Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 09:00

Stenson stefnir á að verða nr. 1 og sigra í risamóti

Það eru fleiri en Lee Westwood sem stefna á sigur í risamóti árið 2014. Ætli það séu ekki flestir kylfingar á stóru mótaröðunum en það eru samt ekki allir að tjá sig um það eins og Westy og nú ….. Henrik Stenson. Markmið Stenson að sögn árið 2014 er að sigra í risamóti og verða nr. 1 á heimslistanum, svo fremi sem honum tekst að halda sér ómeiddum. Frami Stenson hefir verið hreint ótrúlegur sérlega s.l. 6 mánuði; þannig varð hann efstur á peningalistum Evrópumótaraðarinnar og PGA Tour í Bandaríkjunum, á sama árinu,  svo fátt eitt sér tínt til. „Risamótin eru næsta skref fyrir mig,“ sagði Stenson á blaðamannafundi í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 08:00

Lee Westwood ætlar að bæta sig fyrir risamótin

Lee Westwood er nú búinn að fá gamla kylfusveininn sinn aftur og ver löngum stundum með sveifluþjálfaranum sínum, þar sem hann ætlar að bæta alla þætti leiks síns, þar sem hann verður á veiðum á næsta ári eftir fyrsta risamótstitli sínum. Westwood hefir náð 16 topp-10 áröngrum á árinu þar af 8 topp-3 áröngrum og hann vill gjarnan fylla risamótssigureyðuna, sem er gapandi á annars flottum ferli hans. „Að sigra á risamóti er líklega hápunkturinn á ferli hvers kylfings,“ sagði Westy, sem orðinn er  40 ára og var að hamast við að æfa sig fyrir mót Tiger, Northwestern Mutual World Challenge, þegar blaðamaður tók hann tali. Mótið hefst í dag. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 20:00

Ogilvy segir Tiger gefa innantóm viðtöl

Fyrrum meistari Opna bandaríska Geoff Ogilvy hefir ásakað Tiger Woods um að gefa innantóm viðtöl (ens. nothing interviews) og sagði að Tiger hefði getað komið í veg fyrir nýafstaðna „svindlumræðu“ í fjölmiðlum. Ogilvy sagðist sannfærður um heilindi Tiger en var ósáttur við gagnrýni Brandel Chamblee, sem sagði að Tiger hefði farið frjálslega með golfreglurnar. Tiger íhugaði að fara í mál við Chamblee, sem gaf honum „F“ fyrir 2013 keppnistímabilið, þrátt fyrir að Tiger hafi unnið 5 sinnum. Chamblee viðurkenndi síðar að hann hefði gengið of langt þegar hann ásakaði Tiger um svindl og bar atvik Tiger saman við þegar hann svindlaði á stærðfræðiprófi. Saman með umboðsmanni sínum, Mark Steinberg, lýsti Tiger Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 16:00

PGA: Hjálpa golfstjörnur til við uppvaskið?

Nú þegar þakkargjörðarhátíðin  hefir farið fram í Bandaríkjunum (28. nóvember)  og jólin eru á næsta leyti hafa blaðamenn PGA Tour látið sér detta í hug að spyrja eiginkonur og vinkonur golfstjarnanna út í hátíðahaldið heima hjá þeim.   Eftirfarandi spurningar voru lagðar fyrir konurnar fyrir Þakkargjörðarhátíðina (ens. Thanksgiving): Hvað er algert „must“ að hafa á þakkargjörðarhátíðinni hjá ykkur? Hjálpar eiginmaðurinn/vinurinn við eldamennskuna eða við uppvaskið – og hversu fljótt leggur hann sig eða tekur upp sjónvarpsfjarstýringuna? AMY WILSON (eiginkona Mark): Við erum þakklát fyrir að það eru bróðir minn og mágkona sem bjóða okkur heim til sín yfir þakkargjörðarhátíðina. Allt sem við þurfum að koma með er eitt meðlætið með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 14:00

Fyrirlestur Pierre Bechmann fv. formanns R&A á málþingi GSÍ (5/5)

Þann 22. nóvember s.l. hélt GSÍ málþing þar sem fyrsti formaður R&A frá meginlandinu, franski lögmaðurinn Pierre Bechmann hélt ítarlega, langa og góða ræðu um starfsemi R&A í 260 ár. Golf 1 hefir þegar birt hér fyrstu 4 af 5 hlutum ræðu hans og hér fer fimmti og síðasti hluti ræðu hans, sem var býsna löng í flutningi eins og segir eða tæpar 50 mínútur og e.t.v. ekki allir sem hafa náð öllu sem Bechmann vildi koma á framfæri og því farin sú leið að birta ræðuna hans í lauslegri íslenskri þýðingu, en hana má líka sjá á golfstraumi GSÍ á golf.is  Bechmann setur á nýja glæru: Working for Golf Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 13:00

GR: Aðalfundur 5. des kl. 20:00

Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 05. desember kl. 20:00. Fundarstaður: Golfskálinn Grafarholti Dagskrá: Í upphafi aðalfundar skal kjósa sérstakan fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu. 1. Skýrsla formanns. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins. 3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar. 4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna um lagabreytingar ef einhverjar eru. 5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga. 6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. 9. Önnur málefni ef einhver eru.


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Valdís Þóra Jónsdóttir – 4. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2012 – Valdís Þóra Jónsdóttir.  Hún er fædd 4. desember 1989 og er því 24 ára í dag.  Valdís tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í höggleik á Hellu með lokapúttinu og samtals skori upp á 13 yfir pari, 293 höggum  (71 75 72 75) í lok júlí 2012.  Golf 1 tók viðtal við Valdísi Þóru fyrir lokadag mótsins sem rifja má upp með því að SMELLA HÉR:  Valdís Þóra slær upphafshögg sitt á Íslandsmótinu í höggleik 2012. Mynd: Golf 1 Valdís Þóra er klúbbmeistari Golfklúbbsins Leynis í ár og mörg undanfarandi ár. Valdís Þóra er í afrekshóp GSÍ völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara. Hún spilaði golf með golfliði Texas Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 11:30

Guan með í Hong Kong Open

Kínverska unglingsgolfstjarnan Guan Tianlang frá Guangzhou ætlar sér að komast í gegnum niðurskurð á Hong Kong Open, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum og hefst á morgun. Guan skaust á stjörnuhimininn þegar hann skrifaði sig í golfsögubækur með því að vera yngsti þátttakandi í Masters risamótinu og jafnframt sá yngsti sem náð hefir niðurskurði eða 14 ára, 5 mánaða og 18 daga. Hann lék í kjölfarið á mótum PGA þ.e. Zurich Classic í New Orleans og náði niðurskurði þar líka – 14 ára strákurinn!!! Nú er Guan orðinn 15 ára. „Ég ætla að njóta vikunnar og reyna að ná lágu skori,“ sagði Guan við blaðamenn í aðdraganda mótsins. „Ég finn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 11:15

Kaymer með pláss fyrir nýjan „fálka“ í verðlaunabikarsskápnum

Martin Kaymer, þrefaldur sigurvegari á Abu Dhabi HSBC Golf Championship, sem hefst í næsta mánuði hefir staðfest þáttöku sína í mótinu, sem fram fer í næsta mánuði. Hann hefir að sögn pláss fyrir nýjan „fálka“ (verðlaunagrip mótsins) í verðlaunabikarsskáp sínum. „Það er ekkert leyndarmál að ég er mikill aðdáandi National golfvallar Abu Dhabi golfklúbbsins, sem er næstum eins og annað heimili fyrir mig,“ sagði hinn 28 ára Kaymer, sem unnið hefir í mótinu oftast allra eða 3 sinnum í 8 ára sögu mótsins; þ.e. 2008, 2010 og 2011. „Ég hef upplifað einhverja bestu og eftirminnilegustu sigra mína á ferli mínum þar. Mér finnst andrúmsloftið þar sérlega afslappandi og þetta kemur bara náttúrlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 11:01

GK: Aðalfundur mánud. 9. des n.k.

Aðalfundur Keilis verður haldinn á mánudaginn 9. desember n.k. í golfskála Keilis. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan. 19:30 Dagskrá: Kosning fundarstjóra og fundarritara Skýrsla stjórnar Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis Stjórnarkosning Kosning endurskoðanda Kosning fulltrúa og varafulltrúa í samtök, sem Keilir er aðili að Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir starfsárið 2014 Önnur mál Heimild: keilir.is