Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 14:00

Hættulegustu golfvellir heims (2. grein af 10)

The Louisiana State Penitentiary er stærsta háöryggis-fangelsið í Bandaríkjunum.  Það gengur líka undir nöfnunum „Alcatraz of the South“ eða bara „The Farm“. Þar eru vinnubúðir en líka er þar rekið útvarp og sjónvarpsstöð. Ofan á allt saman er 9 holu golfvöllur á lóð fangelsisins, ásamt fullkomnu æfingasvæði og klúbbhúsi og er almenningi heimill aðgangur fyrir greiðslu vallargjalds upp á $10 (u.þ.b. 1230 íslenskar krónur), sem þykja fremur lág vallargjöld í Bandaríkjunum. Völlurinn er 6000 yarda (u.þ.b. 5.500 metra),  par-72 – 9 holu eins og áður segir en með tvær teigastaðsetningar. Þeim föngum sem sýna af sér góða hegðun er heimilað að vinna við golfvöllinn, þar hljóta þeir kennslu í mismunandi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stephanie Kono – 27. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Stephanie Kono. Hún er fædd 27. nóvember 1989 og því 23 ára í dag. Hún er ein af nýju stúlkunum á LPGA í ár.  Golf 1 var með kynningu á henni sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Hisayuki Sasaki, 27. nóvember 1964 (48 ára);  Danielle Ammaccapane  27. nóvember 1965 (47 ára);  Adrienne Bernadet, 27. nóvember 1984 (28 ára);  Stephanie Kono, 27. nóvember 1989 (23 ára) …… og …… Ferðafélag Siglufjarðar (85 ára) Ragnheidur Arngrímsdóttir Þráinn Bj Farestveit (48 ára) Helgi Steinar Johannsson Helmut Müller (39 ára) Neglur Og Fegurð Eva (28 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 10:10

PGA: Högg ársins nr. 10 – frábær fugl Phil Mickelson – nr. 9 æðislegt aðhögg Rickie Fowler – myndskeið

PGA Tour velur í lok ár hvers bestu höggin á  mótaröðinni á því ári sem er að líða.  Nú er aftur komið að þeim tíma ársins þar sem höggin góðu eru rifjuð upp. Nr. 10 er fugl Phil Mickelson, sem hann fékk á 2. hring HP Byron Nelson mótsins.  Nr. 9 er frábært aðhögg Rickie Fowler á Wells Fargo mótinu, fyrsta mótinu sem Rickie vann á PGA mótaröðinni. Til þess að sjá frábæran fugl Phil Mickelson SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá aðhögg Rickie Fowler á Wells Fargo mótinu  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 10:00

Tekst Lee Westwood að heilla áhorfendur í titilvörn sinni á Thailand Golf Championship í næsta mánuði?

Tekst Lee Westewood að heilla áhorfendur upp úr skónum þegar hann hefur titilvörn sína á Thailand Golf Championship, móti á Asíutúrnum, nú í næsta mánuði – nánar titltekið 6.-9. desember n.k.? Á síðasta ári var hann að daðra við skor upp á 59 í mótinu og eitt er víst að nr. 6 í heiminum myndi gjarnan þiggja svipuð skor á mótinu. Lee var svo til búinn að tryggja sér sigur í mótinu í fyrra, þó hann hefði aðeins spilað 2 hringi í Amata Spring Country Club s.l. desember, með hringjum upp á 60 og 64 en þar jafnaði hann 20 undir par met Asíutúrsins á 36 holum og var með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 09:00

Nafn til að leggja á minnið: Jake Higginbottom

Ástralski táningurinn Jake Higginbottom hefir ákveðið að gerast atvinnumaður eftir sigur sinn á New Zealand Open s.l. sunnudag. Vert er að leggja nafn þessa drengs á minnið, en honum er spáð miklum frama í golfíþróttinni. Higginbottom, 19 ára, vann mótið sem haldið var í  Clearwater golfklúbbnum, sem er rétt fyrir utan  Christchurch á Nýja-Sjálandi með 1 höggi, og lauk kepni á 5 undir pari, 67 höggum og varð þar með fyrsti áhugamaðurinn til þess að sigra í mótinu allt frá því landa hans Harry Berwick  tókst það árið 1956. Með sigrinum hlýtur  Higginbottom 2 ára undanþágu til þess að keppa á  OneAsia og Ástralasíu PGA túrunum, og sigurinn tryggir honum jafnframt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 08:00

