Klúbbhús GR við Grafarholtsvöll. Mynd: grgolf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 4. 2013 | 13:00

GR: Aðalfundur 5. des kl. 20:00

Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 05. desember kl. 20:00.
Fundarstaður: Golfskálinn Grafarholti

Dagskrá:
Í upphafi aðalfundar skal kjósa sérstakan fundarstjóra og ritara eftir tilnefningu.

1. Skýrsla formanns.
2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar.
4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna um lagabreytingar ef einhverjar eru.
5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga.
6. Ákveðið árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara.
9. Önnur málefni ef einhver eru.