Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2013 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Gauti Geirsson – 29. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Gauti Geirsson, GÍ. Gauti er fæddur 29. apríl 1993 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Gauti er í Golfklúbbi Ísafjarðar og hefir tekið þátt í fjölmörgum mótum og staðið sig afbragðs vel!!! Komast má á Facebook síðu Gauta til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:

 

Gauti Geirsson (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Allan George Balding 29. apríl 1924 – 30. júlí 2006; Johnny Miller, 29. apríl 1947 (66 ára); Niclas Fasth, 29. apríl 1972 (41 árs); Anna Grzebien, 29. apríl 1985 (28 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is