Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 30. 2013 | 10:00

Tiger mætti í brúðkaup Michael Jordan

Tiger Woods þurfti aðeins að fara 30 mínútur í bíl frá heimili sínu í Jupiter, Flórída til þess að mæta í brúðkaup vinar síns, körfuboltastjörnunnar Michael Jordan, sl. laugardag. Hann mætti án kærestunnar, Lindsey Vonn, sem ekki komst og  leit bara býsna vel út í gráum fötum og með dökk sólgleraugu SJÁ MYND TIGER MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR: Tiger komst vegna þess að hann á viku eftir af hefðbundnu 3 vikna fríi sem hann fer alltaf í eftir the Masters risamótið. Jordan kvæntist Yvette Prieto, 35 ára fyrrum módel, eftir 5 ára samveru. Eftir hátíðlega athöfn í heimahúsi var mótttaka í Bear´s Club í Jupiter, sem er í eigu Jack Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 23:00

GOB: Gunnlaugur ráðinn golfkennari

Stjórn GOB hefur gengið frá ráðningu Gunnlaugs H. Elsusonar í starf golfkennara klúbbsins. Hann útskrifaðist árið 2005 frá Kennaraháskóla Ísland sem íþróttafræðingur og svo frá Golfkennaraskóla Íslands árið 2008 með alþjóðlega PGA golfkennaragráðu. Síðastliðin þrjú ár hefur hann starfað sjálfstætt í Hraunkoti við golfkennslu. Gunnlaugur byrjaði að stunda golf hjá Golfklúbbi Sauðárkróks ungur að árum hjá Árna Sævari Jónsyni golfkennara. Sem leikmaður varð hann tvisvar sinnum Íslandsmeistari í sveitakeppni og hefur tvisvar sinnum orðið klúbbmeistari. Gunnlaugur hefur þjálfað og kennt golf á öllum stigum íþróttarinnar frá árinu 2001 og sem kennari hefur hann hampað mörgum Íslandsmeistaratitlum nemenda sinna auk fjölda verðlauna í unglingaflokkum hjá báðum kynjum. Gunnlaugur hefur unnið fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 15:00

Heimslistinn: Horschel í 49. sæti

  Vegna sigur síns á Zurich Classic fer Billy Horschel upp um 42 sæti á heimslistanum, fer úr 91. sætinu upp á topp-50, þ.e. í 49. sæti heimslistans! 21 árs undradrengur á japönsku mótaröðinni Hideki Matsuyama fer upp um álíka mörg sæti og Horschel eða 41 þ.e. úr 149. sæti heimslistans í það 108. vegna sigur síns á Tsuruya Open nú um helgina, en þetta er 2. sigur Matsuyama á stuttum tíma á japanska PGA. Ástralinn Brett Rumford sem sigraði á Ballantine´s Open, móti Evrópumótaraðarinnar á Blackstone golfvellinum í Icheon í Suður-Kóreu hlýtur að vera hástökkvari vikunnar á heimslistanum en hann fer úr 237. sætinu upp í 122. sætið eða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 14:30

GKG: Ný þjónusta – ársleiga á golfbílum

Það kostar 4.800,- að leigja sér golfbíl á 18 holurnar. Það er í sjálfu sér ekki svo dýrt ef maður þarf stöku sinnum á bílnum að halda. Sumir einstaklingar geta þó ekki spilað golf nema þeir séu á bíl sökum meiðsla eða sjúkdóma. Ef slíkur einstaklingur spilar reglulega golf þá fer kostnaðurinn upp í einhver hundruð þúsunda á ári. Það leiðir af sér að viðkomandi telur það hagkvæmara að kaupa sér golfbíl en að leigja hann Hugsunarhátturinn er gjarnan þannig að maður kaupir sér golfbíl á 1,5 milljónir, selur hann aftur eftir fimm ár á 1,1 milljón, þá er þetta ekki nema 80 þúsund á ári. Þessi hugsunarháttur er ágætlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 14:00

Hvernig fjölskylda Billy Horschel fagnaði 1. PGA sigri hans!!!

