Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 22:45

GL: Karl Ómar Karlsson ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis

Karl Ómar Karlsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og mun hann hafa yfirumsjón með þjálfun barna- og unglinga hjá GL og vera golfkennari GL. Karl Ómar hefur verið íþróttastjóri GL undanfarin ár og var samningur við hann endurnýjaður í apríl. Karl Ómar hefur byggt upp öflugt og metnaðarfullt starf síðustu ár og bindur GL miklar vonir við að byggja enn frekar ofan á þá góðu vinnu. Karl Ómar er PGA menntaður þjálfari frá Svíþjóð en hann lauk HGTU golfkennaranámi í Svíþjóð árið 2003 og hefur sótt ýmis námskeið á vegum norska- og sænska golfsambandsins ásamt því að koma að kennslu, þjálfun og liðstjórn fyrir Golfsamband Íslands. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 21:00

Hver er kylfingurinn: Adam Scott (5. grein af 5)

Fyrir nákvæmlega 2 vikum eignuðust Ástralar sinn fyrsta Masters risamótsmeistara: Adam Scott. Hér fer síðasta af 5 greinum til kynningar á Scott og er nú farið yfir feril hans s.l. 2 ár: Árið 2011 í ferli Adam Scott Scott náði besta árangri sínum í risamóti fram til þess tíma þegar hann varð jafn öðrum í 2. sæti á the Masters 2011 saman með landa sínum Jason Day, en þeir báðir voru 2 höggum á eftir sigurvegaranum Charl Schwartzel. Scott var einn í forystu á 71. holu, en 4 fuglar í röð frá Schwartzel urðu til þess að Scott tapaði með 2 höggum. Sigur á WGC-Bridgestone Invitational Þar sem Tiger Woods Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 20:30

Liebelei Lawrence tekur þátt í Big Break Mexico

Liebelei Lawrence, sem er með keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna, er einn þátttakenda í raunveruleika sjónvarpsþáttagolfkeppninni BigBreak Mexico, sem hefst í bandarísku sjónvarpi þ.e. Golf Channel,  13. maí n.k. Árið 2011 lék Liebelei í 15 mótum og varð 4 sinnum meðal efstu 30, en varð að fara aftur í Q-school. Hún komst þar í gegn og hlaut kortið sitt að nýju 2012 og varð tvívegis meðal efstu 30 í mótum það ár. Árið 2013 er hún með keppnisrétt að hluta og hefir fram að þessu aðeins spilað í 2 mótum. Stúlkan með fallega nafnið (Liebelei) er með mjög alþjóðlegan bakgrunn, en hún er fædd í Grikklandi, á gríska móður og bandarískan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 15:30

Afmæliskylfingur dagsins: Jiyai Shin – 28. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Jiyai Shin (Hangul: 신지애; hanja: 申智愛) en hún er fædd 28. apríl 1988  og á því 25 ára afmæli í dag! Jiyai gerðist atvinnumaður í golfi 2005, þá 17 ára og hefir á ferli sínum sigrað í 37 mótum þar af tvívegis á risamótum, þ.e. á Women´s British Open 2008 og 2012. Jiyai er ein af fáum kvenkylfingum sem setið hefir í 1. sæti á Rolex-heimslistanum, en sem stendur er hún í 7. sætinu. Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.  Sven Tumba Johannsson, 28. ágúst 1931 – 1. október 2011;  Stephen Michael Ames  28. apríl 1964 (49 ára);  John Daly 28. apríl 1966 (47 ára) ….. og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 13:00

Evróputúrinn: Brett Rumford sigraði á 1. holu í 3 manna bráðabana á Ballantine´s með erni!

