Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 20:15

GA: Fjölmenni í Páskapúttmóti Freyju

Hjá GA fór nú um helgina fram Páskapúttmót Freyju. Teiggjafirnar í mótinu voru glæsilegar en allir voru leystir út með Freyjupáskaeggi! Úrslit urðu eftirfarandi: Í unglingaflokki sigraði Stefán Einar Sigmundsson með 27 pútt, í 2. sæti var Ævarr Freyr Birgisson með 28 pútt og í 3. sæti var Víðir Steinar Tómasson en hann og Lárus Ingi Antonsson voru jafnir en Víðir var með betra skor þegar talið var til baka á seinustu 3 holunum. Í kvennaflokki sigraði Halla Sif með 28 pútt, í 2. sæti var Anna Einarsdóttir með 29 pútt og Brynja Herborg með 30 pútt í 3. sæti. Í karlaflokki sigraði Sigmundur Ófeigsson með 28 pútt, í 2 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 20:00

PGA: Shell Houston í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er Shell Houston Open.  Spilað er á Redstone golfvellinum í Humble, í Houston, Texas. Flestir af topp-10 kylfingum heims taka þátt …. allir nema Tiger …. og gengið hjá þeim er misjafnt. Eftir 2. dag leiðir bandarísku kylfingarnir Stewart Cink og Bill Haas. Bein útsending frá mótinu á netinu hófst kl. 20:00. Til þess að sjá beina útsendingu frá Shell Houston Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 19:15

LET: Ariya sigraði á Lalla Meryem

Það var Ariya Jutanugarn frá Thailandi, sem sigraði á Lalla Meryem Cup í Marokkó nú fyrr í dag. Hún lék  á samtals 14 undir pari, 270 höggum (69 67 67 67) sýndi alveg ótrúlegan stöðugleika! Í 2. sæti urðu  bandaríski kylfingurinn Beth Allen og nýliðinn  Charley Hull, 3 höggum á eftir Ariyu á samtals 11 undir pari, 273 höggum; Beth  (70 68 67 68) og Charley á (68 70 64 71). Sú síðarnefnda náði ekki að fylgja eftir glæsiskori sínu frá því í gær, en hún á framtíðina fyrir sér!  Í 4. sæti varð nýliðinn Katie Burnett og í 5. sæti fyrrum W-7 módelið Mikaela Parmlid. Til þess að sjá úrsltin á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 19:00

Evróputúrinn: Siem á Masters?

Móti vikunnar á Evrópumótaröðinni, Trophée Hassan II, sem farið hefir fram í Agadir í Marokkó, lauk í dag. Þjóðverjinn Marcel Siem bar sigur úr býtum, lék  á samtals 17 undir pari, 271 höggi (64 68 69 70). Fyrir sigurinn hlaut Siem € 250.000. Siem verður að vera meðal efstu 50 á heimslistanum til þess að hljóta boð um að spila á Augusta National og verður að bíða þar til seinna í kvöld til þess að sjá hvernig Henrik Stenson, Russel Henley og Charles Howell III gengur á Shell Houston Open. „Það myndi vera ótrúlegt“ sagði Siem aðspurður um hvaða þýðingu það hefði að fá farmiðann til Georgíu. „Þetta hefir verið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 14:00

Evróputúrinn: Trophée Hassan II í beinni

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Trophée Hassan II mótið sem fer fram á Golf du Palais Royal golfvellinum í Agadir, Marrokkó. Sá sem á titil að verja er Norður-Írinn Michael Hoey. Af öðrum þekktum kylfingum sem þátt taka í mótinu mætti nefna Spánverjanna Alvaro Quiros og Pablo Larrazábal,  Danann Sören Kjeldsen, „norska frænda okkar“ Espen Kofstad, Molinari bræðurna ítölsku, Englendingana David Horsey, Graeme Storm og Lee Slattery og fyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu 2012 José Maria Olázabal. Mótið fagnar 40 ára afmæli sínu og Golf du Palais Royal d´Agadir golfvöllurinn er sagður í sérstaklega góðu ásigkomulagi. Bein útsending hófst kl. 12:00  Til þess að sjá mótið í beinni SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2013 | 00:01

Gleðilega páska!

