
Hver er kylfingurinn: Paul McGinley?
Nú rétt í þessu var Paul McGinley valinn fyrirliði liðs Evrópumanna í Ryder bikarnum, sem mætir liði Tom Watson í Gleneagles, í Skotlandi, 2014.
En hver er kylfingurinn Paul McGinley?
Paul McGinley fæddist 16. desember 1966 í Dublin á Írlandi og er því nýorðinn 46 ára. Hann býr í Sunningdale á Englandi. McGinley gerðist atvinnumaður í golfi 1991 þ.e. fyrir 22 árum. Á ferli sínum hefir hann sigrað alls 9 sinnum, þar af 4 sinnum á Evrópumótaröðinni. McGinley er frægastur fyrir að setja niður 3,5 metra sigurpútt Evrópumanna í Ryder bikarnum 2002 þegar hann bar sigurorð af Jim Furyk á Belfry. Hér má sjá myndskeið þar sem Paul McGinley tjáir sig um sigurpúttið fræga SMELLIÐ HÉR:
Eins sigraði McGinley í World Cup of Golf, árið 1997, fyrir Írland, en þeir Pádraig Harrington voru saman í liði (þeir voru í sama gagnfræðaskóla á Írlandi þ.e. Coláiste Éanna). Harrington var í hópi þeirra, sem vildi fá McGinley sem fyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu 2014, ásamt einhverjum þekktustu nöfnunum í kraftaverka Ryder Cup liðinu frá Medinah: þ.e. Rory McIlroy, Ian Poulter, Luke Donald, Graeme McDowell og Justin Rose.
Besti árangur Paul McGinley er 3. sætið á stigalista Evrópumótaraðarinnar 2005 og hann hefir náð svo langt að komast meðal 20 efstu á heimslistanum.
McGinley varð frægur þegar hann rétti fram höndina til þess að ná handabandi við JJ Henry eftir að sá púttaði langt pútt í Ryder bikarnum 2006 og holan féll á jöfnu.
McGinley hefir verið varafyrirliði í Ryder Cup liðum Evrópumanna 2010 þá undir Colin Montgomerie og síðan s.l. haust með José María Olazábal og er því vanur maður á réttum stað!!! Frábært val að velja McGinley fyrirliða liðs Evrópu í Rydernum 2014!!!
- janúar. 28. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (4/2023)
- janúar. 27. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2023
- janúar. 26. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2023
- janúar. 25. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har, Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2023
- janúar. 24. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingunn Einarsdóttir – 24. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Yani Tseng ———– 23. janúar 2023
- janúar. 23. 2023 | 06:00 PGA: Xander Schauffele með fyrsta albatrossinn á ferlinum á AmEx Open
- janúar. 23. 2023 | 05:15 Hvað var í sigurpoka Brooke Henderson?
- janúar. 23. 2023 | 05:00 PGA: Rahm rúllaði upp AmEx Open
- janúar. 22. 2023 | 22:40 Champions: Stricker sigraði í Hawaii
- janúar. 22. 2023 | 22:30 LPGA: Sigur Brooke Henderson öruggur á Hilton Grand Vacations TOC!!!
- janúar. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Sigurbjörn Sigfússon og Unnur Ólöf Halldórsdóttir – 22. janúar 2023
- janúar. 22. 2023 | 14:45 Evróputúrinn: Victor Perez sigraði á Abu Dhabi HSBC meistaramótinu
- janúar. 21. 2023 | 23:59 LPGA: Brooke Henderson leiðir á Hilton Grand Vacations TOC f. lokahringinn
- janúar. 21. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (3/2023)