
Evróputúrinn: Thongchai Jaidee efstur í Durban eftir 1. dag Volvo Golf Champions
Það er thaílenski kylfingurinn Thongchai Jaidee, sem er í efsta sæti eftir 1. dag Volvo Golf Champions, sem hófst í dag í Durban í Suður-Afríku. Í mótinu taka aðeins þátt sigurvegarar á Evrópumótaröðinni á síðasta ári og þeir sem unnið hafa 10 eða fleiri mót á mótaröðinni.
Mótið stendur dagana 10.-13. janúar 2013.
Jaidee, kom í hús á 7 undir pari, 65 höggum – fékk 8 fugla, 9 pör og 1 skolla í dag.
„Mér finnst þetta skemmtilegur völlur,“ sagði Jaidee eftir hringinn í dag. „Maður verður að hugsa mikið – ég sló aðeins 2 sinnum með drævernum og setti 3-járnið í pokann aðeins 15 mínútum áður en ég tíaði upp.“
Í 2. sæti, 3 höggum á eftir Jaidee eru „heimamennirnir“ Ernie Els og Louis Oosthuizen, báðir á 4 undir pari, 68 höggum.
Sjö kylfingar deila síðan 4. sætinu á 3 undir pari: Jeev Milkha Singh, Danny Willett, Richie Ramsay, Jamie Donaldson, Paul Lawrie, Scott Jamieson og Thomas Björn.
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Volvo Golf Champions SMELLIÐ HÉR:
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)