Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 14:25
Evróputúrinn: Noren leiðir fyrir lokahringinn á Ballantine´s

Það er Svíinn Alexander Noren, sem tekið hefir forystuna á 3. degi Ballantine´s Open í Iceon, Kóreu. Hann er búinn að leika á samtals 9 undir pari, 207 höggum (71 67 69). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir á 8 undir pari eru Englendingurinn Peter Whiteford og Spánverjinn Pablo Larrazabal. Fjórða sætinu deila sem stendur Ástralarnir Marcus Fraser og Bret Rumford, á samtals 6 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á Ballantine´s Open í Icheon í Kóreu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 14:15
Evróputúrinn: Ballantine´s í beinni

Ballantine´s Open hófst á fimmtudaginn í Iceheon í Suður-Kóreu, en mótið er hluti Evrópumótaraðarinnar. Það voru 5 kylfingar, sem deildu 1. sætinu þegar mótinu var frestað í gær vegna myrkurs eftir 1. daginn á fimmtudag. Eftir gærdaginn voru það Ástralinn Wade Ormsby, sem er í efsta sæti á 7 undir pari, ásamt Thaílendingnum Arnond Vongvanij. Þriðja sætinu deila Svíinn Alex Noren ásamt Englendingnum James Morrisson og Jbe Kruger frá Suður-Afríku., Til þess að sjá Ballantine´s í beinni SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá stöðuna á Ballantine´s Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Friðmey Jónsdóttir – 27. apríl 2013

Það er Friðmey Jónsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Friðmey er fædd 27. apríl 1987 og því 26 ára í dag! Friðmey er í Golfklúbbnum Leyni (GL) á Akranesi. Hún er frábær kylfingur, hefir m.a. orðið klúbbmeistari GL 2006 og 2010. Friðmey Jónsdóttir ásamt Helga Dan Friðmey er af mikilli golffjölskyldu af Skaganum, en hún er eldri systir Valdísar Þóru Jónsdóttur, sem er einn besti kvenkylfingur Íslands og á auk þess 2 bræður, foreldra, afa og ömmu og jafnvel bræður mömmu hennar og einn bróðir pabba hennar spila öll golf. Hér að neðan má komast á Facebooksíðu afmæliskylfingsins, til þess að óska honum til hamingju með afmælið. Friðmey Jónsdóttir · 26 years old Aðrir frægir kylfingar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 13:45
LPGA: Caroline Masson enn í forystu þegar North Texas LPGA Shootout er hálfnað

Þýski nýliðinn á LPGA, Caroline Masson, heldur forystu þegar North Texas LPGA Shootout er hálfnað. Forystan er naum, hún á aðeins 1 högg á Carlotu Ciganda frá Spáni. Samtals er Masson búin að leika á 7 undir pari, 135 höggum (64 71) en Ciganda er búin að spila á 6 undir pari, 136 höggum (66 70). Þriðja sætinu deila 2 nýliðar Kathleen Ekey og Moriya Jutanugarn og nr. 1 á Rolex-heimslistanum Inbee Park, en allar hafa þær spilað á samtals 5 undir pari, 137 höggum, hver. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð voru Azahara Munoz, Beatriz Recari, Sandra Gal, Caroline Hedwall og Morgan Pressel. Til þess að sjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 13:00
Intersport opnar nýja golfverslun – Myndasería

Kl. 11 í dag opnaði Intersport nýja golfverslun í Lindunum í Kópavogi, en fyrsta verslun Intersport á Íslandi var opnuð 18. apríl 1998 að Bíldshöfða 20 í Reykjavík og fagnar Intersport því 15 ára afmæli í ár. Þegar Golf 1 mætti á staðinn á slaginnu 11 var enn verið að leggja síðustu hönd á hluti í golfversluninni, ryksuga, laga ljósaperur og verið að dytta að hinu og þessu. Mikið úrval er alls, sem þarf til að stunda golfíþróttina í nýju versluninni. Hér má sjá myndaseríu frá opnun nýju Intersport golfvöruverslunarinnar SMELLIÐ HÉR: Það eru þeir Guðjón Baldur, verslunarstjóri og Haraldur sem sjá um reksturinn. Hér er um að ræða eflingu samkeppni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 10:00
60 kylfingar héldu í dag í golf- og gleðiferð til Spánar á vegum Golfskálans

