Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 13. 2012 | 07:00

LEK: Guðjón Sveinsson nýr formaður LEK – Henrý Gränz hlaut gullmerki GSÍ

Aðalfundur LEK var haldinn í golfskála GR sunnudaginn 2. desember og fóru þar fram venjuleg aðalfundarstörf. Formaður stjórnar, Henrý Gränz flutti skýrslu stjórnar og lagður var fram endurskoðaður ársreikningur fyrir síðasta starfsár. Uppstillingarnefnd lagði fram tillögur um nýja stjórnarmenn og voru þeir sjálfkjörnir. Þar sem nokkrir úr fyrri stjórn gáfu ekki kost á sér til endurkjörs var um töluverðar breytingar að ræða. Nýr formaður var kjörinn Guðjón Sveinsson og aðrir í stjórn þau Margrét Geirsdóttir (kjörin til tveggja ára), Magnús Hjörleifsson, Tryggvi Þór Tryggvason og Gunnar Árnason sem var kjörinn 2011 til tveggja ára. Í varastjórn voru kjörin þau Elías Kristjánsson og Rut Marsibil Héðinsdóttir. Úr stjórn gengu Henrý Gränz, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 23:59

Hver er kylfingurinn: Ben Hogan? (7/9) 12. grein af 24 um „The Match“

Hér verður fram haldið kynningu á  einni af 4 aðalsöguhetjum í bók Mark Frost: “The Match – The day the game of golf changed forever.”    Ben Hogan var annar af 2 atvinnumönnunum (hinn var Byron Nelson) sem kepptu við tvo áhugamenn í fjórleik (þ.e. Ken Venturi og Harvie Ward sem þegar hafa verið kynntir til sögunnar) vegna veðmáls milljónamæringanna Eddie Lowery og George Coleman, árið 1956, en Eddie taldi að enginn gæti sigrað tvo starfsmenn sína, áhugamennina Venturi og Ward í fjórleik.  Coleman tók veðmálinu og mætti með þá Ben Hogan og Byron Nelson, sem er líkt og hann hefði mætt með Rory McIlroy og Luke Donald til að keppa við einhverja áhugamenn í dag. Kynningin á Ben Hogan er nokkuð löng (í 9 hlutum) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 18:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2013: Michael Jonzon (11. grein af 28)

Næstir í röðinni af þeim sem kynntir verða hér eru þeir 4 eða réttara sagt 3 sem urðu í 16. sæti í lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór í Girona, á Spáni  24. -29. nóvember 2012. Einn af þeim sem varð í 16. sæti hefir þegar verið kynntur þ.e. Daninn Morten Örum Madsen sem náði þeim frábæra árangri að verða T-4 á 1. móti sínu á Evrópumótaröðinni 3 dögum eftir að hann lauk keppni í Q-school, þ.e. á Nelson Mandela Championship í Suður-Afríku. Hinir 3 sem urðu í 16. sæti í Q-school voru Chris Lloyd, Michael Jonzon og David Higgins. Við byrjum að kynna Michael Jonzon. Michael fæddist 21. apríl Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 16:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Irene Cho (8. grein af 27)

Næstu daga verða þær 4 stúlkur kynntar sem voru svo heppnar að halda lengst út í 7 stúlkna bráðabana á lokaúrtökumóti LPGA, um hverjar myndu hljóta síðustu 4 sætin af  efstu 20 en allar urðu þessar 7 jafnar í 17. sæti.  Þær heppnu sem hlutu 17.,18., 19. og 20. sætið voru Irene Cho, Taylore Karle, Nicole Jeray og Lauren Doughtie, allar frá Bandaríkjunum.  Lokaúrtökumótið fór fram 28. nóvember – 2. desember 2012. Í dag verður Irene Cho kynnt. Irene fæddist 10. ágúst 1984 í La Habra, Kaliforníu og er því 28 ára. Hún byrjaði að spila golf 11 ára. Innan nokkurra ára varð hún besti kylfingurinn á Unglingamótaröð Bandaríkjanna sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 14:15

Florida Professional Golf Tour: Engu munaði að Nökkvi næði í gegnum niðurskurð á Eastwood

Nökkvi Gunnarsson, NK, spilar á Flórída Professioanl Golf Tour. Hann tók dagana 10.-11. desember þátt í móti í Eastwood Golf Club í Orlando, Flórída þar sem þátttakendur voru 44. Aðeins efstu 15 hlutu peningaverðlaun. Nökkvi var jafn 3 öðrum í 19. sæti og munaði aðeins 2 höggum að hann kæmist í gegnum niðurskurð. Nökkvi lék á samtals 146 höggum (74 72).  Á 5. holu var skinnaleikur sem Nökkvi vann ásamt 5 öðrum á 2. degi mótsins og hlaut að launum $ 11.67. Síðasta mótið í desember á Florida Professional Golf Tour fer fram n.k. helgi þ.e. 15.-16. desember 2012. Til þess að sjá úrslitin á mótinu í Eastwood Golf Club Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 13:00

