Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2013 | 07:30
PGA: Camilo Villegas efstur á Honda Classic – Hápunktar og högg 1. dags

Uppáhald margra, „kóngulóarmaðurinn“ Camilo Villegas er í efsta sæti eftir 1. dag Honda Classic mótsins sem hófst á PGA National Champion golfvellinum, í Palm Beach Gardens, Flórída, í gær. Villegas hefir ekkert gengið allt of vel að undanförnu, er ekki með fullan keppnisrétt á PGA Tour, þar sem hann var ekki meðal efstu 150 á stigalistanum í fyrra og er kominn upp á náð og miskunn styrktaraðila að spila í flestum mótum, auk þess sem hann á þátttökurétt í nokkrum mótum sem hann hefir unnið áður og er Honda Classic eitt þeirra. Camilo sigraði á Honda Classic 7. mars 2010. Hér má sjá myndskeið með viðtali sem tekið var við Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 21:25
GB: Hamarsvöllur í dag … vel spilanlegur – Myndasería

Það er farið að grænka á Hamarsvelli þeirra Borgnesinga og völlurinn er í góðu ástandi og kemur vel undan vetri sbr. nokkrar myndir sem ljósmyndari Golf 1 tók í dag, á síðasta febrúardegi ársins 2013. Já, vorið nálgast óðfluga með tilheyrandi skemmtilegum golfhringjum! GB leyfir aðgang að vellinum í vetur, sem fyrri vetur en auðvitað þarf að virða ástand hans og umgangast hann í samræmi. Hér má minna á orð nýráðins vallarstjóra GB, Haraldar Más Stefánssonar:„Ég tel að það sé afar brýnt að koma því til félagsmanna að ganga einstaklega vel um völlinn nú í vor, fyrst og fremst af sjálfsagðri virðingu sem og að við erum með Íslandsmótið í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 20:30
Nýju stúlkurnar á LET 2013: Margarita Ramos (14. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af voru 6 stúlkur, sem deildu með sér 25. sætinu, þær: Cathryn Bristow. Laura Jansone, Holly Clyburn, Jia Yun Li, Melanie Maetzler og Margarita Ramos, en sú síðastnefnda verður kynnt í kvöld. Fullt nafn: Margarita RamosRíkisfang: Mexíkósk. Fæðingardagur: 31. janúar 1990. Fæðingarstaður: Mexico City. Gerðist atvinnumaður: 20. desember 2012. Hárlitur: Brúnn. Augnlitur: Brúnn. Byrjaði í golfi: 5 ára. Mestu áhrifavaldar í golfinu: Foreldrar og bróðir. Áhugamál: Finnst gaman að hlaupa og synda. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 18:00
Evróputúrinn & Sólskinstúrinn: Darren Fichardt leiðir eftir 1. dag Tshwane Open

Það er Darren Fichardt frá Suður-Afríku sem leiðir eftir 1. hring Tshwane Open, sem er sameiginlegt mót Sólskinstúrsins suður-afríska og Evróputúrsins og er mót vikunnar. Spilað er á Ernie Els hannaða Copperleaf golfvellinum í Centurion, Suður-Afríku. Fichardt spilaði á 7 undir pari, 65 höggum; fékk 8 fugla, 9 pör og 1 skolla. Í 2. sæti er Svíinn Björn Åkeson, en hann er aðeins 1 höggi á eftir, lék á 6 undir pari, 66 höggum. Åkeson fékk örn, 6 fugla, 9 pör og 2 skolla. 6 kylfingar deila síðan 3. sætinu á 5 undir pari 67 höggum, en þeirra á meðal er Indverjinn Jeev Milkha Singh. Til þess að sjá stöðuna á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Peter Aliss – 28. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Peter Aliss, en hann fæddist í Berlín 28. febrúar 1931 og er því 82 ára í dag. Peter var sonur Percy Aliss, sem var sigursæll kylfingur í Evrópu á árunum 1920-1930, en gerðist síðan golfkennari í Berlín, þar sem Peter fæddist. Peter fór í atvinnumennskuna í golfi 1947 og vann 23 sigra á ferli sínum. Besti árangur hans í risamótum er 8. sætið í Opna breska 1954, 1961, 1962 og 1969. Þekktastur er Peter Aliss á seinni árum sem golfskýrandi hjá BBC og sem rithöfundur og golfvallarhönnuður. Hann er oft nefndur „rödd bresks golfs“ (ens.: „Voice of (British) Golf“). Peter Aliss var tekinn í frægðarhöll kylfinga í maí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 08:35
Bandaríska háskólagolfið: Hver þekkir Ólafíu Þórunni best?

