Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 12:20

LPGA: CME Group gerir styrktarsamning við Brittany Lincicome

CME Group, aðalstyrktaðili lokamóts, LPGA CME Group Titleholders sem lauk 18. nóvember s.l. er að fjárfesta í LPGA, ekki viðburði, heldur einum leikmanna LPGA, þ.e. Brittany Lincicome, sem varð efst bandarískra kylfinga í mótinu þ.e. í 4. sæti. Forsvarsmenn fyrirtækjasamsteypunnar sögðust vilja auka skuldbindingu sína við kvennagolfið og tilkynntu um að styrktarsamningur hefði verið gerður við Brittany Lincicome. Samningsskilmálar voru ekki gefnir upp. Lincicome hefir sigrað 5 sinnum á LPGA ferli sínum og hefir unnið sér inn yfir $5 milljónir í verðlaunafé. Í fyrra tók hún þátt í 3. Solheim Cup keppni sinni f.h. Bandaríkjanna. „Að styrkja hvoru tveggja Brittany og LPGA… eykur útbreiðslu á vörumerki CME Group á alþjóðavísu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 11:30

Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 5 af 10) – Myndskeið af mávauppákomunni frægu á par-3 17. braut TPC Sawgrass

Sautjánda par-3 brautin á TPC Sawgrass, í Ponte Vedra, Flórída er einkennisbraut þessa, eins erfiðasta golfvallar heims, þar sem Players mótið fer fram á hverju ári og hún er meðal best þekktu par-3 brauta í heiminum.  Til marks um það er t.d. að NBC sjónvarpsstöðin er með 11 tökuvélar sem beinast að brautinni einni þegar Players mótið fer fram. Það sem er sérstakt er að slegið er á landfesta hálfeyju og „brautin“ í raun ekkert annað en hálfeyja, 24 metra löng flöt með sandglompu fyrir framan.  Hér er nákvæmni lykilatriðið, sem og góð lengdarstjórnun. Brautin var hönnuð 1980 af Pete og Alice Dye og er  132 yarda (121 metra) frá teig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 09:15

TPC Sawgrass og St. Andrews Old Course í mestu uppáhaldi hjá íslenskum kylfingum af erlendum golfvöllum

Golf 1 hefir nú á því rúma ári sem það hefir verið starfandi tekið yfir 100 viðtöl við íslenska kylfinga, þar af hafa 80 birtst.  Meðal fjölmargra spurninga sem Golf 1 hefir lagt fyrir íslenska kylfinga er hver sé uppáhaldsgolfvöllurinn erlendis. Nú hefir Golf 1 unnið úr svörum þessara 80 kylfinga, sem hafa fengið viðtöl sín birt. smá könnun og þá kemur í ljós að golfvöllur „vöggu golfíþróttarinnar“ St. Andrews Old Course er ásamt TPC Sawgrass golfvellinum í Flórída í mestu uppáhaldi af því 80 íslenskra kylfinga úrtaki sem könnunin tók til. Af 80 kylfingum sem spurðir voru sögðu 8 (10%) að Old Course St. Andrews væri í mestu uppáhaldi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 07:30

Luke Donald hrósar Rory fyrir peningatitlana tvo

Luke Donald finnst ekki að afrek hans um að verða sá fyrsti til að vera í 1. sæti peningalistanna beggja vegna Atlantsála, þ.e. á Evrópumótaröðinni og PGA Tour komist í hálfkvisti við það sem Rory McIlroy hefir afrekað í ár. „Fyrir 12 mánuðum kom ég hingað (til Dubai) og var að reyna að verða á toppi peningalista Evrópumótaraðarinnar með Rory á hælunum og með miklu meiri spennu í kringum atburðinn,“ sagði Luke Donald eftir að hann kom til Dubai í gær. „En nú í ár er Rory þegar búinn að tryggja sér titilinn.“ „Það sem Rory hefir gert í ár fær það sem ég gerði í fyrra til þess að sýnast Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 19:00

Lee Westwood, Louis Oosthuizen, Charl Schwartzel og Darren Clarke flytja til Old Palm

