Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 17:30

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Rut Svanbergsdóttir – 29. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Rut Svanbergsdóttir.  Helga Rut er fædd 29. desember 1982 og á því 31 árs afmæli í dag!!! Helga Rut byrjaði í golfi 10 ára gömul, þegar pabbi hennar sendi hana á golfnámskeið hjá GKJ. Þar kynntist hún vinkonum sínum Evu Ómarsdóttur, Katrínu Dögg Hilmarsdóttur, Snæfríði Magnúsdóttur og  Nínu Björk Geirsdóttur og saman eru þær stöllur fyrir löngu orðnar landsþekktir kylfingar. Saman urðu þær Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 1998 og 2001. Af mörgum afrekum Helgu Rutar á golfsviðinu er e.t.v. rétt að geta að hún varð Íslandsmeistari í flokki stúlkna 16-18 ára árið 1999 og 2000. Hún varð stigameistari stúlkna 16-18 ára 1999 og 2000. Helga Rut keppti með liði Skandínavíu gegn Bandaríkjunum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 17:00

GÓ: Aðalfundur í kvöld kl. 19:30

Aðalfundur Golfklúbbs Ólafsfjarðar verður haldinn í dag, sunnudaginn 29. desember nk. kl. 19:30 í félagsheimilinu Tjarnarborg. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 8. gr. laga GÓ. Stutt kynning á www.golf.is Veitingar í boði.  Félagar eru hvattir til að fjölmenna!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 16:45

GK: Áramótapúttmót Hraunkots

Þá er komið að hinu árlega Áramótapúttmóti Hraunkots sem fer fram á gamlársdag. Byrjað verður að pútta klukkan 10:00 og verður opið til klukkan 15:00. Glæsileg verðlaun í boði einsog ávallt.  Aukaverðlaun fyrir flesta ása, flest þrípútt og flesta tvista. Stinni verður með kaldan á kanntinum og allt fljótandi í snakki og ídýfum. Leiknir verða tveir 18 holu pútthringir og telur betri hringurinn í mótinu. Kylfingar eru hvattir til að koma og klára golfárið í Hraunkoti. Þátttökugjald einungis 700 krónur. Einnig verður golfskálinn opin fyrir þá sem vilja setjast niður og fara yfir golfsumarið. Heimild: Keilir.is


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 16:30

Mest lesnu fréttir Golf Channel 2013

Lesendur virðast elska eða hata (eða elska að hata) Tiger Woods. En það vita allir golffréttaritarar um allan heim að vinsælla fréttaefni finnst ekki. Sérstaklega þegar kemur að einhverjum skandölum honum tengdum s.s. svindli í golfi, sögum af honum og kærustu hans, Lindsey Vonn, eða fréttin af því í ár þegar kylfingurinn Sergio Garcia lét orð falla sem túlkuð voru sem kynþáttaníð í garð Tiger. Þetta sést best þegar skoðaðar eru 25 vinsælustu fréttir á einum stærsta golffréttamiðli heims: Golf Channel í Bandaríkjunum. Í 15 af 25 vinsælustu fréttum Golf Channel er Tiger fréttaefni.  Þar bar hæst á árinu 2013 ósætti Tiger og Sergio Garcia, sem var langvinsælasta fréttaefnið á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 15:00

Hæfileikar Charley Hull komu fljótt í ljós (4/5)

Það eru tveir þjálfara Charley Hull, sem hafa komið henni þangað sem hún er í dag. Þeim hefir tekist að draga fram og undirstrika eðlislæga hæfileika hennar. Jafnskjótt og þeir sáu hana spila gerðu þeir Kevin Theobald (golfkennari í Kettering golfklúbbnum á Englandi) og Lee Scarbow (sá sami og kenndi Ian Poulter) sér grein fyrir að frammi fyrir þeim var einstakur kylfingur. „Kevin sagði mér að slá fastar,“ sagði Hull. „Ég sló boltann eins og lítil stúka og hann sagði við mig: Nei, reyndu að slá eins og karlmaður (þ.e. kraftmeira).  Ég var 6 ára þegar hann sagði mér þetta.“ „Lee hefir bætt tæknilegu hlið mína mikið. Hann fínpúsaði mig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 14:45

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Michael Lundberg (23/27)

