Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2013 | 17:45

Afmæliskylfingur dagsins: Alessandro Tadini – 30. nóvember 2013

Það er Alessandro Tadini sem er afmæliskylfingur dagsins, en hann fæddist 30. nóvember í Borgomanero á Ítalíu 1973 og á því  40 ára stórafmæli í dag.  Tadini gerðist atvinnumaður í golfi 1994. Hann komst á Evróputúrinn 2003, eftir að hafa gert 6 tilraunir til þess að komast í gegn í Q-school. Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé á nýliðaári sínu þannig að hann spilaði næsta keppnistímabil á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour).  Árið 2004 varð hann í 2. sæti á Challenge Tour þannig að hann komst aftur á Evrópumótaröðina og hélt korti sínu þar til loka árs 2007, þegar hann féll aftur niður í Áskorendamótaröðina. Hann kom sér upp aftur, varð í 7. sæti árið 2008, en náði ekki að vera á topp 120 í Race to Dubai árið 2009, þannig að hann spilaði aftur á Áskorendamótaröðinni 2010.

Tadini hefir sigrað þrívegis á Áskorendamótaröðinni, fyrsta skipti á  Costa Rica Open, 2008, í 2. sinn á Oceânico Group Pro-Am Challenge sama ár og svo í Credit Suisse Challenge, árið 2010.

Besta keppnistímabil Tadini til þessa á Evrópumótaröðinni var 2005, þegar hann var í 98. sæti á Order of Merit, en í móti er besti árangurinn T-2 á Aa St. Omer Open, árið 2004.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Steinunn Fjóla Jónsdóttir, 30. nóvember 1970 (43 ára);  Anthony Kang, 30. nóvember 1972 (41 árs); Arnar Halldórsson, f. 30. október 1972 (41 árs); Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, f. 30. nóvember 1979 (34 ára);  Breanna Elliott, 30. nóvember 1991 (22 ára).

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is