Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 16:30

PGA: Phil og Tiger ekki með í TOC

TOC eða m.ö.o. Tournament of Champions mótið markar ekki lengur upphaf keppnistímabils PGA, þó það sé fyrsta mótið á dagskránni hjá PGA Tour á hverju ári. Enn einu sinni hafa Tiger Woods og Phil Mickelson tilkynnt að þeir muni ekki taka þátt í mótinu þó báðir eigi keppnisrétt á því, þar sem þeir unnu mót ár árinu 2013, en einungis sigurvegarar hvers árs á PGA Tour fá keppnisrétt í mótinu. Jafnframt munu Graeme McDowell, Justin Rose og Henrik Stenson, ekki taka þátt. Meðal þátttakendanna 30 er sigurvegarar frá 2013 og upphafi 2013-2014 keppnistímabilsins. Þ.á.m. eru sá sem á titil að verja Dustin Johnson og Masters sigurvegarinn Adam Scott, sem spila mun í mótinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 16:00

GHG: Fannar Ingi Steingrímsson íþróttamaður Hveragerðis 2013

Fannar Ingi Steingrímsson kylfingur hjá GHG var kjörinn íþróttamaður Hveragerðis árið 2013við hátíðarathöfn sem fram fór á vegum Hveragerðisbæjar í Listasafni Árnesinga. Fannar Ingi hefur æft íþrótt sína af miklum metnaði og sjálfsaga. Fannar Ingi er þroskaður íþróttamaður þrátt fyrir ungan aldur og er fyrirmynd jafnt innan vallar sem utan. Helstu afrek ársins má nefna vallarmet, 61 högg, á Strandarvelli á fullorðinsteigum (gulum teigum) en þar fór hann einnig holu í höggi og var með átta fugla. Í öllum unglingalandsliðsverkefnum ársins hefur hann á mótum leikið undir pari vallanna. Fannar tók þátt í nokkrum alþjóðlegum mótum erlendis þar sem hann stóð sig mjög vel en þar má nefna Finnish International Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 15:30

Alfreð Brynjar og Ólafía Þórunn í golfi á jólum – Myndskeið

Hann flýgur fljótt tíminn og það er eins og það hafi verið í gær sem meðfylgjandi myndskeið birtist af þeim Alfreð Brynjari og Ólafíu Þórunni Kristinsbörnum í golfi í Grafarholtinu á jólum. Samt eru nú liðin 3 ár. Ólafía Þórunn er núverandi Íslandsmeistari í holukeppni og í Golfklúbbi Reykjavíkur meðan Alfreð Bryjar er s.s. flestir vita í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, en bæði hafa þau orðið klúbbmeistarar í golfklúbbum sínum. Hér má rifja upp myndskeiðið skemmtilega sem faðir þeirra, Kristinn Gíslason útbjó SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 13:45

Palmer bjargar jólunum – Myndskeið

Andi jólanna kemur sterkt fram í meðfylgjandi myndskeiði þar sem frægðarhallarkylfingurinn og golfgoðsögnin Arnold Palmer „hringir í jólasveininn“ en saman bjarga þeir tveir jólunum hjá börnum sem dveljast þurfa á sjúkrahúsi yfir jólin. Það er svo sannarlega gott að Palmer er í beinu sambandi við sveinka! Andi jólanna endurspeglast m.a. í gleðinni – þ.e. gleðinni hjá börnunum yfir að fá gjafir að þau séu ekki gleymd af jólasveininum, sem kemst ekki niður strompinn – þar sem sjúkrahús hafa jú enga skorsteina og ekki síður gleðinni yfir að gefa. Meðal helstu góðverka Palmer, sem gefið hefir tilbaka til samfélagsins á svo ótal marga vegu, af þeim auðævum, sem hann hefir unnið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 13:00

Charley Hull af pólsku bergi brotin (3/5)

