Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 19. 2012 | 07:00
LPGA: Na Yeon Choi sigraði á CME Group Titleholders

Na Yeon Choi sigraði á lokamóti LPGA, CME Group Titleholders. Choi lék á samtals 14 undir pari, 274 höggum (67 68 68 70). Hún átti 2 högg á þá sem varð í 2. sæti nýliða LPGA árið 2012, löndu sína So Yeon Ryu. Fyrir sigurinn fékk hún sigurtékka upp á hálfa milljón bandaríkjadala (u.þ.b. 60 milljónir íslenskra króna), sem er annað hæsta verðlaunaféð á LPGA. Henni ætti ekki að verða skotaskuld að kaupa sér stórt hús í Orlandó, en hún er að kaupa sér eitt slíkt þessa dagana! Til þess að sjá viðtal við NY Choi eftir sigurinn SMELLIÐ HÉR: ….. en þar kom m.a. fram að mamma hennar hefði verið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 20:30
Frægir kylfingar: Jane Seymour

Leikkonan Jane Seymour (sem heitir réttu nafni Joyce Penelope Wilhelmina Frankenberg) á eins og svo margar fallegar konur afmæli í febrúar, nánar tiltekið 15. febrúar 1951, sem þýðir að hún stefnir hraðbyri á 61. afmælisdaginn. Jane er fjórgift og á 4 börn: Katherine (1982) og Sean Flynn (1986) með eiginmanni nr. 3, David Flynn. Hún var 43 ára þegar hún reyndi aftur að eignast að eignast barn með eiginmanni nr. 4, James Keach og eftir 2 fósturlát eignaðist hún loks tvíburana Kris og John 1995, næstum 45 ára. Strákana sína nefndi hún eftir fjölskylduvinunum Christopher Reeves og Johnny Cash. Hún var Bond stúlkan árið 1973 í Bond-myndinni Live and Let Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 17:00
Sólskinstúrinn: Henrik Stenson sigraði á SA Open Championship

Sænski kylfingurinn Henrik Stenson er sigurvegari á SA Open Championship, sem er samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins suður-afríska. Spilað var á Serengeti golfvellinum í Suður-Afríku. Branden Grace lét m.a. hafa eftir sér að þetta væri mótið sem alla suður-afríska kylfinga dreymdi um að sigra á, enda næstelsta og eitt virtasta golfmót í heimi (fór af stað 1893); það elsta er Opna breska (1860). Þetta er fyrsti sigur Stenson í 5 ár á Evrópumótaröðinni og sá fyrsti síðan hann vann á PGA Tour fyrir 3 árum. Samtals lék Stenson á 17 undir pari, 271 höggi (66 65 69 71). Í 2. sæti varð heimamaðurinn George Coetzee, sem lenti í 2. sæti, 3 höggum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 14:30
Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 3 af 10)

Bestu par-3 holur heims eru þær skv. skilgreiningu hér sem sameina fallegt landslag og sérstakan erfiðleikastuðul, sem þarf að yfirstíga með getu eða góðri strategíu, þ.e.a.s. góðri leikáætlun. Allt þetta uppfyllir par-3 7. brautin á Pebble Beach Golf Links í Kaliforníu. Hún er líka sú par-3 holan, sem er sú mest ljósmyndaða í öllum heiminum og óteljandi listamenn hafa fest fegurðina á striga. Þetta er tiltölulega stutt hola og breytist ekkert á risamótum; aðeins 106 yarda eða m.ö.o. 97 metra. En… það er hrikaleg áskorun að hitta rennisleipa, frímerkisflötina með ekkert nema Kyrrahafið að baka til og tvær risasandglompur til beggja handa og ekkert til að stöðva bolta sem eru Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 12:25
Evróputúrinn: Miguel Ángel Jiménez sigraði á UBS Hong Kong Open