Billy Horschel 26 ára fagnaði 1. PGA Tour sigri sínum í gær, 28. apríl 2013  á Zurich Classic, í New Orleans, Louisiana. Hann ólst upp í Grant-Valkaria í Flórída (íbúar um 3850) sonur byggingarverktaka.  Öll fjölskylda Billy fylgdist með sigri hans í gær, Billy eldri pabbi hans, Kathy mamma Billy yngri og 4 aðrir fjölskyldumeðlimir. Líkt og gert er á Kraft Nabisco risamótinu hjá konunum fögnuðu þau sigri sonarins með því að henda sér út í sundlaugina þegar sigurinn lá fyrir. „Við hentum okkur út í laugina vegna þess að við vissum að Billy myndi ekki gera það þarna á TPC Louisiana, þar sem allar tjarnir eru fullar af krókódílum. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gauti Geirsson – 29. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Gauti Geirsson, GÍ. Gauti er fæddur 29. apríl 1993 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Gauti er í Golfklúbbi Ísafjarðar og hefir tekið þátt í fjölmörgum mótum og staðið sig afbragðs vel!!! Komast má á Facebook síðu Gauta til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:   Gauti Geirsson (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Allan George Balding 29. apríl 1924 – 30. júlí 2006; Johnny Miller, 29. apríl 1947 (66 ára); Niclas Fasth, 29. apríl 1972 (41 árs); Anna Grzebien, 29. apríl 1985 (28 ára). Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 13:00

Metþátttökuumsóknir á US Open – alls 9860!!!

Fyrir nokkrum dögum tilkynnti bandaríska golfsambandið (USGA) að það hefði fengið nýjan fjölda metþátttökuumsókna á Opna bandaríska 2013, sem í ár fer fram 13.-16. júní á Austurvelli Merion golfklúbbsins, í Ardmore, Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Alls hyggjast 9860 reyna við að spila í mótinu sem er ný metþátttaka og slær við gamla þátttökuumsóknar metinu frá 2009 þegar 9086 þreyttu úrtökumót til þess að hljóta tækifæri að spila á einu vinsælasta risamótinu. Þá (þ.e. 2009) var spilað á Bethpage Black golfvellinum í Farmingdale, New York. Þetta er í 5. sinn sem Opna bandaríska risamótið fer fram á Merion. Til þess að teljast hæfur til að spila á Opna bandaríska verða keppendur að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 12:30

LPGA: Inbee Park sigraði á North Texas LPGA Shootout

Það var nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park frá Suður-Kóreu sem stóð uppi sem sigurvegari á North Texas LPGA Shootout. Inbee spilaði á samtals 13 undir pari, 271 höggi (67 70 67 67) og hlaut í verðlaunafé $ 195.000,- Í 2. sæti varð forystukona gærdagsins Carlota Ciganda frá Spáni á samtals 12 undir pari, aðeins 1 höggi á eftir Inbee. Í 3. sæti varð svo „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen á samtals 10 undir pari. Til þess að sjá úrslitin á North Texas LPGA Shootout SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 10:00

NÝTT!!!: Golf1.is á þýsku!

Í dag birtast fyrstu golffréttirnar á þýsku  í nýjum þýskum hluta Golf1.is og mun þetta vera í fyrsta sinn sem golffréttir á þýsku eru birtar með reglulegum hætti á íslenskum miðli.  Það eina sem þarf að gera til þess að komast á þýska hluta Golf1.is er að smella á þýska fánann á forsíðu Golf1.is Þann 26. október 2011 var í tilraunaskyni hafist handa við að skrifa golffréttir á ensku á Golf1.is Nú bætast við golffréttir um golf á Íslandi á þýsku og er Golf1.is því eini golffréttavefurinn, sem skrifar golffréttir á 3 tungumálum: íslensku, ensku og þýsku. Áhugi erlendra kylfinga á Íslandi og íslenskum golfvöllum er nefnilega mikill, sem sést Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2013 | 23:00

PGA: Billy Horschel er sigurvegari á Zurich Classic með lokahring upp á 64 högg!

Það var bandaríski kylfingurinn Billy Horschel sem vann sinn fyrsta sigur á PGA mótaröðinni nú í kvöld þegar hann innsiglaði sigur sinn með glæsilokahring upp á 64 högg á Zurich Classic. Samtals lék Horschel á 20 undir pari, 268 höggum (67 71 66 64).  Á lokahringnum lék hann sem segir á 8 undir pari, fékk 9 fugla, 8 pör og 1 skolla. Billy Horschel er 26 ára Flórídabúi og sjá má kynningu Golf 1 á honum með því að SMELLA HÉR:  Aðeins 1 höggi á eftir Horschel í 2. sæti varð DA Points á samtals 19 undir pari, 269 höggum (66 68 70 65). Í 3. sæti varð Kyle Stanley Lesa meira