Í dag verður lokið að kynna þá 3  stráka, sem deildu  5.-7.  sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir John Hahn, Adrien Saddier og Michael Lundberg. Allir léku þeir á samtals 13 undir pari, 415 höggum og hlutu € 5.240,- í verðlaunafé. Hahn og Saddier hafa þegar verið kynntir og því verður nú Michael Lundberg kynntur sem varð í 5. sæti.  Lundberg lék á 69 68 70 71 66 71 í lokaúrtökumótinu. Michael Lundberg fæddist 13. ágúst 1973 og var því fertugur á árinu.  Hann tók einnig þátt í Q-school Evrópumótaraðarinnar í fyrra þ.e. 2012 og varð þá í 2. sæti á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 14:00

9 afmælisgjafahugmyndir fyrir Tiger

Tiger Woods á afmæli á morgun – verður 38 ára!  Vefsíða nokkur birti 9 afmælisgjafahugmyndir fyrir Lindsey um hvað hún gæti gefið Tiger í afmælisgjöf.  Frábært að eiga afmæli 30. des …. og fá að opna enn fleiri pakka!!! Hér koma afmælisgjafahugmyndirnar: Nr. 1   38 ára afmælisbolur Nr. 2 Íkornagildra Í forsetabikarskeppninni setti Lindsey íkorna á bak Tiger, sem öllum fannst voða fyndið …. nema Tiger.  Sjá myndskeið frá þessari uppákomu með því að SMELLA HÉR:   Gjöfin er meira táknræn til að bæta fyrir fyrri misgjörðir. Nr. 3 Skíðatímar í Vail Tiger og Lindsey hafa sést á skíðum saman og Lindsey upplýsti í viðtali að  Tiger vildi gjarnan bæta skíðakunnáttuna. Lindsey er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 13:30

Kylfingar og jólapeysurnar

Kylfingar hafa verið duglegir að tvíta myndir af sér í jólapeysum.  T.a.m. tvítaði Luke Donald meðfylgjandi mynd hér að ofan af sér og var að grínast í Ian Poulter að hann væri í því nýjasta úr IJP fatalínunni (þ.e. föt sem Ian Poulter hannar)! Síðan tvítaði hann aðra mynd af sér  í sömu peysu og Díönu konu sinni og nokkrum vinum í „ljótra-jólapeysu-partýi.“  Sjá hér að neðan: Ian Poulter birti síðan eftirfarandi mynd af sér á jóladag – þar er hann ekki í neinni jólapeysu en í súpermanbúningi – hmmm, verið að vinna í andlegu hlið golfsins um jólin? En svo við höldum okkur við jólapeysuþemað þá tvítaði Rory eina Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 08:00

Kylfingurinn Gylfi Þór íþróttamaður ársins 2013

Kylfingurinn Gylfi Þór Sigurðsson var kjörinn íþróttamaður ársins 2013 í gærkvöldi með viðhöfn af Samtökum Íþróttafréttamanna…. að vísu fyrir afrek á sviði knattspyrnu, en Gylfi Þór leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham Hotspurs. Gylfi er fæddur 8. september 1989 og því 24 ára. Hlaut Gylfi Þór 446 stig af 500, en 25 af 26 félögum SÍ nýtti sér atkvæðisrétt sinn. Í 2. sæti varð Aníta Hinriksdóttir,  frjálsum íþróttum, með 288 stig og Guðjón Valur Sigurðsson, handbolta, varð í 3. sæti með 236 stig. Tveir kylfingar voru meðal tilnefndra Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, sem hlaut 15 stig (13.-14. sæti af 23) og Valdís Þóra Jónsdóttir, sem hlaut 2 stig (22. sæti af 23). Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Martin Kaymer —— 28. desember 2013

Það er nr. 39 á heimslistanum, þýski PGA risamótstitilshafinn Martin Kaymer, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kaymer fæddist 28. desember 1984 í Düsseldorf í Þýskalandi og svo skemmtilega vill til að hann er 29 ára í dag. Hann heldur heimili bæði í Mettmann í Þýskalandi og í Scottsdale, Arizona og æfir í eyðimörkinni þar – en við þannig aðstæður virðist hann kunna vel við sig  s.s. 3 sigrar hans á Evrópumótaröðinni í Abu Dhabi bera vitni um.  Kaymer gerðist atvinnumaður 2005 og hefir á þeim tíma sigrað 19 sinnum, þar af 10 sinnum á Evrópumótaröðinni. Fræknasti sigur hans til þessa  er þó á PGA Championship risamótinu, árið 2010 og eins var Lesa meira