Spænski kylfingurinn Miguel Ángel Jiménez skrifaði sig í sögubækurnar en með sigri sínum á UBS Hong Kong Open í morgun, er hann varð elsti sigurvegari á Evróputúrnum. Hann er 48 ára, 10 mánaða og 13 daga gamall. Samtals lék Jiménez á 15 undir pari, 265 höggum (65 67 68 65). Lokahringur hans var einkar glæsilegur en hann skilaði „hreinu skorkorti“ með 5 fuglum og 13 pörum. „Þetta er mjög ljúft,“ sagði Jiménez m.a. þegar sigurinn lá fyrir. „Ég vona að þetta sé ekki sá síðasti (sigurinn).“ Í 2. sæti varð Svíinn Fredrik Anderson Hed og í því 3. Ástralinn Marcus Fraser. Skotinn Stephen Gallacher, ítalski táningurinn Matteo Manassero og Írinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jill Briles-Hinton – 18. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Jill Briles-Hinton. Jill er fædd 18. nóvember 1962 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Jill spilaði í bandaríska háskólagolfinu – var í liði University of Miami á árunum 1982-1986. Árið 1986 hlaut hún NCAA Academic All-America honors. Hún komst strax inn á LPGA, varð í 2. sæti á lokaúrtökumótinu 1986 og spilaði á LPGA í 10 ár þ.e. á árunum 1987-1998. Hún segir föður sinn ásamt Ed Oldfield hafa haft mest áhrif á golfferil sinn. Eftir að ferli hennar sem atvinnumanns lauk tók hún að sér stöðu golfþjálfara kvennaliðs University of Florida árið 1998. Árið 2010 var Jill ráðin þjálfari kvennaliðs Richmond eftir 12 ára farsælan Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 10:00
Adam Scott sigraði á Talisker Open

Það var Adam Scott sem sigraði á Talisker Australian Open og er það eflaust örlítil sárabót eftir að hafa glutrað niður sigurmöguleikanum á The Open s.l. sumar. Sigurskor Scott, var 17 undir pari, samtals 271 högg (67 70 67 67). Hann var á 67 höggum lokahringinn meðan helsti keppinautur hans Ian Poulter, sem leiddi fyrir lokahringinn spilaði á sléttu pari, 72 höggum og fékk m.a. 3 slæma skolla á seinni 9, sem gerðu út um leikinn. Ian Poulter var 4 höggum á eftir Scott í 2. sæti á samtals 275 höggum (67 72 64 72), sem hljóta að vera gríðarleg vonbrigði eftir glæsihringinn upp á 64 högg í gær. Hann sagði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 09:30
Japanska PGA: Luke Donald sigraði á Phoenix Dunlop mótinu

Nr. 3 á heimslistanum Luke Donald sigraði á Phoenix Dunlop mótinu í Phoenix Country Club í Miyazaki, Japan en þetta er í fyrsta sinn í 5 ár sem hann spilar á japanska PGA þ.e. hann hefir ekki tekið þátt í japönsku móti frá árinu 2007. Luke lék á samtals 16 undir pari 268 höggum (65 64 71 68) og átti 5 högg á næsta mann Hideki Matsuyama frá Japan, sem var á samtals 11 undir pari, 273 höggum (70 69 67 69). Fyrir sigurinn fékk Luke 40 milljónir yen (rúmlega 60 milljónir íslenskra króna). Spánverjinn Alvaro Quiros spilaði á samtals 8 undir pari varð T-6 og landi hans Gonzalo Fdez-Castaño, var á 6 undir pari (70 71 70 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 09:00
Sólskinstúrinn: Stenson enn í forystu eftir 3. hring á SA Open Championship

Sænski kylfingurinn Henrik Stenson er enn í forystu eftir 3. hring SA Open Championship þrátt fyrir harða atlögu að 1. sætinu frá George Coetzee, frá Suður-Afríku, sem átti glæsihring upp á 63 högg í gær. Stenson er samtals búinn að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum (66 65 69). Eftir hringinn sagði Stenson, sér mjög vel meðvitaður um glæsihring Coetzee: „Ég er enn í sömu stöðu jafnvel þó George (Coetzee) og Magnus (A. Carlson) séu að blása niður í hálsmálið á mér. Ég er enn í góðu formi fyrir lokahringinn.“ Coetzee og Svíinn Magnus A Carlson eru í 2. sæti, 3 höggum á eftir Stenson á 13 undir pari, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 18. 2012 | 08:30
LPGA: Na Yeon Choi í forystu fyrir lokahring CME Group Titleholders

Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu leiðir þegar aðeins á eftir að spila lokahringinn á lokamóti LPGA mótaraðarinnar, CME Group Titleholders nú í kvöld. NY Choi er búin að spila á samtals 12 undir pari, 204 höggum (67 68 69). Á 3. hring sínum á arnarvellinum í Twin Eagles Club í Naples, Flórída fékk Choi 4 fugla og 1 skolla. Þrátt fyrir þrípútt á 3. holu sem lauk í skolla tókst Choi að varna fleiri mistökum og sökkti m.a. 5 metra fuglapútti á par-3 17. brautinni til þess að ná ein forystunni. Það er sérstakur hvati þessa vikuna fyrir NY Choi að standa sig vel og helst ná 1. sætinu á Titleholders Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

