Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2013 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór í 8. sæti fyrir lokahring SCC

Andri Þór Björnsson, GR og „The Geaux Colonels“, golflið Nicholls State, leika í dag lokahringinn á Southland Conference Championship.

Mótið stendur dagana 22.-24. apríl og leikið er  á Dye golfvelli Stonebridge Ranch Country Club í McKinney, Texas.

Þátttakendur eru 40 frá 8 háskólum.

Andri Þór hefir leikið fyrri 2 hringina á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (80 74) og er á besta skorinu í sínu liði, en Nicholls State er í 7. sæti í liðakeppninni.

Fylgjast má með gengi Andra Þórs og golfliðs Nicholls State með því að SMELLA HÉR: