Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 16. 2013 | 21:30

Valdís á 82 höggum 3. hringinn

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL lék 3. hring á lokaúrtökumóti LET – Lalla Aicha Tour School Final Qualifying – líkt og á 2. degi þ.e. á 82 höggum og er í næstneðsta sæti, þ.e. 93. sæti, en keppendur eru 94.

Í dag var Al Maaden golfvöllurinn leikinn að nýju, en á fyrsta hring náði Valdís Þóra skori upp á 74 högg á þeim hring.

Samtals er Valdís Þóra búin að spila á samtals 22 yfir pari, 238 höggum (74 82 82).  Í dag fékk hún 1 fugl, 7 skolla og 1 skramba.

Það virðist nokkuð öruggt að Valdís Þóra nær ekki að vera meðal 60 efstu sem spila lokahringinn og þ.á.m. um að verða meðal þeirra 30 efstu sem fá kortin sín á Evrópumótaröð kvenna fyrir keppnistímabilið 2014.  Til þess að svo mætti verða yrði hún að vinna upp 16 högg, sem er hreinn ómöguleiki.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á lokaúrtökumótinu SMELLIÐ HÉR: