Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 11:00

Rory McIlroy þykir líklegur til að verða valinn „kylfingur ársins“ bæði á Evrópumótaröðinni og PGA Tour

Heimsins besti Rory McIlroy er nú talinn líklegastur til að hreppa titilinn Kylfingur ársins bæði á PGA Tour og Evrópumótaröðinni. Það voru vonbrigði fyrir Rory fyrir 2 árum að hljóta ekki titilinn „nýliði ársins“ en í ár virðist erfitt að ganga framhjá Rory sem kylfingi ársins þar sem hann er nr. 1 á heimslistanum, hlaut 2. risamótstitil sinn á árinu og er efstur á peningalistum beggja mótaraða. Rory McIlroy og Tiger Woods eru meðal fimm kylfinga sem PGA Tour hefir tilnefnt til POY þ.e. kylfings ársins viðurkenningarinnar, en það eru leikmenn PGA Tour sem velja leikmann ársins. Hinir sem tilnefndir eru til PGA Tour „Kylfings ársins“ viðurkenningarinnar eru Brandt Snedeker, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 09:45

12 eftirminnilegustu golfhöggin 2012

Golf Digest hefir tekið saman lista með 12 eftirminnilegustu höggum ársins 2012. Þar gefur m.a. að finna högg Kyle Stanley á 18. holu Torrey Pines, á Farmers Insurance Open.   Pútt IK Kim á lokaholu Kraft Nabisco Championship.  Og svo er auðvitað albatross Louis Oosthuizen á 2. holu the Masters. Til þess að sjá í máli og myndum 12 eftirminnilegustu golfhöggin 2012 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 09:15

Matteo Manassero fer upp í 46. sætið á heimslistanum

Fyrir Barclays Singapore Open var Matteo Manassero í 85. sæti heimslistans. Vegna sigursins fer hann upp um 39 sæti í 46. sætið og er því að nýju orðinn einn af 50 bestu kylfingum heims. Staða efstu manna á heimslistanum er óbreytt: Rory er heimsins besti; í 2. sæti er Tiger Woods; í 3. sæti Luke Donald og í 4. sæti Lee Westwood. Síðan koma smávegis hreyfingar: Adam Scott fer úr 6. sætinu í 5. sætið og Louis Oosthuizen úr 10. sætinu í 6. sætið. Að sama skapi fellur Justin Rose úr 5. sætinu í 7. sætið og Jason Dufner úr 7. sætinu í 8. sætið. Brandt Snedecker situr sem fastast Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 13. 2012 | 09:00

Peter Hanson og Justin Rose sigra á Tyco Golf Skills Challenge

Enski kylfingurinn Justin Rose og sá sænski Peter Hanson sigruðu í gær í Tyco Golf Skills Challenge, þ.e. einskonar golfþrautakeppni á Breakers golfstaðnum í Palm Beach, Flórída. Rose og Hanson — liðsfélagar í sigurliði Ryder Cup — sigruðu þá Dustin Johnson and Keegan Bradley í keppni með  Reverse Scramble fyrirkomulagi á lokahringnum til að tryggja sér titilinnn. Allt var jafnt þannig að vippkeppni var látin skera úr um úrslitin. Vipp Hanson fór 2 fet og 10 þumlunga frá holu meðan Bradley vippaði 3 fet og 6 þumlunga frá. Önnur lið sem þátt tóku í keppninni voru  Zach Johnson og Kyle Stanley og Mark O’Meara og Mark Calcavecchia. Jafnframt var keppt í 6 þrautum: lengsta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 19:00

Hver er betri? Jesper Parnevik eða Heidi Klum… að dansa Gangnam Style?

Ofurmódelið og mamma „Germany´s Next Top Model“ Heidi Klum er sú nýjasta, sem dansar Gangnam Style. Það gerði hún í gær, þegar hún var kynnir við afhendingu MTV evrópsku tónlistarverðlaunanna (ens.: MTW European Music Awards) þar sem PSY, sem Heidi dansar með í myndskeiðinu hlaut verðlaun fyrir þennan geysivinsæla dans sinn.  Sjá má Heidi og PSY með því að SMELLA HÉR:  Ekki er langt síðan að Golf1 birti frétt af því að sænski kylfingurinn Jesper Parnevik ásamt fjölskyldu og nokkrum vinum af PGA Tour hefði gert myndband þar sem allir dansa Gangnam.   Það má sjá með því að SMELLA HÉR:  Spurningin er nú hvor eru betri Heidi Klum og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 14:00

GB: Golfklúbbi Borgarness veitt verðlaun fyrir bestan frágang lóðar við atvinnuhúsnæði

