Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 21:30

Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Ameríkani, Þjóðverji og Arabi tóku tal saman yfir drykk. Þá segir Ameríkaninn: „Ég á 6 syni og 1 í viðbót þar með á ég körfuboltalið.“ Þá svaraði Þjóðverjinn: „Þetta er nú ekkert. Ég á 10 syni og einn til viðbótar og þar með á ég knattspyrnulið.“ Þá segir Arabinn: „Ég á 17 konur 1 í viðbót og þar með á ég golfvöll.“ Nr. 2 Herbert situr í klúbbhúsinu og hugsar um nýju ástkonuna sína. Algerlega utan við sig tautar hann fyrir vörum sér: „Þetta borgar sig ekki!“ „Oftast er það ekki eins og maður vonast til.“ „Og rándýrt er það líka.“ „Og eiginkonan trompast.“ Segir vinur hans á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 20:30

Solheim Cup: Staðan 6.5 – 5.5 fyrir Evrópu eftir morgunleiki 2. dags

Bandarísku stúlkurnar eru búnar að saxa á forskot liðs Evrópu eftir fjórmenning laugardagsmorgunsins (þ.e. í morgun 17/8 2013). Brittany Lang og Michelle Wie unnu Suzann Pettersen og Beatriz Recari 2&1, en þetta er fyrsti ósigur Pettersen í þessari Solheim bikars keppni. Nr. 2 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis og „bleiki pardusinn“ Paula Creamer unnu leik sinn gegn Azahara Muñoz og Karine Icher mjög tæpt 1&0. Allt var jafnt í leik Brittany Lincicome og Lizette Salas g. Catrionu Matthew og Caroline Masson. Loks var eini leikur Evrópu sem vannst leikur Önnu Nordqvist og Caroline Hedwall g. Morgan Pressel og Jessicu Korda. Íslandsvinurinn Hedwall er því með fullt hús stiga í þessari keppni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 20:30

GSÍ: Staðan í sveitakeppnum karla og kvenna eftir 2. dag

Í  dag var  sveitakeppni GSÍ fram haldið, en keppt er í 5 flokkum karla og 2 flokkum kvenna. Eftir 2. dag er staðan eftirfarandi: Nú er leikjum í undanúrslitleikirnir í sveitakeppni GSÍ að ljúka, við munum uppfæra þessa frétt þangað til öll úrslit hafa verið birt en þú getur sér allt um stöðu mála hér á golf.is/veljið 4.umferð til að sjá uppfærða stöðu og á Twitter.   1.deild karla, leikið á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili, upplýsingar og staða hér. Leikur 1: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar vinnur –Golfklúbb Setbergs 5/0 Leikur 2: Golfklúbburinn Keilir  vinnur, Golfklúbb Reykjavíkur – 3,5/1,5 Úrslitaleikir: Leikur um fyrsta sætið: Golfklúbburinn Keilir- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, hefst kl 10:06 Leikur um þriðja sætið: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 18:30

PGA: Howell vikið úr Wyndham mótinu

Charles Howell III var í dag vikið úr Wyndham Championship fyrir brot á reglu 4-1a. Howell var á 68 höggum á 2. hring, en notaði þar ólöglegan dræver og var samtals á 6 undir pari, í 10. sæti í mótinu. Starfsmaður bandaríska golfsambandsins, Tony Wallin,  útskýrði brottvikninguna á eftirfarandi hátt: „Svo virðist sem í gær (föstudag) áður en hann (Howell)  tíaði upp, hafi lítið þyngdar-ports-cover (ens. weight port cover) á botni TaylorMade drævers hans nálægt kylfuandlitinu dottið af þegar hann sló bolta.  Það sem gerðist þegar þetta litla port datt af var að dræverinn varð ólöglegur vegna þess að það er holrúm sem coverið hylur, en þar er hægt að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Högna Kristbjörg Knútsdóttir – 17. ágúst 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Högna Kristbjörg Knútsdóttir. Högna er fædd 17. ágúst 1994 og á því 19  ára afmæli í dag. Högna Kristbjörg er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún er í afrekshóp GSÍ, valin af landsliðsþjálfara. Í sumar hefir Högna spilað á Eimskipsmótaröðinni. Eins hefir hún tekið þátt í nokkrum mótum erlendis og hlotið dýrmæta reynslu við það. Meðal þeirra móta sem Högna hefir tekið þátt í er Opna undir 18 ára mótið á Írlandi í apríl á sl. ári; og European Girls Team Championship í Austurríki í júlí 2012. Högna var í sveit Keilis sem varð í 2. sæti á Íslandsmóti GSÍ í sveitakeppni 2012 og er nú við keppni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 09:00

