Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 17:00

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (34. grein af 34): Jodi Ewart

Það var enska stúlkan Jodi Ewart sem bar sigurorð af öllum í Q-school LET nú fyrr á árinu.  Með þessari grein hafa „nýju kylfingarnir“ á öllum 4 helstu golfmótaröðum heims, árið 2012 verið kynntir: PGA; LPGA; Evróputúrsins og nú LET.  Það er ágætt því nú fara að hefjast ný úrtökumót og mun Golf 1 halda áfram að kynna „nýju kylfingana“, sem eru oftar ekki eru gamlir í hettunni að vinna sér inn aukinn spilarétt … en svo alltaf einhverjir nýjir áhugaverðir inn á milli. En nú að Jodi Ewart sigurvegara Q-school LET 2012, þeirri sem varð í 1. sæti. Jodi Ewart er fædd 7. janúar 1988 í Northallerton í Englandi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ottó Sigurðsson – 15. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Ottó Sigurðsson. Ottó er fæddur 15. nóvember 1979 og er því 33 ára í dag. Ottó er afrekskylfingur í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Hann hefir æft golf frá árinu 1993, þ.e. frá 14 ára aldri.  Hann var m.a. skráður í PGA á Íslandi  og því atvinnumaður í golfi 2007-2009. Hann hefir staðið sig geysivel í fjölmörgum opnum mótum og mætti sem dæmi nefna glæsilegan sigur hans í ZO-ON mótinu 19. júní 2010, þegar hann spilaði Hvaleyrina á -5 undir pari, 66 höggum. Aðeins 3 vikum áður sigraði Ottó höggleikinn á Vormóti Hafnarfjarðar og svo mætti sem dæmi nefna sigur hans á 1. maí móti GHR 2008. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 13:00

Nick Faldo telur að kynlífshneyksli Tiger hafi eyðilagt hann og telur erfiðara fyrir hann að vinna risatitla

Tiger Woods virðist hafa tapað einhverju frá því að upp kom um kynlífshneyksli hans fyrir 3 árum. Hægt er að benda á sveiflu hans eða sjálfsöryggi eða  kannski líður Tiger ekki vel á golfvellinum lengur. Atvinnukylfingurinn og golffréttaskýrandinn Sir Nick Faldo telur að „kynlífshneyksli Tiger hafi haft alvarlega skemmandi áhrif og hann setur spurningamerki við hvar hugur Tiger sé þegar hann tíar upp. „Uppljóstranirnar hafa haft meiri skemmandi áhrif en fólk heldur,“ sagði Faldo á BBC Radio. Þær hafa eyðilagt þá undursamlegu ró sem kemur yfir mann þegar gengið er út á golfvöllinn, hann tekur út kassa af boltum og slær frá 9 til 5 og hugsar bara um golf. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 11:45

Evróputúrinn: Fremur óþekktur Spánverji Javier Colomo í forystu á UBS Hong Kong Open eftir 1. dag

Það er fremur óþekktur spænskur kylfingur Javier Colomo sem leiðir eftir 1. dag á UBS Hong Kong Open.  Hann var á 6 undir pari, 64 höggum, fékk 6 fugla og 12 pör, þ.e. skilaði inn hreinu skorkorti og skaust þar með með 1 höggi yfir þann sem leiddi mest allan morguninn, Miguel Ángel Jiménez. Jiménez er ekki einn í 2. sæti heldur náði Ástralinn Andrew Dodt einnig að skjóta sér í 2. sætið, en báðir eru þeir á 5 undir pari. Í 4. sæti eru 5 kylfingar sem allir eru búnir að spila á 4 undir pari, 66 höggum: Kínverjinn Lian-wei Zhang; Spánverjinn José Maria Olázabal; Svíinn Fredrik Anderson Hed; YE Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 11:00

Formannafundur GSÍ verður haldinn n.k. laugardag

Formannafundur Golfsambands Íslands verður haldið laugardaginn 17. nóvember 2012. Fundarstaður er Golfskáli Golfklúbbs Suðurnesja í Leiru og hefst stundvíslega kl. 13:00. Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum GSÍ og jafnframt verður kynnt niðurstaða nefndar um stefnumótun sambandsins, sem sett var á laggirnar að loknu golfþingi 2011.


