Martin Kaymer
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 28. 2013 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Martin Kaymer —— 28. desember 2013

Það er nr. 39 á heimslistanum, þýski PGA risamótstitilshafinn Martin Kaymer, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kaymer fæddist 28. desember 1984 í Düsseldorf í Þýskalandi og svo skemmtilega vill til að hann er 29 ára í dag. Hann heldur heimili bæði í Mettmann í Þýskalandi og í Scottsdale, Arizona og æfir í eyðimörkinni þar – en við þannig aðstæður virðist hann kunna vel við sig  s.s. 3 sigrar hans á Evrópumótaröðinni í Abu Dhabi bera vitni um.  Kaymer gerðist atvinnumaður 2005 og hefir á þeim tíma sigrað 19 sinnum, þar af 10 sinnum á Evrópumótaröðinni. Fræknasti sigur hans til þessa  er þó á PGA Championship risamótinu, árið 2010 og eins var hann í sigursælu Ryder Cup liði Evrópu sama ár og eins var hann í undraliðinu evrópska í Rydernum í Medinah, átti sigurpútt liðsins þar.

Afmæliskylfingurinn okkar vann það einstaka afrek eitt sinn að spila á 59 höggum á Habsberg Classic, þ.e. 22. júní 2006 meðan hann spilaði enn á EDP túrnum. Hér má sjá skorkort Martin Kaymer á frábæra 59 högga hring hans, upp á -13 undir pari, en það eru ekki margir kylfingar, sem hafa „breakað“ 60 úti á golfvelli og hvað þá í móti eins og Kaymer gerði:

Hola 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Út 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Inn Samt.
Par 4 3 4 5 4 4 4 3 5 36 4 5 3 4 4 4 3 5 4 36 72
Skor 4 4 3 4 3 3 4 2 4 31 3 3 2 4 3 3 2 5 3 28 59

 

Loks má hér sjá myndskeið með fallegri golfsveiflu afmæliskylfingsins Kaymers:  MARTIN KAYMER Í SVEIFLU

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Peggy Wilson, 28. desember 1934 (79 ára);  Hubert Myatt Green, 28. desember 1946 (67 ára) ….. og ……

Sigríður Snorradóttir (53 ára)

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is