Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 10. 2013 | 13:45

GSG: Golfbúðin Janúarmót GSG nr.1 nk. laugardag 12. janúar 2013

Næstkomandi laugardag 12. janúar 2013 verður haldið „Golfbúðin Janúarmót GSG Nr. 1″ og fer það fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði.

Keppnisfyrirkomulagið er punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Ræst verður út bæði á 1. og 10. teig, til þess að ná sem flestum út sem fyrst, sem nauðsynlegt er meðan sól er enn svo lágt á lofti sem raun ber vitni og dagurinn en lengri en nóttin.

Veitt eru 1 verðlaun fyrir besta skor án forgjafar:  15.000 kr gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði og þrenn verðlaun fyrir flesta punkta með forgjöf þ.e.:

1 sæti 15.000 kr Gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði.

2 sæti 7.500 kr Gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði.

3 sæti 5.000 kr Gjafabréf í Golfbúðinni Hafnarfirði.

Nándarverðlaun verða veitt á 17. braut.

Þátttökugjaldið er 2.500 krónur og eru súpa og brauð innifalin.   Mætum öll í Sandgerði á laugardaginn!!!

Til þess að skrá sig í mótið SMELLIÐ HÉR: