Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 15. 2013 | 16:15

Neyðarleg mynd af Tiger og Rory?

Tiger Woods og Rory McIlroy eru alveg við það að hefja keppnistímabil sín 2013 í Abu Dhabi.

Mikið hefir verið gert úr því að það ríki heilmikil samkeppni milli þeirra og vinskapurinn sé aðeins á yfirborðinu. Báðir keppast við að bera slíkar sögusagnir tilbaka – það sé í alvöru allt í góðu milli þeirra.

Báðum voru greiddar óheyrilegar upphæðir fyrir það eitt að mæta í Abu Dhabi.  Þess vegna verða þeir að taka þátt í allskyns skrípalátum sem styrktaraðilarnir standa fyrir.

Jay Yarow blaðamanni Business Insider finnst meðfylgjandi mynd t.a.m. afar neyðarleg af þeim félögum (eða með hans orðum á ensku (as goofy and embarrassing as it gets. We’re not sure how these guys live this one down).

Síðan bætir hann við ef einhver var að vonast eftir blóðugum átökum milli Tiger og Rory á la Tiger og Phil, þá líti út fyrir að viðkomandi sé afar óheppinn!

Nema þetta sé allt hluti af masterplani Tiger að mýkja þann yngri upp, trixa hann til þess að skipta um útbúnað og ganga síðan frá honum……

Tja, þvílík skrif hjá Yarow!

Greinarhöfundi fannst handarkrækja Tiger og Rory svipa til þeirrar þegar álsamningur Alcoa var handsalaður fyrir 10 árum undir forystu Friðriks Sophussonar, þáverandi forstjóra Landsvirkjunnar og Valgerðar Kristjánsdóttur, þáverandi iðnaðarráðherra og mikið var hlegið að (sjá mynd hér að neðan).

Undirritunarhandarbandið fræga hjá Alcoa