Kylfingarnir hans Chubby Chandler hafa flutt sig um set á heitasta golfstaðinn þessa stundina, Old Palm. Lee Westwood, Louis Oosthuizen, Charl Schwartzel og Darren Clarke munu allir gera Old Palm að heimavelli sínum skv. fréttatilkynningu frá golfklúbbnum og International Sports Management (ISM). „Við erum spenntir að bjóða Lee, Louis, Charl og Darren velkomna á Old Palm,“ sagði Timothy Bright, varaforseti Clarion Partners, sem er rekstraraðili/eigandi Old Palm. „Þessi hópur kylfinga á sín milli  3 risamótssigra, 80 sigra um allan heim og þeir gætu í raunallir  valið sér að búa hvar sem er í heiminum. Að ISM sé að velja sér Old Palm sem samastað í Norður-Ameríku er gríðarlegur heiður.“ Chandler, stofnandif Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingvi Rúnar Einarsson – 19. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Ingvi Rúnar Einarsson. Hann er fæddur 19. nóvember 1937 og á því 75 ára stórafmæli í dag!!! Ingvi Rúnar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og heldur úti samfélagssíðunni Kylfingar á Facebook. Ingvi Rúnar spilar mikið golf, gjarnan erlendis í golfferðum á ýmsum freistandi golfáfangastöðum og jafnt sumars sem um miðjan vetur á Íslandi. Eins er hann mjög góður púttari og hefir tekið þátt í mörgum púttmótum Golfklúbbsins Keilis, með góðum árangri. Ingvi Rúnar er kvæntur , á 3 börn og fjölda barnabarna. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan…. Ingvi Rúnar Einarsson (75 ára – Innilega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 11:30

Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 4 af 10)

Þrjár bestu sem af er bara í Bandaríkjunum? … og þær allar á linksurum í Kaliforníu?  Við höldum okkur um stund enn við Bandaríkin en svissum nú yfir í einn frægasta skógarvöll heims og yfir í annað ríki…. golfvöll Augusta National Golf Club í Georgíu, sem er mótsstaður the Masters risamótsins í aprílmánuði hvers árs. Á Augusta National eru allar fjórar par-3 brautir vallarins frægar og í heimsklassa…. en sú frægasta er „Golden Bell“ par-3 12. brautin í hinum fræga 3 brauta Amen Corner. Tólfta brautin (Golden Bell) er 155 yardar (142 metrar). Hún er líklega þekktasta par-3 brautin í öllu golfi. Skotmarkið er mjög þröngt, hin fræga á, Rae Creek Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 09:30

Daly verður sektaður fyrir kylfukast

John Daly er nú að skandalisera eina ferðina enn. Hann var mjög ósáttur við spilamennsku sína á móti helgarinnar á Evrópumótaröðinni, UBS Hong Kong Open og kastaði pútter sínum upp í tré. Jafnframt var Daly óánægður með áhorfendur sem voru eitthvað að pirra kappann með ljósmyndasmellum og farsímum, þegar hann þurfti að einbeita sér. Svo illa gekk að Daly komst ekki í gegnum niðurskurð. „Um stund var þetta komið úr böndunum – alger hneisa” tvítaði Daly. Mótsstjórinn, Mickael Ericsson, sagði að þetta með áhorfendurna yrði rannakað en það afsakaði ekki framferði Daly, sem yrði sektaður fyrir vikið. John Daly mistókst því miður að tryggja sér fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 08:00

Adam Scott slakar á eftir sigurinn á Opna ástralska

Það er hreinlega ekki annað hægt en að birta þessa mynd af kynþokkafyllsta karlkylfingi allra tíma og nú sigurvegara Talisker Australian Open að slaka á, á ástralskri strönd, eða réttar sagt sjónum við hana eftir sigurinn í gær. Það er svo innilega afslappandi að fara í sjóinn eftir sigur! Bara að hákarlar hafi nú ekki bitið  í uppáhaldskylfing margra! Scott er í alveg jafn kynþokkafullum sundstuttbuxum frá Aquascootum, fatalínu sinni enda er hann sjálfur ein besta auglýsing fyrir vörumerki sitt. En milljarða krónu spurningin er: Hvað skyldi Scott vera að hugsa um?


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 07:41

LPGA: So Yeon Ryu hlaut Rolex LPGA nýliðaverðlaunin og Inbee Park Vare Trophy

So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu hlaut Rolex nýliða verðlaun LPGA mótaraðarinnar. Hún á þegar að baki tvenn verðlaun á LPGA þrátt fyrir að vera nýliði í ár.  Þessi fallegi kóreanski kylfingur var enn á kóreönsku LPGA þegar hún sigraði á US Open kvenrisamótinu 2011 var 1 höggi á eftir löndu sinni Hee Kyung Seo  á lokaholunni en knúði fram umspil, sem hún vann síðan á 3. holu þegar hún fékk fugl. Í ár á nýliðaári sínu sigraði hún á Jamie Farr Toledo Classic. Inbee Park landa Ryu hlaut Vare Trophy sem veitt er fyrir lægsta meðaltalsskorið á LPGA. Árið á LPGA hefir verið Park gott því hún hefir halað inn 2 Lesa meira