Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 21:15

Afmæliskylfingur dagsins: Emma Cabrera Bello – 22. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Emma Cabrera Bello. Emma er fædd 22. nóvember 1985 og á því 27 ára afmæli. Emma byrjaði að spila golf 5 ára og býr nálægt Maspalomas golfvellinum, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur. Hún er samt félagi í fínasta golfklúbbnum á Gran Kanarí: Real Club de Golf de Las Palmas, en völlur klúbbsins er byggður ofan í eldfjallagíg.  Meðal áhugamála afmælisbarnsins er lestur góðra bóka, að vera á skíðum hvort heldur svig eða vatns-, henni finnst auk þess gaman að fara í kynnisferðir til að kynna sér nýja staði sem hún ferðast til. Bróðir Emmu er Rafael, sem er sem stendur í Dubaí og spilar á Evrópumótaröðinni. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 20:30

Ísland „leynd perla“ sem golfáfangastaður – fær örn á stærstu golf-ferðakaupstefnu í heimi!

Á vef Iðnaðarráðuneytisins má finna eftirfarandi frétt: „Ísland hefur slegið í gegn sem áfangastaður fyrir erlenda golfáhugamenn. Á stærstu Golf-ferðakaupstefnu heims sem haldin var í Tyrklandi nýverið var Ísland valið einn af þeim sex golfáfangastöðum í heiminum sem töldust vera „Leyndustu perlurnar“. Það má því vera ljóst að þeir ferðamenn sem slá til og koma hingað með það að markmiði að koma golfboltunum sínum ofaní þar til gerða holu í sem fæstum höggum fá mikið fyrir sinn snúð. Vöxtur ferðaþjónustunnar á Íslandi hefur verið mikill og að jafnaði hefur fjöldi erlendra ferðamanna sem sækja Ísland heim tvöfaldast á hverjum 10 árum. Að baki þessari fjölgun liggur mikið nýsköpunarstarf í ferðaþjónustu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 13:00

Evrópumótaröðin: Luke Donald efstur í Dubai eftir 1. dag DP World Tour Championship

Það er enski kylfingurinn Luke Donald nr. 2 á heimslistanum, sem leiðir á DP World Tour Championship eftir 1. dag á Jumeirah Estate golfvellinum.  Sigurinn á Phoenix Dunlop í Japan í síðustu viku hefir væntanlega haft sitt að segja og Donald í mótinu fullur sjálfstrausts. Donald kom inn á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum. Skorkort hans var „hreint“ og einkar flott ekkert á því nema 7 fuglar og 11 pör. Donald sagði m.a að glæsihring sínum loknum: „Það var á ákveðnum kafla þar sem mér fannst mér ekki geta mistekist. Ég sló nokkur reglulega góð járnahögg og það er gaman þegar manni finnst allt auðvelt.“ Í 2. sæti er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 12:00

Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 7 af 10)

Í gær vorum við í Afríku nú snúum við til Evrópu og ein besta par-3 holan í heimsálfunni okkar er á Royal golfvellinum í Vale do Lobo í Portúgal. Hún á heiðurinn af því að vera mest ljósmyndaða par-3 hola í Evrópu. Reyndar er valið á „bestu“ par-3 holum í Evrópu erfitt, líkt og í Bandaríkjunum því það stendur milli svo margra frábærra hola. Það sem er sérstakt við þá 16. á Royal velli Vale do Lobo er að slegið er yfir klettagjá og ekki bara einhverja heldur rauðlitaða kletta þannig að sérhverjum Ástrala sem hana spilar finnst hann á einkar „heimilislegum“ stað. Útsýnið á sér vart líka, yfir rauða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 11:00

Nökkvi Gunnarsson varð í 7. sæti á The Davenport Classic – Glæsilegt!!!

Nökkvi Gunnarsson, NK, lék á The Davenport Classic mótinu, sem er mót á Florida Professional Golf Tour og náði þeim glæsilega árangri að verða í 7. sæti. Golf 1 óskar Nökkva innilega til hamingju!!! Mótið var tveggja daga og fór fram 20.-21. nóvember. Spilað var á Ridgewood Lakes golfvellinum í Flórída, sem m.a hefir verið valinn besti golfvöllur Bandaríkjanna af Golf Digest. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:  Samtals lék Nökkvi á 3 undir pari, 141 höggi (70 71) og hlaut $ 650 (82.000 íslenskar krónur) fyrir árangurinn. Nökkvi deildi 7. sætinu með Ty Harris og Jhared Hack, sem báðir eru frá Flórída. Í efsta sæti varð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 10:15

Íslenska atvinnumannaliðið í neðsta sæti eftir 2. dag í Portúgal

 Í gær spiluðu golfkennararnir Ingi Rúnar Gíslason,GK;  Árni Páll Hansson, GR og Ólafur Hreinn Jóhannesson, GSE, sem skipa íslenska atvinnumannaliðið 2. hring sinn á  Europe International Team Champs 2012. Mótið fer fram á Onyria Palmares golfsvæðinu og  stendur dagana 20. – 23. nóvember 2012. Alls eru 25 lið sem taka þátt. Það er skemmst frá því að segja að þegar mótið er hálfnað vermir íslenska liðið neðsta sætið ásamt liði Rússa er T-24. Samtals er liðið búið að spila á 30 yfir pari, 318 höggum (161 157). Tvö bestu skor hvers dags telja. Í efsta sæti þegar mótið er hálfnað eftir 2. dag er lið Skota á samtals 10 undir pari (eitthvað nískir á höggin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 10:00

Evróputúrinn: DP World Tour Championship hefst í dag í Dubai – bein útsending

Þá er loks komið að því, lokamótinu á Evrópumótaröðinni: DP World Tour Championship þar sem 60 efstu á peningalista Evrópumótaraðarinnar Race to Dubai, keppa sín á milli. Tíu efstu í mótinu hljóta auk verðlaunafjársins sérstakar bónusgreiðslur. Þannig að það er til mikils að vinna að vera með topp-10 árangur. Spilað er sem fyrr í Jumeirah Golf Estates í Dubai í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Bein útsending frá mótinu hefst einmitt núna kl. 10:00 en hana má sjá með því að SMELLA HÉR:  Til þess að fylgjast með skortöflunni og skori efstu manna SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 09:00

Hvert er hæsta skor atvinnumanns á stóru mótröðunum?

Þegar ég byrjaði í golfi fundust mér par-3 brautirnar yndislegar og skyldi ekki af hverju nokkur var að búa til skrímsla par-5 brautir.  Þá var 7-járnið eina vopnið og lengdin eitthvað um og undir 100 metra. Og svo var mikið af höggum sem fóru ekki alveg eins og þeim var ætlað… Eftir að tökum var náð á drævum með frábæra Nike Sumo drævernum, sem var með ferkantað kylfuandlit og ég hitti alltaf með þá urðu par-5 brautirnar allt í einu í uppáhaldi.  Það voru þær, sem oftar en ekki buðu upp á fuglafæri. Undarlegur viðsnúningur þetta – en eflaust ekkert einsdæmi. En í upphafi var ég oft að velta fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 07:00

Jónas Jónsson fór holu í höggi á Islantilla

Jónas Jónsson í Golfklúbbi Akureyrar (GA) fór holu í höggi á Islantilla á Spáni. Hann notaði 7 járn í draumahöggið.  Brautin er 142 metrar á lengd, flötin liggur aðeins hærra svo ekki sást í holuna frá teig. Jónas var að sjálfsögðu hoppandi glaður þegar kom í ljós að kúlan var í holunni að sögn eiginkonunnar Guðlaugar Óskarsdóttur, sem var með honum í hollinu. Þetta er í fyrsta sinn, sem Jónas fer holu í höggi. Golf 1 óskar við Jónas innilega til hamingju með  til draumahöggið!!! Heimild: gagolf.is  


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 21. 2012 | 23:59

Afmæliskylfingur dagsins: Alexandre Nardy Rocha – 21. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er brasilíanski kylfingurinn Alexandre Nardy Rocha. Hann er fæddur 21. nóvember 1977 og því 35 ára í dag. Hann spilar á bandaríska PGA, einn fárra Brasilíumanna.Golf 1 hefir nýlega verið með kynningu á afmæliskylfingnum, sem sjá má með því að  SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru:  Rebecca Flood, 21. nóvember 1988 (24 ára). Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is