Í dag héldu 60 Íslenskir kylfingar á vegum Golfskálans til El Plantio golfstaðarins í Alicante á Spáni, á vegum Golfskálans. Segir á vefsíðu Golfskálans að þetta verði 5 daga golf- og gleðiferð, en ferðin stendur frá 27. apríl – 4. maí 2013. Sett verða upp 4 mót og eru heildarvinningar að andvirði um 300.000 krónur. El Plantio golfstaðurinn er stórskemmtilegur, hótel og íbúðir við staðin nýleg og aðstaða eins og best verður á kosið. Andrúmsloftið er mjög gott – góð golfverslun er á staðnum og starfsfólk framúrskarandi kurteist og leggur sig fram um að gera ferð allra sem eftirminnilegasta og skemmtilegasta.
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 08:00
Skráning hafin í Golfskálamótið

Þá er búið að negla niður hið árlega Opna Golfskálamót. Mótið fer fram hjá GKJ laugardaginn 29.júní. Eins og á síðasta ári þá er leikformið betri bolti, tveir og tveir saman í liði. Síðustu tvö ár hafa vel yfir 200 manns tekið þátt og uppselt bæði árin. Þeir sem hafa áhuga ættu því að skrá sig tímanlega, en skráning er hafin á golf.is SKRÁ SIG HÉR
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 02:30
PGA: Guan í gegnum niðurskurð

Kínverski undrastrákurinn Guan Tianlang, komst í gegnum niðurskurð á Zurich Classic, í gær, en hann er sá yngsti til þess að spila í the Masters risamótinu og sá yngsti til þess að ná niðurskurði þar! Líkt og á Masters risamótinu rétt slapp Guan í gegn en niðurskurður var miðaður við samtals 3 undir pari og Guan var einmitt á samtals 3 undir pari!!! Guan er búinn að spila á samtals 141 höggi (72 69). Þetta er glæsilegur árangur 14 ára stráks, sem slær við köppum á borð við Robert Karlsson, Jasper Parnevik, Ross Fisher, risamótssigurvegaranum Keegan Bradley og kólombíska kóngulóarkyntröllinu Camilo Villegas, en allir framangreindir reynsluboltar komust ekki í gegnum niðurskurð. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 02:00
PGA: Glover efstur á Zurich Classic

Á fimmtudaginn hófst á TPC Louisiana vellinum, Zurich Classic at New Orleans mótið í Avondale, Louisiana, en mótið er hluti af PGA mótaröðinni bandarísku. Eftir 2. dag mótsins er það Lucas Glover sem leiðir á samtals 12 undir pari, 132 höggum (65 67). Í 2. sæti á 11 undir pari er Boo Weekly, en hann er búin að leika á samtals 11 undir pari, 133 höggum (65 68). Og í þriðja sæti er DA Points á samtals 10 undir pari og svo er Morgan Hoffmann í 4. sæti á samtals 9 undir pari. Loks er það Ernie Els sem vermir 5. sætið á samtals 8 undir pari Justin Rose er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2013 | 20:45
LPGA: Masson leiðir í Texas

Í gær hófst í Las Colinas Country Club í Irving, Texas, North Texas LPGA Shootout. Það er hin þýska Caroline Masson sem leiðir eftir 1. dag á glæsilegu skori, 7 undir pari, 64 höggum!!! Á hringnum fékk Masson 7 fugla og 11 pör. Kylfingur nr. 1 í Evrópu á síðasta ári í kvennagolfinu, hin spænska Carlota Ciganda var í 2. sæti,2 höggum á eftir Caroline. Annar hringur er þegar hafinn. Til þess að fylgjast með stöðunni á North Texas LPGA Shootout SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

