GL: Þórður Emil endurkjörinn formaður GL – Hagnaður GL 12 milljónir
Í gær 27. nóvember 2012 fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Leynis.
Á fundinn mættu um 40 fundarmenn. Formaður GL las skýrslu stjórnar og gjaldkeri fór yfir helstu lykilstærðir í reikningnum, tekjur og gjöld.
Skýrslu stjórnar má sjá með því að SMELLA HÉR:
Á fundinum voru veittar viðurkenningar, Guðmundar og Ólafsbikarinn var veittur sjálfboðaliðum sem unnu við áhaldahúsið. Alfreð Alfreðsson veitti bikarnum móttöku fyrir hönd sjálfboðaliða.
Háttvísibikarinn GSÍ hlaut Friðrik Berg Sigþórsson, mestu forgjafar framför á árinu hlaut Halldóri Karvel Bjarnason og að lokum veitti formaður GL Valdísi Þóru Jónsdóttur viðurkenningu fyrir afrek hennar á liðnu ári.
Ella María Gunnarsdóttir fór yfir viðhorfskönnunina frá september og þjóðfundinn sem haldinn var í nóvember. Þessa könnun má sjá með því að SMELLA HÉR:
Formaður GL Þórður Emil Ólafsson var endurkjörinn sem og aðrir stjórnarmenn, auk formanns eru í stjórn Hannes Marinó Ellertsson, Tryggvi Bjarnason, Eiríkur Jónsson, Hörður Kári Jóhannesson og Ella María Gunnarsdóttir.
Á fundinum var samþykkt árgjald fyrir komandi starfsár. Fullt árgjald 71.000 kr., makagjald verði 41.500 kr. og gjald eldri borgara 41.500 kr. og námsmannagjald 41.500 kr. Fundi var slitið kl. 21:40.
Heimild: golf.is
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open