Það er eitthvað svo ótrúlega venjulegt við Charley Hull – ólíkt mörgum undrabörnum, þá átti hún fremur venjulega æsku jafnvel þó hún væri með afburðahæfileika í golfi.  Það eina óvenjulega er e.t.v. að foreldrar hennar samþykktu að taka hana úr skólanum 13 ára og kenna henni heima til þess að hægt væri að laga námið betur að allri golfþjálfuninni „Ég hef alltaf viljað njóta æskunnar,“ segir Charley. „Alveg eins og nú vil ég bara vera venjulegur táningur og þræta við vini mína á Facebook – jafnvel þó margir þeirra séu miklu eldri en ég, 22 eða jafnvel 23 ára. Mér semur alltaf við þroskaðra fólk en við getum enn verið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 12:30

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Adrien Saddier (22/27)

Í dag verður fram haldið að kynna þá 3  stráka, sem deildu  5.-7.  sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir John Hahn, Adrien Saddier og Michael Lundberg. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum og hlutu € 5.240,- í verðlaunafé. Í dag verður franski kylfingurinn Adrien Saddier kynntur en hann varð í 6. sæti í Q-school, lék á (71 66 69 71 67 71). Saddier vann svo sannarlega fyrir korti sínu á Evrópumótaröðinni en hann tók þátt í öllum 3 stigum úrtökumótsins og var aðeins einn af 6 sem tókst að komst inn af 1. stiginu. Adrien var annar af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 11:30

Hver spilar með DJ?

Í fyrsta sinn í sögu PGA Tour geta áhorfendur valið rásthóp í Hyundai Tournament of Champions, sem fram fer 3.-6. janúar í Kapalua Hawaii, Og ekki bara hvaða ráshóp sem er heldur þann sem spila á með DJ eða Dustin Johnson, sem á titil að verja. Allt fram til 30. desember er nefnlega hægt að kjósa um það með hverjum DJ spilar á 1. hring mótsins.  Einungis er þó hægt að velja milli  Adam Scott, Brandt Snedeker og Matt Kuchar. Eins er hægt að kjósa á Twitter og á þá að tvíta  #VoteScott, #VoteKuchar eða  #VoteSneds. Hægt er að kjósa með því að SMELLA HÉR: Það er Steve Shannon, sem ber ábygð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 11:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Lucy Williams (4/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 27. sætinu (voru jafnar í 27.-31. sætinu) og rétt sluppu inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 yfir pari, 362 högg:   Bonita Bredenhann,  Lucy Williams, Victoria Lovelady , Laura Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 07:00

Rory vinsæll hjá kvenfólkinu

Rory McIlroy hefir unnið sér inn margar milljónir bandaríkjadala á golfi og með auglýsingasamningum. Í nýlegri könnun um kvenhylli ýmissa íþróttastjarna og annarra „þekktra“ manna kom í ljós að yfir 10% kvenna á Norður-Írlandi gætu vel hugsað sér að næla sér í Rory undir mistilteini á jólunum.  Sá sem var vinsælastur meðal kvenfólksins í könnuninni er bandaríski leikarinn Bradley Cooper (lék m.a. í Hangover þríleiknum) en ein af hverri 5 aðspurðri gat hugsað sér jólakoss frá honum. Í 2. sæti var söngvarinn Bruno Mars, með 15% atkvæða kvenna.  Rory kemur ekkert illa út með sín 10% – er ofar í þessari skoðanakönnun en hann hefir verið í mótum undanfarið ár! Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 27. 2013 | 23:45

Afmæliskylfingur dagsins: Árni Páll Hansson – 27. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Árni Páll Hansson. Árni Páll er fæddur 27. desember 1968 og á því 45 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR) þar sem hann fæst m.a. við afreksþjálfun. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Árni Páll Hansson, GR (45 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Sherri Steinhauer, 27. desember 1962 (51 árs);  Matthew Zions, 27. desember 1978 (35 ára);  Helena Callahan, 27. desember 1986 (27 ára) ….. og ….. Júlíana Kristný Sigurðardóttir (15 ára) Unnar Geir Einarsson (19  ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til Lesa meira