Golfbrelluhögg 11 ára stráks – myndskeið

Hér er svöl golfbrella sem Daulet Tuleubayev – 11 ára strákur frá Kazakhstan sýnir. Það má alveg reyna að leika hana eftir – passið bara að meiða ykkur ekki!!! Þessu myndskeiði var hlaðið inn á You Tube fyrir 2 árum næstum upp á dag – en það stendur alveg fyrir sínu enn!!! Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Sveinsson – 12. desember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Benedikt Sveinsson. Benedikt er fæddur 12. desember 1994 og því 18 ára í dag.  Athuga skal að þessi afmælisdagur er nokkuð sérstakur – það er 12.12.12 og afmælisfréttin birtist kl. 12!!!!  Benedikt er afrekskylfingur í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Hann spilaði á Unglingamótaröð Arion banka sl. sumar með góðum árangri; varð m.a. í 2. sæti á 1. mótinu upp á Skaga; hann varð í 3. sæti á 2. mótinu á Þverárvelli að Hellishólum; hann varð í 12. sæti á 2. mótinu í Korpunni; Benedikt varð í 9. sæti á Íslandsmótinu í höggleik; Benedikt var efstur þeirra sem komust í 16 manna úrslitin í  Íslandsmótinu í holukeppni, en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 11:00

Slegið af toppi World Trade Center í NY með TaylorMade R11 TP dræver

Á facebook síðu TaylorMade gefur að líta svakalega mynd, sem eflaust er ágætis auglýsing fyrir golfkylfuframleiðandann vinsæla. Um 4400 manns hafa þegar „like-að“ myndina. Komast má á facebook síðu TaylorMade með því að SMELLA HÉR:  Við myndina stendur stendur: „Besta jólagolfkortið. Við þökkum TaylorMade aðdáandanum Kevin Sabbagh fyrir að senda okkur þessa ótrúlegu mynd af sér þar sem hann sést sveifla R11 TP dræver á toppi World Trade Center 1 í New York City.“ Spurning hvar boltinn lenti? Ofan á þyrlupalli næsta þaks eða í götunni fyrir neðan? Ekki gott að fá golfkúlu í sig úr svona mikilli hæð og spurning hvort það leiði ekki til skaðabótaskyldu verði einhver eða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 09:30

NGA: Ólafur Lofts á 69 og Alexander Gylfa á 73 höggum eftir 1. dag í Disney – Lake Buena Vista mótinu

Ólafur Björn Loftsson, NK og Alexander Gylfason, GR taka þátt í 7. móti NGA Pro Golf Tour – Bridgestone Winter Series.  Að þessu sinni er spilað í Disney – Lake Buena Vista, í Flórída. Mótið hófst í gær en það stendur 11.-13. desember.  Þátttakendur eru 113 og aðeins 40 fara í gegnum niðurskurð og fá að spila 3. og síðasta hring mótsins til fjár. Fyrsti hringurinn var spilaður í gær. Ólafur Björn lék á 3 undir pari, 69 höggum, fékk 1 glæsiörn, 4 fugla, 10 pör og 3 skolla.  Hann deilir sem stendur 28. sætinu og með góðum hring í dag ætti hann að komast í gegnum niðurskurð. Alexander  spilaði á 1 yfir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 12. 2012 | 09:00

25 helstu golffréttir ársins 2012

Hverjar skyldu nú vera helstu golffréttir ársins 2012? Skyldu það vera kaup Trump á Doral í Flórída á árinu eða allt fjaðrafokið í Skotlandi vegna opnunar hans á Trump International golfklúbbnum nálægt Aberdeen? Er það þátttaka Bill Clinton fyrrverandi Bandaríkjaforseta í fyrrverandi Bob Hope Classic mótinu, sem nú heitir Humana Challenge? Eru það nýju kylfingarnir sem stigið hafa fram í fremstu raðir á árinu s.s. Lydia Ko, Stacy Lewis, Jason Dufner, Brandt Snedeker eða allur uppgangur Rory McIlroy? Er það hrun Adam Scott á Opna breska eða sigur Ernie Els í því móti eða það að Augusta National hafi opnað dyr sínar fyrir fyrstu tveimur konunum? Dæmið sjálf. Golf Digest Lesa meira