Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 29. 2013 | 17:30

Afmæliskylfingur dagsins: Helga Rut Svanbergsdóttir – 29. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Helga Rut Svanbergsdóttir.  Helga Rut er fædd 29. desember 1982 og á því 31 árs afmæli í dag!!!

Kvennasveit GKJ - Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 1998. F.v.: Nína Björk Geirsdóttir, Eva Ómarsdóttir, Afmæliskylfingurinn okkar Helga Rut Svanbergsdóttir, Snæfríður Magnúsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir og Steinunn Björk Eggertsdóttir. Myndin er tekin 1998 og er í eigu Helgu Rutar.

Kvennasveit GKJ – Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 1998. F.v.: Nína Björk Geirsdóttir, Eva Ómarsdóttir, Afmæliskylfingurinn okkar Helga Rut Svanbergsdóttir, Snæfríður Magnúsdóttir, Katrín Dögg Hilmarsdóttir og Steinunn Björk Eggertsdóttir. Myndin er tekin 1998 og er í eigu Helgu Rutar.

Helga Rut byrjaði í golfi 10 ára gömul, þegar pabbi hennar sendi hana á golfnámskeið hjá GKJ. Þar kynntist hún vinkonum sínum Evu Ómarsdóttur, Katrínu Dögg Hilmarsdóttur, Snæfríði Magnúsdóttur og  Nínu Björk Geirsdóttur og saman eru þær stöllur fyrir löngu orðnar landsþekktir kylfingar.

Saman urðu þær Íslandsmeistarar í sveitakeppni kvenna 1998 og 2001. Af mörgum afrekum Helgu Rutar á golfsviðinu er e.t.v. rétt að geta að hún varð Íslandsmeistari í flokki stúlkna 16-18 ára árið 1999 og 2000. Hún varð stigameistari stúlkna 16-18 ára 1999 og 2000. Helga Rut keppti með liði Skandínavíu gegn Bandaríkjunum í IZZO Cup árið 2000. Þá var hún í 3. sæti með íslenska stúlknaliðinu á Norðurlandamótinu árið 2000 og einnig í 2. sæti í einstaklingskeppninni í sama móti. Helga Rut varð Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2003 og er fyrsta konan til að ná í þann titil fyrir GKJ. Sama ár, 2003, varð Helga Rut klúbbmeistari GKJ (sjá mynd hér að neðan). Auk golfíþróttarinnar spilaði Helga Rut badminton með Aftureldingu í Mosfellsbæ.

Þess má loks geta hér að sú sem greinina skrifar kynntist Helgu Rut í golfveislu á Penina, í Portúgal, árið 2005 og var þá byrjandi í golfi. Helga Rut var stjarna og myndir af henni fylltu golftímarit á þeim tíma. En það var engum stjörnustælum fyrir að fara, Helga Rut var eitt sólskinsbros, hress, hvetjandi og íþróttamannsleg fram í fingurgóma – sannur fulltrúi golfíþróttarinnar, sem sómi er af.

Komast má á facebook síðu Helgu Rutar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Helga Rut Svanbergsdóttir · 31 árs

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Curt Allen Byrum, 29. desember 1958 (55 ára); Arinbjörn Kúld, GA, 29. desember 1960 (53 ára); Bruce Bulina, 29. desember 1966 (47 ára); Drew Hartt, 29. desember 1966 (47 ára); Robert Dinwiddie, 29. desember 1982 (31 árs); Martin Laird, 29. desember 1982 (31 árs) ….. og …..

Ásta Henriksen

Jason Nói Arnarsson 

 

Finnbogi Þorkell Jónsson · 32 ára

 

Arinbjörn Rebel Kúld · 53 ára

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is