, Charl Schwartzel og sá sem á titil að verja Hennie Otto. Grace sigraði á Joburg Open, Volvo Golf Champions, China Open og Alfred Dunhill Links og er þannig í 6. sæti á peningalista Evrópumótaraðarinnar. South African Open Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 15:30
Sandy Lyle spilar ásamt syni sínum James á feðra/sona móti

Frægðarhallarkylfingurinn Sandy Lyle mun keppa ásamt syni sínum, James í feðra/sona móti þ.e. PNC Father/Son Challenge í Orlando, Flórída, dagana 13.-16. desember n.k. Hér áður fyrr gátu þeir ekki keppt saman því annaðhvort var James ekki nógu gamall eða kunni ekki golf. Nú er James hins vegar orðinn nógu gamall og ekki nóg með það hann er kominn með 5 í forgjöf og er félagi í Woburn golfklúbbnum, sem er nálægt London. Aðspurður um Ryder Cup og af hverju hann hefði ekki enn verið útnefndur fyrirliði liðs Evrópu vísaði Lyle til þess að hann og Larry Nelson væru í svipuðum kringumstæðum þar sem þeir hefðu báðir unnið risamót og átt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 09:30
Rickie Fowler í nýrri Red Bull auglýsingu – myndskeið

Kylfingurinn Rickie Fowler er einn af þeim ofurtöffurum meðal íþróttamanna, sem eru á samningi hjá Red Bull orkudrykkja-framleiðandanum. Aðrir kylfingar sem eru á samningi hjá Red Bull er m.a. hin unga Lexi Thompson. Nú hefir Red Bull fengið nokkra af íþróttamönnunum, sem eru á samningi hjá þeim til þess að taka þátt í næstum 6 mínútna auglýsingu, myndskeiði sem e.t.v. er svalasta Rube Goldberg-machine myndskeið sögunnar. Auk Rickie koma m.a. fram íþróttamennirnir Lolo Jones og Ryan Sheckler í þessu myndskeiði sem fyrirtækið nefnir „The Kluge.“ Þar sjást íþróttamennirnir m.a. stökkva úr flugvélum og Rickie Fowler pitch-ar af 23 metra færi beint ofan í holu. Til þess að sjá Red Bull auglýsinguna SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 23:30
NGA: Þórður Rafn á 77 högum eftir 1. dag í Harmony Golf Preserve

Í dag hófst 4. mótið á NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series. Nú er spilað í Harmony Golf Preserve, í Harmony, Flórída. Þátttakendur eru 88 og Þórður Rafn Gissurarson, GR, meðal keppenda. Þórður Rafn átti hring upp á 5 yfir pari, 77 högg, fékk aðeins 1 fugl, 12 pör, 4 skolla og 1 skramba og er sem stendur í 76. sæti, sem hann deilir með TJ Regan frá Lynnfield, Massachusetts. Það eru 29 efstu og þeir sem jafnir eru í 29. sæti sem fá að spila 3. daginn. Eftir 1. dag er niðurskurður miðaður við 2 undir pari og þarf Þórður Rafn að vinna upp 7 högg ætli hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 23:00
Birgir Leifur í 33. sæti eftir 1. dag 2. stigs PGA úrtökumótsins

Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, atvinnumaður í GKG, hóf í dag keppni á 2. stigi úrtökumóts fyrir PGA Tour 2013. Keppt er á Plantation Preserve Golf Course & Club, í Plantation, í Broward sýslu, í Suður-Flórída. Sjá má heimasíðu golfstaðarins með því að SMELLA HÉR: Birgir Leifur kom inn á 1 undir pari, 70 höggum og er sem stendur í 33. sæti, sem hann deilir ásamt 4 öðrum kylfingum. Hann byrjaði á 10. teig í dag og fékk tvo fugla (á 14. og 1. braut) og 1 skolla (á 5. braut). Í efsta sæti eru tveir bandarískir kylfingar Rob Oppenheim og Kris Blanks á 8 undir pari. Meðal keppenda eru og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 17:45
Nýju stúlkurnar á LET 2012 (33. grein af 34): Anaïs Magetti

Það var svissneska stúlkan Anaïs Magetti sem varð í 2. sæti á Q-school LET á La Manga nú fyrr á árinu. Anaïs Magetti fæddist í Losone, 9. desember 1990 og er því 21 árs. Hún talar ítölsku, frönsku, þýsku og ensku. Hún nam viðskiptafræði við íþróttaskólann sem hún var í. Golfklúbburinn sem Anaïs er í, í Sviss er Golf Gerre Losone í Ticino héraðinu í Sviss. Sem áhugamaður spilaði Anaïs á nokkrum mótum á LET.Hún varð í 22. sæti á Deutsche Bank Ladies Swiss Open 2008. Hún varð T-14 á Deutsche Bank Ladies Swiss Openn 2010. Hún var á besta skorinu 7 undir pari (64) á Swiss International Championship árið 2011. Eins spilaði Anaïs Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: Rafn Stefán Rafnsson – 13. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Rafn Stefán Rafnsson. Rafn Stefán er fæddur 13. nóvember 1978 og er því 34 ára í dag. Hann er klúbbmeistari Golfklúbbsins Odds 2012. Komast má af facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Rafn Stefán Rafnsson (34 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Robert Jay Sigel, 13. nóvember 1943 (69 ára); Rosie Jones, 13. nóvember 1959 (53 ára); Sahra Hassan, 13. nóvember 1987 (25 ára)….. og …… Baldvin Þór Sigurbjörsson (26 ára) Ernir Steinn Arnarsson Marianna Fridjonsdottir Arnþór Örlygsson Framkvæmdafélag Listamanna Þuríður Bernódusdóttir (58 ára) Rögnvaldur A Sigurðsson (47 ára) Golf 1 óskar Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

