Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 18:00
Bílafloti Rickie Fowler

Hér fyrir skemmstu sýndi Golf 1 skemmtilega auglýsingu Red Bull Kluge, svalt myndskeið þar sem einn af svölustu kylfingum á PGA Tour, Rickie Fowler kom fram ásamt nokkrum öðrum frábærum íþróttamönnum. Sjá með því að SMELLA HÉR: Aðdáendur Rickie Fowler vita að stráksi elskar mótorhjól og hraðskreiða bíla jafnvel eins mikið og golf. Hann varði síðustu helgi í Austin með Red Bull fólkinu á Formula 1 Grand Prix. Á mánudagskvöldið var Fowler að spjalla við nokkra aðdáendur á Twitter. Aðdáandi Fowler sem jafnframt er mikill bílaaðdáandi sagði að hann vissi að Fowler ætti Nissan GTR, Porsche 911 GT3RS og Cadillac Escalade og hann spurði hvort Fowler ætti einhverja aðra bíla í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 16:30
Asíutúrinn: Ernie Els og John Daly spila á CIMB Niaga Indonesian Masters 2013

Sigurvegari Opna breska 2012, Ernie Els og sleggjan og tvöfaldur risamótsmeistari John Daly hafa staðfest að þeir muni taka þátt í CIMB Niaga Indonesian Masters, 2013. Mótið fer fram dagana 2.-5. maí 2014 og verðlaunaféð er US$750,000. PT Bank CIMB Niaga Tbk (CIMB Niaga) styrkir mótið 2. árið í röð og hefir skuldbundið sig til þess að stuðla að þróun golfleiksins í Indónesíu. Els sagði eftirfarandi um þátttöku sína í mótinu í Indónesíu: „Allir, sem þekkja mig, vita að ég elska að spila í Asíu og ég er spenntur að snúa aftur til Indónesíu. Mér fannst reglulega gaman að spila á Balí fyrir mörgum árum og ég er viss um að það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 13:00
Martin Kaymer spilar á PGA Tour 2013

Ryder Cup hetjan Martin Kaymer er meðal síðustu, sem tilkynnt hefir að hann muni spila á bandaríska PGA túrnum næsta keppnistímabil, 2013. Eftir sigurinn á PGA Championship 2010 vildi Kaymer, sem nú er nr. 30 á heimslistanum, fyrst um sinn ekki spila í Bandaríkjunum, en nú hefir hann tilkynnt að hann ætli sér að nýta sér undanþágu sína sem hann hlaut við sigur á risamótinu í Whistling Straits og spila í Bandaríkjunum. Svínn Peter Hanson og Belginn Nicolas Colsaerts, tveir af liðfélögum Kaymer í Chicago í september s.l., spila líka á PGA Tour, þökk sé stöðu þeirra á peningalista PGA Tour og eins mun Englendingurinn David Lynn spila vestra þökk sé Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 11:00
Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 6 af 10)

Fimm af bestu par-3 holum í heiminum eru skv. þessari upptalningu í Bandaríkjunum. Nú vendum við okkar kvæði í kross og höldum í aðra heimsálfu, Afríku. Þar er ein þekktasta par-3 holan sú 19. á golfvelli Legend Golf & Safari Resort, í Entabeni Safari Conservatory, Limpopo sýslu, í Suður-Afríku. Hún er bæði hæsta og lengsta par-3 brautin í heiminum þ.e. teigurinn er í 400 metra hæð á Hanglip Mountain og brautin er 361 metra löng, þ.e. á við stutta par-5 braut. Eina leiðin til þess að komast upp á teig er með þyrlu og 1 milljón bandaríkjadala (u.þ.b. 120 milljónir króna) bíða fyrsta kylfingsins, sem nær holu í höggi á þessari hrikalegu holu, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 09:45
Íslenska atvinnumannaliðið í 21. sæti eftir 1. dag í Portúgal

Í gær hófst á Onyria Palmares golfsvæðinu í Portúgal PGA´s of Europe International Team Champs 2012, þ.e. Evrópukeppni atvinnumanna. Mótið stendur 20. – 23. nóvember 2012 og alls eru 25 lið sem taka þátt. Fyrir Íslands hönd taka þátt golfkennararnir Ingi Rúnar Gíslason,GK; Árni Páll Hansson, GR og Ólafur Hreinn Jóhannesson, GSE. Íslenska liðið lék á 17 yfir pari, 161 höggi í gær og deilir sem stendur 21. sætinu ásamt Tékkum. Í efsta sæti eru lið Englendinga og Skota, bæði á 7 undir pari, 137 höggum. Til þess að sjá stöðuna í heild eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 09:00
Graeme McDowell bað kærestu sinnar Kristin Stape á þyrlupalli Burj al Arab í Dubai

