Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2013 | 12:00
Hver er kylfingurinn: Brendon de Jonge?

Í næstu viku nánar tiltekið fimmtudaginn 3. október hefst Forsetabikarinn þ.e. keppni milli liðs Bandaríkjanna og Alþjóðaliðsins þ.e. liðs kylfinga allsstaðar úr heiminum nema Evrópu. Fyrirliðar í hvoru liði, Fred Couples (Bandaríkin) og Nick Price (Alþjóðaliðið) fengu að velja kylfinga í lið sitt og hafa hvor um sig valið tvo kylfinga Couples valdi Webb Simpson og Jordan Spieth en Price valdi þá Brendon DeJonge frá Zimbabwe og Marc Leishman frá Ástralíu. Golf 1 hefir þegar kynnt val Couples sjá með því að smella hér: JORDAN SPIETH WEBB SIMPSON I WEBB SIMPSON II WEBB SIMPSON III Nú er komið að því að kynna fyrirliðaval Alþjóðaliðsins, m.ö.o. Hver Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2013 | 10:30
Els ætlar að spila í færri mótum

Fyrst var það Steve Stricker, svo Phil Mickelson og nú ….. Ernie Els. Ætli Stricker hafi vitað að hann hafi komið af stað æði meðal heldri stjörnukylfinga á PGA Tour? Manna sem hafa sannað sig í gegnum tíðina unnið mörg mót og þ.a.l. stórefnast og þurfa ekki að spila í mörgum mótum til að eiga fyrir salti í grautinn. Stricker tilkynnti í upphafi árs að hann ætlaði ekki að spila á eins mörgum mótum og áður; leggja áherslu á gæði en ekki magn. Sú strategía hans hefir reynst vel, en í þeim fáu mótum sem hann spilar í er hann undantekningarlaust meðal þeirra efstu. Og nú ætla Mickelson og Els Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2013 | 08:00
Kylfingar verða að fá góðan svefn – áhrif svefnleysis á þyngdaraukningu

Þegar ég var í læknisfræði var mér sagt að í raun væri auðvelt að leggja af. Allt sem þyrfti að gera væri að borða minna og hreyfa sig meira. Fólk vill bara alltaf finna auðveldustu leiðirnar, pakkaðar inn í formi pilla, megrunar „shake“-a og allskyns megrunarkúra eggjakúrsins, sítrónu- safa kúrsins, hvítvínskúrsins, blóðflokkakúrsins, prótein-kúrsins, kolvetnakúrsins og hvað þeir heita allir. En þó að þessi eina lína prófessorsins feli í raun í sér kjarna formúlunnar að því að fólk leggi af þá er ekki nóg að boða minna og fara í ræktina. Eftirfarandi er mikilvægt fyrir fólk almennt en líka sérlega mikilvægt fyrir kylfinga, og þá sérstakelga þá sem stefna að því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 22:30
LET: Burke og Klatten leiða í Frakklandi eftir 1. dag

Það eru enski kylfingurinn Hannah Burke og „heimakonan“ Joanna Klatten sem leiða eftir 1. dag Lacoste Ladies Open í Frakklandi. Báðar léku þær á 6 undir pari, 64 höggum. Þriðja sætinu deila þær Charley Hull og Stacy Lee Bregman aðeins 1 höggi á eftir á 65 höggum. Í 5. sæti enn öðru höggi á eftir eru heimakonurnar Jade Schaeffer og Anne-Lise Caudal, hin spænska Carlota Ciganda og hin ítalska Diana Luna. Hitinn fór allt upp í 30°C í Saint-Jean-de-Luz, í suð-vestur Frakklandi í dag og var ferlega heitt að spila á þessum upphafsdegi Lacoste mótsins í Chantaco golfklúbbnum.. Burke sem er í efsta sæti sagði m.a. eftir hringinn: „Ég náði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 22:00
Ás Andersons – Myndskeið

Bandaríski kylfingurinn Mark Anderson er einn af þeim sem tekur þátt í lokamóti Web.com. Efstu 20 af mótinu fá kortin sín á PGA Tour og eins þeir 25 sem eru efstir á peningalista Web.com Eftir 1. dag er það einmitt Anderson og Svíinn Robert Karlson, sem efstir eru á Web.com Championship; báðir búnir að spila á 6 undir pari, 64 höggum. Reyndar eiga nokkrir eftir að ljúka leik þegar þetta er skrifað og í reynd aðeins Ástralinn Ashley Hall, sem ógnað gæti 1. sæti Anderson og Karlson, en hann er búinn að spila á 5 undir pari, en á 3 holur eftir óspilaðar. Anderson vakti sérstaka eftirtekt á 1. degi, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 21:30
Evróputúrinn: 5 efstir eftir 1.dag á Alfred Dunhill