Solheim Cup: Staðan eftir 1. dag 5-3 fyrir Evrópu

Titilvörnin gengur vel hjá liði Evrópu í Solheim Cup.  Eftir fjórmenning og fjórbolta 1. dags eru evrópsku stúlkurnar búnar að hala inn 5 vinninga (af þeim 14 sem þær þurfa til þess að sigra keppnina) á móti 3 vinningum bandaríska liðsins (sem þarf 14 1/2 vinning til þess að vinna Solheim bikarinn tilbaka), en s.s. kunnugt er vann lið Evrópu frækinn sigur árið 2011 í Killeen Castle á Írlandi. Það veltur mikið á deginum í dag hvort evrópskur sigur vinnst því bandarísku stúlkurnar hafa löngum verið betri í tvímenningsleikjum sunnudagsins og því væri þægilegt ef sama niðurstaða fengist í dag í fjórmennings- og fjórboltaleikjunum og í gær, þ.e. (5 vinningar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2013 | 08:00

PGA: Reed leiðir eftir 2. dag á Sedgefield

Það er nýliðinn Patrick Reed sem hefir forystuna þegar Wyndham Championship er hálfnað á Sedgefield golfvellinum, í Greensboro, Norður- Karólínu.  Sjá má kynningu Golf 1 á Patrick Reed með því að SMELLA HÉR:  Reed er búinn að spila á samtals 11 undir pari, 129 höggum (65 64). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er John Huh á 10 undir pari og í 3. sæti er Jordan Spieth frá Texas á samtals 9 undir pari. Sex kylfingar deila síðan 4. sætinu þ.á.m. kylfingurinn „vinsæli“ með kúrekahattinn Rory Sabbatini og forystumaður 1. dags Ross Fisher, en allir eru kylfingarnir í 4. sæti búnir að spila á samtals 7 undir pari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2013 | 22:00

GSÍ: Staðan eftir 1. dag í sveitakeppnum kvenna

Sveitakeppni GSÍ hófst í dag og er keppt í 2 flokkum kvenna. Hér eru úrslit eftir 1. dag: 1. flokkur kvenna – Hólmsvöllur í Leiru hjá GS A-riðill  1. sæti Golfklúbbur Reykjavíkur 9 innbyrðis sigrar 2. sæti Nesklúbburinn                  6 3. sæti Golfklúbbur Suðurnesja  3 4. sæti Golfklúbburinn Oddur     2 B-riðill 1.-2. sæti Golfklúbburinn Keilir  10 1.-2. sæti GKG                                  10 3.-4. sæti GKJ                                  0 3.-4. sæti GSS     Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2013 | 21:30

Sigurpáll og Steinn Auðunn sigruðu í mótinu Læknar á Íslandi

Í dag fór fram í rigningu og nokkuð erfiðum aðstæðum golfmótið Læknar á Íslandi. Mótið var lokað og styrkt af Lyfju. Leikformið var punktakeppni með og án forgjafar.  Leikið var á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG). Þátttakendur voru 25 þar af 1 kvenkylfingur, Ásgerður Sverrisdóttir, GR, en hún varð í 2. sæti í punktakeppni án forgjafar, ásamt klúbbfélaga sínum Sigurpáli Scheving. Sigurvegari í punktakeppninni með forgjöf varð Sigurpáll Scheving GR með 36 punkta og í punktakeppni án forgjafar sigraði Steinn Auðunn Jónsson, GÖ, með 25 punkta og átti 3 punkta á næstu keppendur. Úrslit urðu eftirfarandi: Punktakeppni:  1 Sigurpáll S Scheving GR 18 F 18 18 36 36 36 2 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 16. 2013 | 20:45

GSÍ: Staðan eftir 1. dag í sveitakeppnum karla

Í dag hófst sveitakeppni GSÍ og er keppt í 5 flokkum karla og 2 flokkum kvenna. Eftir 1. dag er staðan eftirfarandi: 1. flokkur karla á Hvaleyrinni hjá GK A-riðill 1. sæti GKG 8 innbyrðis sigrar 2. sæti GK    7 3. sæti NK   4 4. sæti GS    1 B-riðill 1. sæti GR   8 innbyrðis sigrar 2. sæti GSE 7 3. sæti GKJ 4 4. sæti GÓ  1 ———————————— 2. flokkur karla á Vestmannaeyjavelli hjá GV A-riðill 1. sæti GL  2 2. -3. sæti GH 1 2.- 3. sæti GB 1 4. sæti GÖ B-riðill 1. sæti GKB 2.-3. sæti GV 2.-3. sæti GJÓ 4. sæti GHR Lesa meira