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og félagar í „Demon Deacons“ í Wake Forest áttu að spila á High Point Classic mótinu, sem fram fór í Willow Creek GC í Willow Creek, Norður-Karólínu. Mótið stóð dagana 25.-26. febrúar 2013. Af ótilgreindum ástæðum var mótið fellt niður af dagskrá Wake Forest. Ólafía Þórunn og Wake spila því næst á Darius Rucker Invitational sem fram fer dagana 8.-10. mars í Hilton Head, í Suður-Karólínu. Á heimasíðu Wake Forest er skemmtilegur spurningaleikur, sem gengur út á það hvor félaga Ólafíu Þórunnar, herbergisfélagi hennar Greta Lange í Wake Forest eða félagi hennar í golfliðinu, Marissa Dodd þekki Ólafíu Þórunni betur. Sjá má niðurstöðu spurningaleiksins með því að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 07:45
LPGA: Aza Muñoz leiðir á HSBC Women´s Champions í Singapúr eftir 1. dag

Spænski kylfingurinn Azahara Muñoz skilaði inn skorkorti upp á 7 undir pari 65 högg og er með 2 högga forystu eftir 1. hring HSBC Women’s Champions, en mótið hófst á Serapong golfvelli, Sentosa golfklúbbsins í Singpúr í morgun. Fimmfaldur LPGA-sigurvegarinn Stacy Lewis er meðal 5 kylfinga sem deila 2. sætinu á 5 undir pari, 67 höggum. Hinar eru: Pornanong Phatlum, Sun Young Yoo, Lizette Salas og Karin Sjödin. Heimsins besta, Yani Tseng, Chella Choi og harðjaxlinn Paula Creamer, sem er enn með whip-lash eymsli eftir árekstur 5 bíla sem hún slapp úr með undraverðum hætti í Thaílandi og Daníelle Kang eru 1 höggi á eftir og deila 7. sætinu á 4 undir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2013 | 07:00
Rory ætlar sér að stíga í fótspor Jack Nicklaus

Í dag hefst Honda Classic mótið á PGA mótaröðinni bandarísku, á golfvelli Palm Beach Gardens í Flórída. Heimsins besti, Rory McIlroy, sagði að völlurinn og aðstæður í Palm Beach Gardens hentuðu leik sínum. Það er Rory, 23 ára, sem á titil að verja í mótinu. Hann lyfti verðlaunabikarnum á Honda Classic í fyrra og vonast til þess að verða 2. aðeins á eftir Jack Nicklaus til þess að lyfta honum tvö ár í röð. „Vonandi verð ég sá fyrsti frá Jack til þess að ná þessu í þessari viku,“ hefir Sky Sports News eftir McIlroy. „Gengið byggist mikið á aðstæðum, það getur orðið ansi hvasst hér og þá verður völlurinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2013 | 21:30
Nýju stúlkurnar á LET 2013: Eva Bjarvall (13. grein af 43)

Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Það voru 7 stúlkur sem deildu 36. og síðasta sætinu og rétt mörðu að komast inn á LET. Þær hafa allar verið kynntar en það voru þær: Cheyenne Woods, hin þýska Ann-Kathrin Lindner, enski unglingurinn Charley Hull, hin sænska Rebecca Sörensen, hin tælenska Tanaporn Kongkiatkrai, hin skoska Vikki Laing og Babe Liu frá Tapei. Eins þurfti einn kylfingurinn ekki í gegnum Q-school, frægðarhallarkylfingurinn kanadíski Lorie Kane, sem segja má að sé sú 43. sem hlaut keppnisrétt eða kortið sitt á LET, en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 27. 2013 | 19:30
Rory og Tiger á móti löngu pútterunum þrátt fyrir afstöðu PGA Tour

Síðastliðinn nóvember tilkynntu talsmenn the United States Golf Association (USGA) and the Royal and Ancient (R&A) um tilvonandi reglubreytingar sem bönnuðu púttera þar sem stuðst væri við líkamann í púttersstrokunni. Bannið tekur til langra púttera og á að koma til framkvæmda 2016. S.l. sunnudag á Accenture heimsmótinu í holukeppni sagði Tim Finchem, framkvæmdastjóri PGA Tour að mótaröðin myndi leggjast gegn banninu. Frá því að Finchem lét frá sér þessa yfirlýsingu, sem kom mörgum í opna skjöldu, hafa margir heimsþekktir kylfingar þ.á.m. nr. 1 og nr. 2 á heimslistanum, Rory McIlroy og Tiger stigið á stokk og sagst styðja USGA og R&A þ.e. þeir eru fylgjandi banni á löngum pútterum. Afstaða Finchem Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