Golf 1 óskar kylfingum nær og fjær gleðilegra páska og margra skemmtilegra golfhringja í vor og á komandi sumri! Megið þið öll ná markmiðum ykkar! Jafnframt þakkar Golf 1 fyrir góðar viðtökur. Golf 1 hefir nú verið starfandi í 1 1/2 ár og á þeim tíma hafa 5300 golffréttir, bæði innlendar og erlendar birtst, bæði á ensku og íslensku, sem gerir að meðaltali tæpar 10 golffréttir á dag. Framundan er síðan spennandi golfsumar… Í dag, Páskadag, fer Golf 1 í páskafrí og birtast engar fréttir aftur fyrr en í kvöld. Gleðilega páska!


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2013 | 22:15

PGA: Cink og Haas efstir

Það eru þeir Stewart Cink og Bill Haas sem leiða fyrir lokahring Shell Houston Open, sem fram fer á Redstone golfvellinum í bænum Humble, sem er rétt hjá Houston, Texas. Þeir eru báðir búnir að spila á samtals 11 undir pari, 204 höggum; Cink (71 66 68) og Haas (68 70 67). Þriðja sætinu deila 4 kylfingar; grínistinn og Golf boys-inn Ben Crane, forystumenn á mótinu undanfarna 2 daga: DA Points og Steve Wheatcroft og síðan Jason Kokrak. Allir eru þeir aðeins eru 1 höggi á eftir forystumönnunum, Cink og Haas þannig að það stefnir í geysispennandi keppni á morgun! Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Shell Houston SMELLIÐ HÉR:  Til þess Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2013 | 21:30

Ólafur Björn hlaut $965 í verðlaunafé

Ólafur Björn Loftsson, NK, lauk í dag leik á The Championship at St. James, en mótið er hluti af eGolf mótaröðinni. Mótið fór fram dagana 27.-30. mars í Reserve Club at St. James í Southport, Norður-Karólínu. Ólafur Björn lauk leik á samtals 13 yfir pari, 301 höggi (73 74 75 79) og lauk keppni T-49, þ.e. deildi 49. sætinu með Englendingnum Daniel Gavins. Ólafur Björn  hlaut $965 í verðlaunafé sem er u.þ.b. kr. 120.000,- Til þess að sjá úrslitin á The Championship at St. James SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2013 | 20:30

GÞH: Baldur og Ragnar sigruðu í Páskamóti Hellishóla

16 kylfingar tóku þátt í Texas Scramble Páskamóti á Hellihólum í Fljótshlíð núna í dag,  laugardaginn 30. mars 2013. Verðrið var frábært og sól í heiði. Vorið er svo sannarlega komið í Fljótshlíðinni! Verðlaunaafhending var kl: 19:45, en þá var einnig happy hour á barnum á undan glæsilegum kvöldverði. Úrslitin urðu eftirfarandi: 1. sæti Baldur Baldursson, GÞH og  Ragnar Borgþórsson, GÞH. Þeir hlutu í verðlaun hjónagjald í golfklúbb Hellishóla 2013 að verðmæti 50.000. 2. sæti Ólafur Jakob Lúðvíksson, GÞH og  Björn Pálsson, GÞH. Þeir hlutu í verðlaun  gistingu í nýja gistiheimili Hellishóla og kvöldverð fyrir tvo, að verðmæti 28.000. 3. sæti Erlingur Snær Loftsson, GHR og Matthías Þorsteinsson, GHR: Þeir hlutu í verðlaun Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2013 | 20:00

GVS: Guðni Vignir og Jón Þorkell sigruðu á Páskamóti GVS

Í dag fór fram 9 holu Páskamót GVS og Gamla Pósthússins Vogum.  Þátttakendur voru 52 og þar af luku 49 keppni. Páskaegg voru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin bæði í höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf og auk þess fékk efsta sætið í báðum flokkum út að borða fyrir 2 á Gamla Pósthúsið í Vogum. Úrslitin í höggleiknum voru eftirfarandi:  Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 Alls Mismunur 1 Guðni Vignir Sveinsson GS 1 F 0 36 36 0 36 36 0 2 Jón Þorkell Jónasson GG 7 F 0 37 37 1 37 37 1 3 Atli Már Grétarsson GK Lesa meira