Dave Pelz segir að 2013 gæti orðið besta ár Phil Mickelson

Phil Mickelson verður 43 ára á næsta ári en þjálfari hans í stutta spilinu, Dave Pelz, segir að Mickelson gæti átt besta ár ferils síns enn framundan. Við kynningu á bók sinni „Dave Pelz´s Putting Games,“ sagði Pelz að Mickelson væri að slá boltann betur en nokkru sinni árið 2012 og það væri bara púttin sem héldu aftur af honum. „Í ár hafið þið e.t.v. tekið eftir að  [Mickelson] var að gera tilraunir með púttin sín. Hann hefir verið að gera þetta vegna þess að stutta spilið hans er það besta í heimi og það er það besta hingað til og drævin hans eru betri en þau hafa verið. Þau eru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 07:30

GL: Aðalfundur fer fram kl. 19:30 í Golfskálanum

Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis á Akranesi fer fram í dag kl. 19:30 í Golfskálanum á Akranesi. Hefðbundin aðalfundarstörf skv. 8. gr. laga Golfklúbbsins Leynis.


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2012 | 20:15

Tár trúðsins – Christina Kim þunglynd (4. grein af 8)

Hér verður haldið áfram með lauslega þýðingu á ágætis grein Stinu Sternberg hjá Golf Digest Women, en þar er til umfjöllunar þunglyndi meðal toppklassa kylfinga og viðtal við Christinu Kim, sem nýlega greindist með þunglyndi.  Það kemur eflaust mörgum á óvart að hin hressa Christina Kim, sem alltaf geislar af, skuli vera þunglynd.  Það sýnir einfaldlega að allir geta orðið þunglyndir. Hér fer 4. hluti greinarinnar: „Á síðasta vori, talaði LPGA leikmaðurinn Lindsey Wright frá Ástralíu opinberlega um 4 ára baráttu sína við þunglyndi.  Wright líkt og Daly telur sjálfa sig heilbrigðari nú en nokkru sinni, þökk sé meðferðinni sem hún hlaut hjá geðlækni. „Geðveiki er ekki eitthvað sem unnið er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2012 | 18:00

Afmæliskylfingur: Chris Wood – 26. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Christopher James Wood (alltaf kallaður Chris). Hann er fæddur 26. nóvember 1987 í Bristol, Englandi og er því kvart úr öld í dag!!! Chris var í Golden Valley Primary School í Nailsea frá 4-11 ára aldurs, áður en hann byrjaði í Backwell skólanum. Hann byrjaði í golfi mjög ungur, en hafði á þeim tíma alveg jafnmikinn áhuga á fótbolta og stefndi alltaf á að spila með Bristol City Football Club. Hann var félagi í the Long Ashton Golf Club nálægt Bristol 9 ára gamall og við 12 ára aldurinn var forgjöf hans orðin eins-stafs. Chris Wood sigraði English Amateur Order of Merit árin 2007 og 2008. Hann gerðist atvinnumaður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 26. 2012 | 17:00

Heimslistinn: Justin Rose kominn í 4. sæti – hefir aldrei náð svona hátt

Justin Rose stóð sig stórglæsilega í gær á lokahring Dubai World Tour Championship, setti nýtt, flott vallarmet: 62 högg, sem hann á einn og náði 2. sætinu í þessu lokamóti Evrópumótaraðarinnar. Það hafði svo sannarlega áhrif á stöðu Rose á heimslistanum því hann fer upp um heil 3 sæti á topp 10, sem gerist ekki alla daga: þ.e. fer úr 7. sætinu  í 4. sætið!!!! Rory McIlroy tryggir sig svo um munar í 1. sætinu og situr sem fastast þar – nú munar 4,32 stigum á honum og Luke Donald, sem nefþjáður varð T-3 á mótinu í Dubai. Adam Scott heldur  5. sæti sínu á heimslistanum, en Lee Westwood er Lesa meira