Ástralinn Brett Rumford sigraði á Ballantine´s Opne á Blackstone golfvellinum í Icheon, Suður-Kóreu. Rumford og landi hans Marcus Fraser og Skotinn Peter Whiteford voru allir á 11 undir pari, 277 höggum eftir 72 holu spil og því varð að koma til bráðabana milli þeirra þriggja. Rumford vann strax á 1. holu bráðabanans með glæsilegum erni! Í 4. sæti varð Frakkinn Romain Wattel á 9 undir pari og í 5. sætinu varð risamótssigurvegarinn fv. Louis Oosthuizen á 8 undir pari. Til þess að sjá úrslitin á Ballantine´s 2013 SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 12:00

Zurich Classic í beinni

Á fimmtudaginn hófst á TPC Louisiana vellinum, Zurich Classic of New Orleans mótið í Avondale, Louisiana, en mótið er hluti af PGA mótaröðinni. Meðal heimsklassakylfinga, sem þátt taka í mótinu eru Justin Rose, Keegan Bradley, Thorbjörn Olesen, Ernie Els, Nicolas Colsaerts og 14 ára golfundrið Guan Tianlang, sem er yngsti kylfingur til að hafa keppt á the Masters risamótinu, komist í gegnum niðurskurðinn þar og líka í Zurich Classic. Tiger er ekki með, en hann tekur sér yfirleitt 3 vikna frí eftir the Masters risamótið. Nú fyrir lokahringinn er bandaríski kylfingurinn Lucas Glover í forystu. Spurning hvort honum tekst að sigra í fyrsta sinn síðan á Wells Fargo mótinu 8. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 11:30

Golfreglur: Leitað að bolta og hann þekktur

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Í höggleikskeppni slær keppandi teighöggi sínu í vatnshindrun. Hann finnur bolta sinn í vatnshindruninni og fjarlægir part af laufi af boltanum til þess að sjá hvort þetta sé boltinn hans. Hann kemst að því að þetta er ekki bolti hans. Eftir 3 mínútur hefir keppandinn ekki enn fundið bolta sinn og fer að skv. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 09:30

LPGA: Carlota Ciganda í forystu fyrir lokahring North Texas LPGA Shootout

Það er spænski kylfingurinn Carlota Ciganda sem er í forystu fyrir lokahring  North Texas LPGA Shootout, sem leikinn verður í dag. Ciganda er á samtals 11 undir pari, 202 höggum (66 70 66). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir er nr. 1 á Rolex-heimslistanum Inbee Park og forystukonu fyrstu 2 daga mótsins Caroline Masson frá Þýskalandi, þ.e. báðar  á samtals 9 undir pari, 204 höggum; Inbee (67 70 67) og Caro (64 71 69). Í 4. sæti er NY Choi á samtals 8 undir pari og 5. sætinu deila 4 kylfingar þ.á.m. hin franska Karine Icher, allar á samtals 6 undir pari. Í 9. sæti á samtals 5 undir pari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 09:00

PGA: Lucas Glover leiðir fyrir lokahringinn á Zurich Classic

Það er bandaríski kylfingurinn Lucas Glover sem heldur forystu í Avondale á TPC Louisiana á Zurich Classic mótinu fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í dag. Glover er búinn að spila á samtals 14 undir pari, 202 höggum (65 67 70). Öðru sætinu deila Kyle Stanley, Jimmy Walker, Billy Horschel og DA Points, en þeir eru 2 höggum á eftir forystumanni mótsins Lucas Glover, á samtals 12 undir pari, 204 höggum, hver. Kylfingurinn kínverski, Guan Tianlang, 14 ára, er í 71. og síðasta sæti af þeim sem komust í gegnum niðurskurð en hann átti fremur dapran 3. hring miðað við gengið á the Masters risamótinu og dagana 2 þar á undan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2013 | 23:59

Golfgrín á laugardegi

Svona á kosninganótt rifjast upp einn af 3 skurðlæknum sem slappa af eftir erfiða alþjóðlega læknaráðstefnu úti á golfvelli: Á fyrsta teig segir bandaríski læknirinn starfsbræðrum sínum frá nýjustu framförunum innan læknavísindanna í Bandaríkjunum. „Okkur hefir tekist að fjarlægja stóran hluta skemmdra smáþarma í sjúklingum og setja þess í stað gervivef úr plasti … og rannsóknir sýna að meltingin starfi sem aldrei fyrr og algerlega með eðlilegum hætti, sem kemur hamborgaraætunum okkar sérlega vel“ sagði sá bandaríski brosandi. „Áhugavert“ segja kollegarnir og hefja leik.  Á öðrum teig segir danski læknirinn „Mestu nýjungarnar hjá okkur eru að okkur hefir tekist að finna upp aðferð til að endurvekja lík, menn sem hafa Lesa meira