Laugardaginn s.l., 10.11.12 var haldinn Umhverfisdagur Borgarbyggðar. Á þeim degi voru m.a. eftirfarandi verðlaun og viðurkenningar veitt: 1. Fyrir bestan frágang lóðar við íbúðarhúsnæði. 2. Fyrir bestan frágang lóðar við atvinnuhúsnæði. 3. Fyrir snyrtilegasta bændabýlið. 4. Sérstök viðurkenning umhverfis- og skipulagsnefndar. Hamarsvöllur fékk loks verðskulduð verðlaun fyrir annan lið, þ.e. bestan frágang lóðar við atvinnuhúsnæði,  enda að verða náttúrperla í hjarta byggðarinnar. Það sannar heimsókn yfir tíuþúsunda golfara sem að keyrðu víðs vegar að á liðnu sumri til að njóta vallarins og umhverfisins. Flott aðdráttarafl fyrir byggðarlagið því þessir gestirnir vörðu 5-7 tímum á svæðinu og mjög oft voru einhverjir samferða þeim, sem ekki léku golf og notuðu því aðra Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jason Day – 12. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Jason Day. Hann er fæddur 12. nóvember 1987 og er því 25 ára í dag!!! Jason fæddist í Beaudesert í Ástralíu, en pabbi hans er ástralskur en mamma frá Filippseyjum. Hann gerðist atvinnumaður 2006 og hefir sigrað tvívegis  á ferli sínum sem atvinnumaður á HP Byron Nelson mótinu 23. maí 2010 og á Nationwide Tour: Legend Financial Group Classic 8. júlí 2007.  Eftirtektarverðast er þó góð frammistaða hans á risamótum golfsins þar hefir hann landað 2. sætinu tvívegis þ.e. á Masters 2011 (T-2) og á Opna bandaríska 2011. Sem stendur er Jason Day nr. 7 á lista yfir bestu kylfinga heims. Jason er kvæntur Ellie Harvey, frá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 10:15

LPGA: Stacy Lewis er kylfingur ársins – bandarískir kylfingar hafa unnið flest mót á LPGA 2012

Bandaríski kylfingurinn Stacy Lewis hlýtur Rolex Player of the Year Award þ.e. verðlaun fyrir að vera kylfingur ársins. Stacy er fyrsti bandaríski kylfingurinn til þess að vinna til verðlaunanna frá því að Beth Daniel vann þau fyrir 18 árum, þ.e. 1994. Eftir sigurinn á Mizuno Classic í síðustu viku fylgdi Stacy glæsileikunum eftir með 4. sæti á Lorena Ochoa Invitational. Hún fer í næsta mót með 53 punkta forystu umfram Inbee Park, sem er í 2. sæti. Fyrir 1. sæti í móti fást 30 punktar. Sigur Cristie Kerr í gær var 8. sigur bandarísks kylfings á LPGA á árinu og leiða Bandaríkin sem stendur hvað snertir flesta sigra á árinu, sbr.: 1- Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 09:15

Rory nr. 1 á peningalistum PGA Tour og Evrópumótaraðarinnar

Rory McIlroy frá Norður-Írlandi tryggði sér í gær 1. sætið á peningalistum beggja vegna Atlantsála þ.e. á PGA Tour og Evrópumótaröðinni, eftir að hafa náð 3. sætinu á Sentosa golfstaðnum í Singapore á Barclays Singapore Open mótinu. Þetta þótti óheyrt afrek aðeins fyrir ári síðan þegar Luke Donald afrekaði það fyrstur kylfingar, þá nr. 1 á heimslistanum, líkt og Rory er núna. McIlroy var á leið á Changi flugvöllinn þegar hann heyrði að hann væri sá yngsti til að leiða peningalistann í Evrópu í 32 ár eða allt frá því að Sandy Lyle var yngstur 1980 og  Seve Ballesteros á undan honum 1976. „Það er virkilega geysilega ánægjulegt að verða loks Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 08:00

Evróputúrinn: Matteo Manassero yngstur til að vinna 3 titla – nokkrar staðreyndir

Ítalski táningurinn Matteo Manassero varð í gær sá yngsti til að hafa sigrað í 3 mótum á Evrópumótaröðinni, eftir að hann sigraði glæsilega á Barclays Singapore Open á Sentosa golfstaðnum í Singapore.   Golf 1 hefir nýlega verið með kynningu á Matteo Manassero, sem sjá má með því að smella hér:   Manassero 1    Manassero 2  Manassero 3  Manassero 4   Manassero 5 Hér eru nokkrar staðreyndir um Matteo Manassero: • Þetta er þriðji sigur hans á Evrópumótaröðinni eftir 70 mót, sem hann hefir spilað í á Evrópumótaröðinni. • Með sigrinum fer hann í 13. sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar með verðlaunafé upp á  €1,493,688. Með þessu fer hann yfir €1 milljón markið á Lesa meira