Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 20:00

GKG konur Íslandsmeistarar 2013 í Sveitakeppni GSÍ

Kvennasveit GKG er Íslandsmeistari í Sveitakeppni GSÍ 2013, í 1. flokki kvenna. Eftir 4 leiki var allt jafnt og í stáli milli GK og GKG; báðar sveitir með 2 vinninga. Úrslitaviðureignin var því milli klúbbmeistara GK  Þórdísar Geirsdóttur og Særósar Evu Óskarsdóttur, GKG. Þórdís átti 2 holur á Særósu en tapaði 17. og 18. holu og því fór keppnin á 19. holu.  Á næstu 2 holum  fengu þær báðar góð pör. Allt var jafnt á 3. umfram holunni og því héldu leikar áfram á 22. holu.  Þar lenti Særós Eva í vandræðum en Þórdís setti niður glæsilegt 2 metra par-pútt.  Keilir fagnaði að vonum enda liðið búið að sigra með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 13:25

Solheim Cup í beinni

Nú er komið að 4. og lokakeppnisdegi í Solheim Cup, sem að þessu sinni fer fram í Parker, Colorado á heimavelli liðs Bandaríkjanna, dagana 16.-18. ágúst. Staðan fyrir lokahringinn er 10,5 – 5,5 fyrir lið Evrópu! Í dag fara hinir æsispennandi tvímenningsleikir fram og nægir Evrópu að vinna 3 1/2 sigur til þess að halda Solheim Cup í Evrópu! Sýnd veiði en ekki gefin – bein útsending hófst kl. 13:00 Vinnst sögulegur sigur í kvöld –  Vinnst fyrsti sigur evrópsku stúlknanna á bandarískri grund í Solheim bikars keppninni nú  í ár undir forystu Lottu þ.e. Liselotte Neumann? Golfveisla framundan nú um helgina og má  fylgjast með í beinni með því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 13:15

GB: Sigurður og Siggeir sigruðu í Opna Coke

Í gær 17. júní fór fram Opna Coke mótið á Hamarsvelli í Borgarnesi. Helstu úrslit voru eftirfarandi: Opna Coke –  verðlaun 1.sæti      Punktak.     Gjafabréf hjá Örninn Golfbúð 35.000,-  + 2x10pack Carlsberg (ef undir aldri þá Coke) Sigurður Ólafsson  2. sæti     Punktak.     Gjafabréf hjá Örninn Golfbúð 20.000,- + 2x10pack Carlsberg (ef undir aldri þá Coke) Jón Ragnarsson  3. sæti     Punktak.    Gjafabréf hjá Örninn Golfbúð 10.000,- + 1×10 pack Carlsberg (ef undir aldri þá Coke) Ingvar Haraldur Ágústsson  1.sæti      Höggleikur   Gjafabréf hjá Örninn Golfbúð 35.000,-  + 2x10pack Carlsberg (ef undir aldri þá Coke) Siggeir Vilhjálmsson  2. sæti     Höggleikur   Gjafabréf hjá Örninn Golfbúð 20.000,- + 1x10pack Carlsberg (ef undir aldri þá Coke) Jón Karlsson Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 12:45

Solheim Cup: Pettersen gömul?

Fyrir Solheim Cup mótið voru haldnir ýmsir blaðamannafundir með leikmönnum og hér má sjá einn af þeim skemmtilegri. Hér má sjá fundinn með Suzann Pettersen, Charley Hull og Carlotu Ciganda. Í myndskeiðinu hér fyrir neðan fjallar Pettersen sem búin er að taka þátt í 7 Solheim Cup mótum um að kynslóðaskipti séu að eiga sér stað, mikið af nýjum ungum kylfingum séu að koma fram og Charley Hull sé m.a. framtíðin í evrópsku kvennagolfi. Aðspurð hvað hún hefði verið að gera þegar hún var á aldur við Charley (þ.e. 17 ára), svaraði Suzann svo að hún hefði verið í skóla jafnvel þó það liti ekki út fyrir það…. sem aftur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 12:30

Laura Davies fékk PING gullpútter!

Golfdrottningin enska Laura Davies , 49 ára, fékk afhentan gullpútter frá PING, en PING er í eigu Carsten Solheim fjölskyldunnar, sem stendur fyrir Solheim bikars mótinu. Laura hefir tekið þátt í öllum 12 Solheim Cup mótum frá upphafi (1990-2011) að undanskildu þessu 13. Solheim Cup móti, nú í Parker, Colorado, en val hennar var undir fyrirliðanum Liselotte Neumann komið og Lotta valdi hana ekki í liðið. „Það hafa verið frábærir hringir í (Solheim Cup) keppninni sem Laura hefir átt og jafnvel þó hún sé ekki að spila núna þá gæti vel verið að ég yrði að smíða annan gullpútter fyrir hana þegar hún keppir í mótinu í 13. sinn,“ sagði John Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 12:15

Solheim Cup: Nordqvist með ás!