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 09:00

Paige MacKenzie reynir fyrir sér sem golffréttaskýrandi á Golf Central

LPGA-kylfingurinn Paige MacKenzie mun verða við CME Group Titleholders í Orlando, Flórída …. en ekki til þess að keppa í þetta sinn …. heldur verður hún í hlutverki golffréttaskýranda fyrir Golf Central. CME Group Titleholders er síðasta mótið á dagskrá LPGA á þessu ári og hefst í dag, 15. nóvember og stendur til 18. nóvember. Paige kom fram í þætti Golf Channel til þess að ræða ýmislegt sem hefir verið á dagskrá LPGA undanfarið ár. M.a. ræðir hún um Stacy Lewis, sem nýlega var valin kylfingur ársins á LPGA og þýðingu hennar fyrir bandaríska golfáhangendur. Sjá má myndskeið af Paige Mackenzie í Golf Channel með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 08:00

Matthew Guyatt leiðir á Talisker Masters eftir 1. dag – Adam Scott í 2. sæti

Ástralinn Matthew Guyatt leiðir á Talisker Australian Masters sem hófst fyrr í morgun hinum meginn á hnettinum. Hann kom í hús á 7 undir pari, 65 höggum; fékk 8 fugla og 1 skolla. Adam Scott er í 2. sæti eftir 1. dag, fékk fugla á seinni 9 og lauk hringnum á 5 undir pari, 67 höggum Scott byrjaði á 10. holu og var á parinu eftir fyrri 9 (þ.e. seinni 9 á vellinum, Kingston Heath) en fékk síðan 4 fugla í röð og bætti einum við á 7. holu. Hann deilir 2. sætinu með landa sínum, Michael Landry og Ryder Cup hetju evrópska liðsins Ian Poulter, sem á titil að verja. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 07:30

Rory slær bolta af Peak Tower í Hong Kong

Nú á þriðjudaginn s.l. á blaðamannafundi fyrir UBS Hong Kong Open sló Rory McIlroy nokkra bolta af þaki Peak Tower í Hong Kong. Spurning hvort einhver hafi fengið þá í sig niðri á götum Hong Kong? Það er Rory sem á titil að verja á UBS Hong Kong Open. Auk Rory voru eftirfarandi kylfingar staddir á fundinum: fjórfaldur US PGA Tour sigurvegari Matt Kuchar og þrír risamótsmeistarar: Pádraig Harrington, Paul Lawrie og Yang Yong-eun (betur þekktur sem YE Yang). The Hong Kong Open er elsta mót Hong Kong. Það hófst 1959 og varð hluti af dagskrá Evrópumótaraðarinnar fyrir 10 árum, þ.e. 2002. Það á sér ríka og virta sögu, en sigurvegarar á því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 15. 2012 | 07:00

Evróputúrinn: Jiménez tekur forystu snemma dags í Hong Kong

Miguel Ángel Jiménez hefir tekið forystu snemma dags á UBS Hong Kong Open, sem hófst fyrr í morgun í Fanling í Hong Kong. Jiménez kom inn á 5 undir pari, 65 höggum. Hann fékk 5 fugla, 11 pör og 2 skolla. Fjórir kylfingar eru sem stendur í 2. sæti: José Maria Olázabal fyrirliði liðs Evrópu í Ryder Cup, Svíinn Fredrik Anderson Hed, Y.E Yang frá Suður-Kóreu og kínverskur kylfingur, Lian-Wei Zhang.  Þeir allir eru búnir að spila á 4 undir pari, 66 höggum. Margir kylfingar eiga eftir að ljúka leik og því getur framangreind stað breyst eftir því sem líður á daginn. Til þess að fylgjast með stöðunni á UBS Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 14. 2012 | 20:30

NGA: Þórður Rafn komst ekki í gegnum niðurskurð í Harmony

Þórður Rafn Gissurarson, GR, dró sig í dag úr   4. móti NGA Pro Tour – Bridgestone Winter Series, í Harmony Golf Preserve, í Harmony, Flórída. Þátttakendur eru 88. Þórður Rafn spilaði á 77 höggum í gær og ljóst að erfitt myndi verða fyrir hann að komast í gegnum niðurskurð. Það voru 29 efstu og þeir sem jafnir eru í 29. sæti sem fá að spila á morgun. Niðurskurður miðaðist við samtals 4 undir pari eftir 2. dag. Næsta mót NGA Pro Tour er í Southern Dunes Golf Club í Flórída og fer fram dagana 27.-29. nóvember þ.e. eftir 2 vikur. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag mótsins í Lesa meira