Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2013 | 11:00

McGinley þakkar McIlroy fyrir stuðninginn

Paul McGinley þakkaði landa sínum Rory McIlroy, nr. 1 á heimslistanum í golfi í gær, fyrir stuðninginn og hlut hans í því að hann var valinn fyrirliði liðs Evrópu í Ryder bikarnum 2014. McGinley sagði m.a.: „Maður verður auðmjúkur og þetta er vika (Ryder Cup vikan 2014) sem ég hlakka virkilega til. Ég vissi að ég átti stuðning leikmannanna – ekki bara Rory.“ „Ef Rory kemst ekki í liðið af eiginn sjálfsdáðum, þá á hann góða möguleika á að vera val fyrirliðans núna!“ grínaðist McGinley. Í viðtali sem tekið var við Rory sagði nr. 1 á heimslistanum m.a.:„Mér er sama þó við séum í Davíð og Golíats stöðu hvað varðar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2013 | 10:27

Rory telur að tvít sín hafi haft nokkur áhrif á að McGinley fékk fyrirliðastöðuna – Myndskeið

Rory McIlroy telur að stuðningur sinn og tvít  hafi haft nokkur áhrif á það að Paul McGinley fékk fyrirliðastöðuna í liði Evrópu í Ryder Cup 2014. En hann var líka fljótur að bæta við að það hafi ekki bara verið stuðningi sínum að þakka heldur einnig flestra annarra leikmanna í kraftaverkaliðinu í Medinah; mönnum á borð við Ian Poulter, Luke Donald, Graeme McDowell og Justin Rose. Það að svo margir leikmenn frá því í Medinah 2012 og sem líklega verða líka með í næsta Ryder Cup liði Evrópu 2014 lýstu svo eindregnum stuðningi við einn frambjóðanda í fyrirliðastöðuna hefir opnað á umræður um hvort liðsmenn eigi ekki í framtíðinni að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2013 | 10:00

McGinley g. Watson – Viðureign Davíðs og Golíat?

Breska dagblaðið The Sun birti ágætis grein í gær þar sem fram kemur að Paul McGinley viðurkenni að viðureign hans við Tom Watson megi líkja við golflega viðureign Davíðs við Golíat. Nývalinn fyrirliði Ryder Cup liðs Evrópu viðurkennir að ferill sinn sé veigalítill í samanburði við feril bandarísku golfgoðsagnarinnar Tom Watson. McGinley, 46 ára, hefir t.a.m. aldrei verið meðal 5 efstu í risamótum meðan Watosn hefir sigrað 8 sinnum, þ.á.m. 5 sinnum á Opna breska. Og 4 sigrar Írans (McGinley) blikna við hlið 70 sigranna sem Watson hefir í beltinu. En báðir eru ósigraðir í Ryder bikarnum, þar sem McGinley á sína frægustu stund, þegar hann setti niður sigurpúttið á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2013 | 03:00

Tom Watson óskar Paul McGinley til hamingju með fyrirliðastöðuna

Fyrirliði Bandaríkjamanna, Tom Watson,  óskaði nýkjörnum fyrirliða liðs Evrópumanna í Ryder bikarnum, Paul McGinley, til hamingju í gærkvöldi með útnefninguna sem fyrirliði. Flestir voru hissa á vali Bandaríkjamanna á Watson sem fyrirliða, en Bandaríkjamenn eru ákveðnir í að hefna ófaranna í síðustu Ryder bikarkeppni, á heimavelli Evrópumanna í Gleneagles, Skotlandi, 2014. Þar sem val Bandaríkjamanna var „stórt nafn“ hálfgerð golfgoðsögn (Watson) þá varð það til þess að  Colin Montgomerie kom til tals sem fyrirliði, sem maður sem ekki mundi visna við hlið Watsons.  Hinir sem orðaðir voru við fyrirliðastöðuna voru Skotinn Paul Lawrie og Norður-Írarnir Paul McGinley og Darren Clarke en sá síðastnefndi dró sig þó fljótt úr kapphlaupinu um Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 19:19

Hver er kylfingurinn: Paul McGinley?