Ryder Cup stjarnan Graeme McDowell er í skýjunum eftir að hafa notað þyrlupall sem er í 200 metra hæð á 7-stjörnu Burj Al Arab hótelinu í Dubai til þess að biðja kærestu sinnar Kristin Stape. McDowell fór niður á hnén til þess að biðja hinnar 33 ára Stape sem sagði já við bónorði hans án þess að hika. Parið hefir þekkst í 2 1/2 ár allt frá því Stape var fengin til þess að vera innanhúshönnuður í hallarlíku heimili GMac í Orlandó. McDowell sagði að þetta hefði verið mjög tilfinningarík stund þegar hann bað Stape fyrir 1 degi síðan, en hann er búinn að vera í Dubai allt frá því hann hóf Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 23:59
Afmæliskylfingur dagsins: Thidapa Suwannapura – 20. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Thidapa Suwannapura. Suwannapura er fædd 20. nóvember 1992 og á því 20 ára afmæli í dag. Hún hefir þetta keppnistímabil spilað á LPGA, en sjá má nýlega kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bobby Locke, f. 20. nóvember 1917 – d. 9. mars 1987; Don January, 20. nóvember 1929 (83 ára); Ásta Guðríður Guðmundsdóttir, 20. nóvember 1972 (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!); Rahman Siddikur, 20. nóvember 1984 (28 ára) ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 18:00
Butler National GC meinar konum að gerast félagsmenn eftir atkvæðagreiðslu

Þrátt fyrir framfarirnar á Augusta National í þá átt að heimila konum félagsaðild, þá er a.m.k. enn einn virðulegur golfklúbbur, sem enn heldur dyrum sínum luktum fyrir kvenkyns félagsmönnum: Butler National GC. Skv. Chicago Tribune var haldin atkvæðagreiðsla í Butler National Golf Club – fyrsta sinnar tegundar í klúbbnum – og það samþykkt með miklum meirihluta að engum konum skyldi hleypt sem félögum í klúbbinn. Það þurfti 75% atkvæða til þess að breyta ákvæðum í klúbbreglum um að konum yrði leyfð félagsaðild. Aðeins 40% félagsmanna vildi heimila konum aðild. Butler National er í úthverfi Chicago og hefir lengi þótt líklegur til að verða fyrir valinu sem mótsstaður U.S. Open eða BMW Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 15:00
„Tveggja hanska“ Gainey sigraði á Pebble Beach Invitational

Tommy Gainey setti niður 3 feta fugl á 18. holu og spilaði lokahringinn á 3 undir pari, 69 höggum þegar hann sigraði s.l. sunnudag, Kirk Triplett og William McGirt á Pebble Beach Invitational. Gainey, sem nefnist „Tveggja hanska“ Gainey vegna svartra golfhanska sem hann er alltaf með á báðum höndum lauk keppni á samtals 11 undi pari, 277 höggum, þrátt fyrir að hafa verið 2 höggum á eftir forystumanni 3. hrings Robert Streg. „Ég horfði á skortöfluna og vissi að ég þarnaðist púttsins til þess að sigra,“ sagði Gainey, sem náði fyrsta sigri sínum á PGA Tour í síðasta mánuði þegar hann bar sigur úr býtum í McCladrey Classic með lokahring Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2012 | 14:30
Jamie Sadlowski skemmir golfhermi Golf Channel

Jamie Sadlowski, högglengsti kylfingur heims kom nýlega fram í þætti hjá Gary Williams þátttastjórnanda Morning Drive á Golf Channel golfsjónvarpsstöðinni bandarísku. Tilefnið var keppni þeirra Sadlowski og Williams en þeir ætluðu að reyna með sér hvort slægi lengra í golfherminum. Williams var búinn að vera nokkuð gífuryrtur um hæfni sína til að leggja Sadlowski í keppninni en…. keppnin tók snöggan endi. Sleggjan Sadlowski gerði sér nefnilega lítið fyrir og drævaði svo langt að golfhermirinn gaf upp öndina og golfkúlustórt gat kom á golfhermistjaldið!!! Svo mikill var krafturinn í högginu að boltinn endasentist í vegginn bakvið tjaldið og síðan tilbaka langt út í myndver!!! Sjón er sögu ríkari. Hér má sjá Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