Það eru 5 kylfingar sem deila efsta sætinu eftir 1. dag Alfred Dunhil Championship. Allir léku þessir 5 efstu kylfingar á 8 undir pari, 64 höggum. Tveir þessara kylfinga,Englendingarnir Oliver Wilson og Tom Lewis léku á St. Andrews og þrír Englendingurinn Richard McEvoy, Frakkinn Alexandre Kaleka og Mark Tullo frá Chile spiluðu Carnoustie. Síðan er hópur annarra 5 kylfinga sem deila 6. sætinu, aðeins 1 höggi á eftir á 65 höggum eftir fyrsta dag: Tommy Fleetwood (Carnoustie); George Murray (Carnoustie); Mark Foster (St. Andrews); Matthew Baldwin (St. Andrews) og Jamie Donaldsson, sem var sá einasti meðal efstu 10, sem spilaði Kingsbarns. Til þess að sjá stöðuna á Alfred Dunhill Championship Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 12:00
Afmælisylfingur dagsins: Tryggvi Valtýr Traustason – 26. september 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Tryggvi Valtýr Traustason. Tryggvi er fæddur 26. september 1962 og á því 51 árs afmæli í dag!!! Tryggvi er í Golfklúbbi Setbergs í Hafnarfirði. Hann varð m.a. Íslandsmeistari 35+ s.l. ár, 2011, í Kiðjaberginu. En það er aðeins eitt af fjölmörgum afrekum Trygga á sviði golfíþróttarinnar. Sem dæmi mætti nefna að Tryggvi varð klúbbmeistari GK 1983 og 1999. Hann varð klúbbmeistari GSE 2001 og Íslandsmeistari í sveitakeppni með GK 1988, 1989, 1991 og 1995. Tryggvi er kvæntur Kristínu Þorvaldsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Tryggvi Valtýr Traustason (51 árs) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 10:00
Lawrie óánægður með 6 kylfinga

Paul Lawrie er afar óánægður með 6 leikmenn í evrópska Ryder Cup liðinu 2012 þ.e. Rory McIlroy, Justin Rose, Graeme McDowell, Luke Donald, Lee Westwood og Ian Poulter – en allir leikmennirnir hafa dregið sig úr Seve Cup, móti sem komið var á laggirnar af Seve Ballesteros árið 2000. Sam Torrance er fyrirliði liðs Breta&Íra í Seve Cup, sem leitast mun við að ná 7. titlinum í röð gegn liði frá meginlandi Evrópu í St-Nom-La Breteche golfklúbbnum í Paris. Lawrie er sá eini við hlið Torrance af þeim sem komu nálægt ‘The Miracle at Medinah’ þ.e. Ryder Cup keppninni 2012. Lawrie sagðist skilja ákvörðun hinna 6 syndasela að taka ekki þátt á Alfred Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 09:30
7 venjur góðra kylfinga (1/8)

Hér á næstu dögum verður fjallað um 7 venjur góðra kylfinga. Samandregið eru þessar venjur eftirfarandi: 1. Góðir kylfingar æfa „á réttan hátt.“ 2. Góðir kylfingar halda sér í núinu. 3. Góðir kylfingar vinna stöðugt í grundvallaratriðum golfíþróttarinnar. 4. Góðir kylfingar leika sér að því að sjá fyrir sér hlutina og leggja áherslu á tilfinningu fremur en sveiflutækni. 5. Góðir kylfingar vinna í því að endurtaka rútínu. 6. Góðir kylfingar kunna að róa sig þegar pressan er á þeim. 7. Góðir kylfingar sætta sig við hlutina þegar illa gengur og … halda áfram.
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 08:30
Player semur við fyrrum kylfusvein

Lögmaður Gary Player segir að nífaldur risamótssigurvegarinn (Gary Player) hafi sættst við fyrrum vin sinn og kyllfusvein, Dave King, vegna $ 1 milljóna viðskipta milli þeirra, sem fram fóru árið 1999. Lögmaður Player, Larry Gootkin sagði að samið hefði verið utan réttar. King var eitt sinn kylfusveinn Player á The Masters (sjá mynd). Hann hótaði að höfða mál gegn Player fyrir $ 3.3 milljónir og krefjast hluta af eignum golfgoðsagnarinnar fyrir að endurgreiða ekki aftur nokkuð sem King sagðist hafa verið lán. Player hélt því á hinn bóginn fram að ekki hefði verið um lán að ræða, en neitaði ekki að um einhvers konar viðskipti þeirra hefði verið að ræða. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