Nú rétt í þessu var Paul McGinley valinn fyrirliði liðs Evrópumanna í Ryder bikarnum, sem mætir liði Tom Watson í Gleneagles, í Skotlandi, 2014. En hver er kylfingurinn Paul McGinley? Paul McGinley fæddist 16. desember 1966 í Dublin á Írlandi og er því nýorðinn 46 ára. Hann býr í Sunningdale á Englandi. McGinley gerðist atvinnumaður í golfi 1991 þ.e. fyrir 22 árum.  Á ferli sínum hefir hann sigrað alls 9 sinnum, þar af 4 sinnum á Evrópumótaröðinni.  McGinley er frægastur fyrir að setja niður 3,5 metra sigurpútt Evrópumanna í Ryder bikarnum 2002 þegar hann bar sigurorð af Jim Furyk á Belfry.  Hér má sjá myndskeið þar sem Paul McGinley tjáir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 18:50

Paul McGinley er nýr fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu 2014

Það var tilkynnt nú fyrir skemmstu að Paul McGinley hefði verið valinn fyrirliði Ryder bikarsliðs Evrópumanna, 2014. Paul McGinley er 46 ára, fædudur 16. desember 1966.  Hann bar sigur af Colin Montgomerie í atkvæðagreiðslu leikmannanefndar Evrópumótaraðarinnar, sem fundað hefir um veitingu fyrirliðastöðunnar í Ryder bikarnum 2014, í Abu Dhabi í dag. McGinley er fyrsti Írinn til að gegna fyrirliðastöðu í Ryder Cup. McGinley hlaut stuðning einhverra stærstu nafnanna í Ryder bikars kraftaverksliði Evrópumanna 2012 í Medinah; þ.e. frá nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy, fv. nr. 1 á heimslistanum Luke Donald, Ian Poulter, Graeme McDowell og Justin Rose, eins og Golf 1 greindi frá í dag. Darren Clarke var búinn að draga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 17:00

Rory vakti til að horfa á kærestuna sigra

Flestar fréttir í dag og gær virðast vera af nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy.  Hér er ein í viðbót.  Rory fór seint að sofa í gær, sem hafði svolítið að gera með viðhafnaratburðinn sem Nike Golf stóð, fyrir þar sem opinberlega var tilkynnt um nýjasta liðsfélaga Nike, Rory. Á eftir viðburðinn í gær í Abu Dhabi sem líktist helst flottum útitónleikum, fór Rory upp á hótel og horfði langt fram á nótt kærestu sína, Caroline Wozniacki vinna fyrstu umferð sína í Australian Open, í þremur settum. „Henni finnst gaman að spila 3 sett,“ sagði syfjaður Rory  í morgun í Abu Dhabi Golf Club. „Þetta er erfitt en mér fannst bara Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 16:15

Neyðarleg mynd af Tiger og Rory?

Tiger Woods og Rory McIlroy eru alveg við það að hefja keppnistímabil sín 2013 í Abu Dhabi. Mikið hefir verið gert úr því að það ríki heilmikil samkeppni milli þeirra og vinskapurinn sé aðeins á yfirborðinu. Báðir keppast við að bera slíkar sögusagnir tilbaka – það sé í alvöru allt í góðu milli þeirra. Báðum voru greiddar óheyrilegar upphæðir fyrir það eitt að mæta í Abu Dhabi.  Þess vegna verða þeir að taka þátt í allskyns skrípalátum sem styrktaraðilarnir standa fyrir. Jay Yarow blaðamanni Business Insider finnst meðfylgjandi mynd t.a.m. afar neyðarleg af þeim félögum (eða með hans orðum á ensku (as goofy and embarrassing as it gets. We’re not Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Erlingsdóttir – 15. janúar 2013

Það er Ellý Erlingsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ellý fæddist 15. janúar 1962. Ellý er í Golfklúbbnum Keili og þar að auki mikill FH-ingur. Hún er fyrrum bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Ellý er gift Emil Lárus Sigurðssyni, lækni og eiga þau 3 börn: Erling Daða, Guðrúnu og Kristján Gauta Emilsbörn. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Ellý til hamingju með afmælið hér að neðan: Ellý Erlingsdóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Howard Allen, 15. janúar 1949 (64 ára);  Ted N Tryba, 15. janúar 1967 (46 ára); og  Will Strickler, 15. janúar 1986 (27 ára)… og…. Y.E. Yang  (á kóreönsku: 양용은 ) 15. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 12:30

Kaffi með kameldýri

Eftir nokkra stormasama daga í Abu Dhabi þá er Rory McIlroy tilbúinn að hefja 2013 keppnistímabilið í Abu Dhabi HSBC Golf Championship, sem hefst ekki á morgun heldur hinn. Þetta er fyrsta mótið fyrir efsta mann stigalista Evrópumótaraðarinnar og eins fyrsta mótið sem hann spilar með nýju Nike kylfunum sínum eins og allir golffréttavefir heimsins hafa gert skilmerkilega grein fyrir. Í þeim 5 skiptum sem Rory hefir tekið þátt í Abu Dhabi HSBC Golf Championship hefir hann ekki orðið neðar en í 11. sæti og hefir tvívegis orðið í 2. sæti; þ.e. á eftir Martin Kaymer 2011 og Robert Rock 2012.  Reyndar hafa síðustu 19 hringir hans verið par eða betra og Lesa meira