Í gær fór Anna Nordqvist holu í höggi á Solheim Cup, en hún var þá að spila með félaga sínum og löndu Caroline Hedwall, í fjórmenningi laugardagsmorgunsins. Ásinn kom á 17. holu Colorado vallar. Anna sagði m.a. í  viðtalinu eftir hringinn (sem sjá má hér fyrir neðan) að þetta væri eflaust einn af hápunktum ferils síns, það væri sjaldgæft að fara holu í höggi í mótum, hvað þá stórmótum á við Solheim Cup. Sjá má draumahögg Önnu með því að SMELLA HÉR:  Sjá má viðtal við Önnu eftir draumahöggið þ.e. eftir sigurhring þeirra Hedwall í gær með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Egill Egilsson – 18. ágúst 2013

KR-ingurinn Egill Egilsson á afmæli í dag. Hann er fæddur 18. ágúst 1956 og er því 57 ára í dag. Egill er í Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi, (GMS). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Egill Egilsson (57 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Stefán Guðmundur Þorleifsson, GN 18. ágúst 1916 (97 ára!!!)  Joachim B. Hansen, 18. ágúst 1990 (23 ára) danskur á Áskorendamótaröðinni ….. og ….. Thorey Vilhjalmsdottir (41 árs afmæli) Anna Kr. Jakobsdottir (57 ára) Reykjavík Reykvíkingur (89 ára) Grasagarður Reykjavíkur (52 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 11:30

Solheim Cup: Ráshópar í tvímenningsleikjum sunnudagsins – Spá: Golf Channel g. Golf 1

Þá er komið að úrslitaleikjunum á Solheim Cup í dag. Evrópa þarf aðeins 3 1/2 vinning til þess að verja titilinn og halda Solheim bikarnum í Evrópu. Staðan er 10 1/2 fyrir Evrópu gegn 5 1/2 vinningi Bandaríkjanna. Ef tekið er mark á spá Golf Channel verður sigur Evrópu nokkuð öruggur. Þeir eru tveir sem eru með spánna fyrir Golf Channel Jay Coffin og Randall Mell. Til samanburðar verður látin fylgja spá Golf 1.   1. leikur Kl. 14:40 (20:40 að íslenskum tíma) Anna Nordqvist g. Stacy Lewis Spá Golf Channel: Sigur fyrir Bandaríkin Spá Golf 1: Sigur fyrir Bandaríkin. Stacy Lewis er nr. 2 á Rolex-heimslistanum. Hún hefir ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 09:30

PGA: Reed og Huh efstir eftir 3. dag á Wyndham Championship

Það eru þeir Patrick Reed og John Huh sem eru efsti rog jafnir fyrir lokahringinn á Wyndham Championship sem verður leikinn í dag. Báðir eru búnir að spila á samtals 10 undir pari, 200 höggum. Sjá má kynningu Golf 1 á Patrick Reed með því að SMELLA HÉR:  Sjá má kynningu Golf 1 á John Huh með því að SMELLA HÉR:  Fast á hæla þeirra eru 3 kylfingar Zach Johnson, Bob Estes og Jordan Spieth, allir á samtals 9 undir pari, hver. Robert Garrigus, Matt Every og Brian Harman eru síðan í 6. sæti á samtals 8 undir pari, hver.  Brendan Steele er einn í 9. sæti á 6 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2013 | 07:00

Solheim Cup: Staðan eftir 2. dag 10.5 – 5.5 fyrir Evrópu

Allt í fjórboltaleikjunum eftir hádegið á Solheim Cup, laugardaginn 17. ágúst 2013, á 2. keppnisdegi féll  með liði Evrópu.  Hér má sjá hápunktana í frábærri alslemmu Evrópu laugardagssíðdegið í gær þar sem lið Evrópu vann alla 4 leiki sína í fjórboltanum SMELLIÐ HÉR:  Jafnvel evrópsku nýliðarnir Charley Hull og Jodi Ewart Shadoff unnu sinn leik gegn Paulu Creamer og Lexi Thompson 2&0.  Glæsilegur árangur þetta hjá hinum ungu kylfingum í liði Evrópu! Það var líka gaman að sjá Charley spila á móti Lexi, en sagt hefir verið að Charley sé hin evrópska Lexi – báðar komnar í fremstu víglínu ungar að árum; Charley er yngst í keppninni, varð 17 ára 24. mars Lesa meira