Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2013 | 08:30

Player semur við fyrrum kylfusvein

Lögmaður Gary Player segir að nífaldur risamótssigurvegarinn (Gary Player) hafi sættst við fyrrum vin sinn og kyllfusvein, Dave King, vegna $ 1 milljóna viðskipta milli þeirra, sem fram fóru árið 1999.

Lögmaður Player, Larry Gootkin sagði að samið hefði verið utan réttar. King var eitt sinn kylfusveinn Player á The Masters (sjá mynd). Hann hótaði að höfða mál gegn Player fyrir $ 3.3 milljónir og krefjast hluta af eignum golfgoðsagnarinnar fyrir að endurgreiða ekki aftur nokkuð sem King sagðist hafa verið lán. Player hélt því á hinn bóginn fram að ekki hefði verið um lán að ræða, en neitaði ekki að um einhvers konar viðskipti þeirra hefði verið að ræða.

Gootkin sagði við fjölmiðla í gær að sáttin ætti að varna því að málið færi fyrir rétt „að öllum skilyrðum uppfylltum.“  Hann sagði jafnframt að skilmálar sáttarinnar væru trúnaðarmál.