Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 07:15

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór lauk leik í 4. sæti á Southland Conference!

Andri Þór Björnsson, GR og „The Geaux Colonels“, golflið Nicholls State, tóku þátt í  Southland Conference Championship, en mótið fór fram dagana 22.-24. apríl.

Leikið var  á Dye golfvelli Stonebridge Ranch Country Club í McKinney, Texas og þátttakendur eru 40 frá 8 háskólum.

Andri Þór lauk keppni á samtals 10 yfir pari, 226 höggum (80 74 72) og var á besta skorinu í sínu liði.

Nicholls State hafnaði í 7. sæti í liðakeppninni.

Sjá má úrslitin á SCC (Southland Conference Championship) með því að  SMELLA HÉR: