Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2013 | 10:00
Ernie Els minnist Nelson Mandela á Nedbank Golf Challenge

Í gær bárust þau hryggilegu fréttir frá Suður-Afríku að Nelson Mandela hefði látist 95 ára að aldri. Hann lifði langa ævi. Í gær hófst einnig Nedbank Golf Challenge mótið – þar sem 30 stórstjörnur golfíþróttarinnar keppa sín á milli. Mótinu var frestað í gær vegna þrumu, eldinga og úrkomu. Rétt áður en mótið hófst að nýju hélt Ernie Els tölu, þar sem hann minntist Nelson Mandela. Els sagði m.a.: „Þetta er mjög sorglegur dagur. Mjög sorglegur fyrir Suður-Afríku og reyndar heiminn allan. Við höfum misst einn af íkonum meðal forystumanna okkar tíma. Það er ekki hægt að segja neitt slæmt um manninn. Hann barðist fyrir það sem hann trúði á, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2013 | 09:30
Dyson fékk skilorðsbundið leikbann

Simon Dyson fékk 2 mánaða leikbann í gær fyrir brot sitt á BMW Masters s.l. þar sem hann lagfærði takkafar í púttlínu sinni á 8. flöt. Leikbannið var jafnframt skilorðsbundið þannig að ekki kemur til þess, nema Dyson brjóti golfreglurnar aftur næstu 18 mánuði. Jafnframt var komist að þeirri niðurstöðu um engan ásetning Dyson til brotsins hafi verið að ræða. Dyson var hins vegar sektaður um £30,000 (u.þ.b. 6 milljónir íslenskra króna) og gert að greiða £7,500 í málskostnað (u.þ.b. 1,5 milljónir íslenskra króna). Á síðasta keppnistímabili græddi Dyson meira en £335,000 (60 milljónir íslenskra króna í mótum Evrópumótaraðarinnar) þannig að sekting ásamt kostnaði er u.þ.b. tíund af innkomu hans. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 6. 2013 | 09:00
Úlfar lætur af störfum sem landsliðsþjálfari

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt stjórn GSÍ að hann óski eftir að láta af störfum sem landsliðsþjálfari. Í yfirlýsingu sem Úlfar sendi frá sér kemur fram eftirfarandi; „Ég tel þetta réttan tímapunkt fyrir mig að stíga til hliðar úrlandsliðsþjálfarastöðunni. Ég kom að gerð afreksstefnu sambandsins og hef unnið í tvö ár að innleiðingu hennar og tel að landsliðsmálin séu í góðum farvegi og spennandi tímar framundan. Hinsvegar gegni ég einnig stöðu íþróttastjóra GKG og þó svo að gengið hafi að mestu leyti vel að sameina þetta tvennt, þá er umfang beggja starfa of mikið til að sinna með góðu móti. Það er heiður að fá að starfa sem landsliðsþjálfari og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 16:00
Valdís Þóra á 5 yfir pari og í 14. sæti eftir 1. dag í Marokkó

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL er í baráttunni um sæti í lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna. Hún fresitar þess að verða 2. kvenkylfingurinn til þess að spila á Evrópumótaröð kvenna – LET (Ladies European Tour) – en eini íslenski kylfingurinn, sem spilað hefir á LET hingað til er Ólöf María Jónsdóttir, GK. Eftir 9 holu leik var Valdís Þóra á 2 yfir pari, 38 höggum; fékk 2 fugla og 4 skolla. Á seinni 9 gekk ekki eins vel en þá fékk Valdís Þóra skramba á par-4 11. holuna og þar að auki skolla á 16. holuna og tókst ekki að taka neitt tilbaka. Eftir 1. dag er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 15:30
Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía Elsa Jónsdóttir – 5. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Stefanía Elsa Jónsdóttir. Stefanía Elsa er fædd 5. desember 1996 og því 17 ára í dag. Hún er afrekskylfingur Golfklúbbs Akureyrar. Árið 2012 hlaut Stefanía Elsa m.a. heiðursnafnbótina Fyrirmyndarkylfingur GA. Stefanía Elsa keppti á Íslandsbankamótaröðinni í ár með góðum árangri. Þannig er hún t.a.m. í 10. sæti á stigalista GSÍ í stúlknaflokki 2013. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Stefania Elsa Jónsdóttir (17 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Helen Dettweiler, f. 5. desember 1914 – 13. nóvember 1990; Beverly Hanson, 5. desember 1924 (89 ára); Lanny Wadkins, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 13:00
Evróputúrinn: Luke Donald leiðir á Nedbank Golf Challenge þegar leik er frestað

Fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Luke Donald leiðir þegar leik er frestað á Nedbank Golf Challenge mótinu, sem fram fer í Gary Player CC í Suður-Afríku vegna þrumuveðurs- og eldingahættu. Það eru 30 stórstjörnur golfsins sem keppa í mótinu. Luke átti draumabyrjun, fékk fugl á 1 holuna og fylgdi honum eftir með erni á næstu holu – hann var því kominn á 3 undir eftir aðeins 2 spilaðar holur!!! Síðan fékk Luke 4 pör og var því aðeins búinn að spila 6 holur þegar mótinu var frestað tímabundið. Í 2 sæti 2 höggum á eftir honum, allir sem sagt á 1 undir pari eru: Henrik Stenson, Charl Schwartzel, Jamie Donaldsson, Gonzalo Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 11:00
Fylgist með Valdísi Þóru í Marokkó

Valdís Þóra Jónsdóttir , GL, hóf fyrir um einni klukkustund leik á rauða golfvelli Royal Golf Dar Es Salam í Rabat, í Marokkó, en hún tekur þátt í Lalla Aicha úrtökumótinu til þess að komast inn á Evrópumótaröð kvenna. Valdís Þóra átti rástíma kl. 10:00 að staðartíma. Þeim, sem komast vilja inn á lokaúrtökumótið, sem fram fer 14.-18. desember n.k. þar sem efstu keppendur hljóta kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, er skipti í tvo hópa. Valdís Þóra leikur ásamt 51 öðrum kvenkylfingi á rauða vellinum, en álíka stór hópur keppir á bláa vellinum í dag. Hóparnir skiptast síðan á um að spila vellina. Valdísi Þóru til halds og trausts er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 10:30
Evróputúrinn: David Higgins efstur eftir 1. hring Hong Kong Open

Það er Írinn David Higgins, sem er efstur eftir 1. hring Hong Kong Open, sem hófst í nótt. Higgins lék á glæsilegum 6 undir pari, 64 höggum á hring þar sem hann var með 3 skolla og 9 fugla, á Fanling golfvellinum í Hong Kong. „Þetta var frábært,“ sagði hinn 41 árs gamli Higgins m.a. eftir hringinn. „Ég spilaði pottþétt golf frá teig að flöt og setti niður nokkur yndisleg pútt og vippaði í.“ Í 2. sæti er Ítalinn Andrea Pavan á 5 undir pari, 65 höggum og þriðja sætinu deila sjö kylfingar m.a. Englendingur Adam Gee. Guan Tianlang, 15 ára unglingurinn lék 1. hringinn á 1 yfir pari, 71 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 10:12
NÝTT!!! Golfvellir í Kanada

Svo sem sjá má efst í hægra horni á Golf 1 vefnum eru nýir áfangastaðir Icelandair, Edmonton og Vancouver í Kanada. Þ.a.l. bjóðast kylfingum spennandi kostir að spila með auðveldari hætti golf í Kanada, en talið er að um 2000 golfvellir séu í Kanada. Þetta þýðir m.a. að jafnvel þótt kylfingar myndu spila 1 nýjan völl á hverjum degi ársins í Kanada myndi það taka 5 1/2 ár að ljúka að spila alla vellina!!! Þannig að úrval golfvalla í Kanada er mikið. Golf 1 mun nú fram að jólum kynna nokkra skemmtilega golfvelli nálægt Edmonton og Vancouver, þannig að allir kylfingar ættu að finna eitthvað við sitt hæfi!!! Hér má Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2013 | 09:15
Batman golfbíll

Ef þið eruð í golfi og aðdáendur Batman þá er leitt að þurfa að segja frá því að þið hafið misst af jólagjöf ársins. Hægt hefði verið að hræða andstæðinga ykkar á golfvellinum með þessum vígalega Batman golfbíl, sem nær allt að 60 km/klst hraða, en búið er að selja hann á eBay fyrir næstum $ 20,000 (u.þ.b. 2 milljónir íslenskra króna). Framleiðslukostnaður bílsins, sem byggir á Dark Knight kvikmyndum Dan Nolan, er vel yfir 3 milljónir íslenskra króna, skv. þeim hjá eBay. Meðal útbúnaðar bílsins eru diskabremsur, stillanleg leðursæti, iPad, glasahaldarar og nokkuð hávær bílflauta. Seljandi bílsins varð að selja hann til þess að skapa meira pláss hjá sér Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

