Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 20:30

Ótrúleg saga kylfusveins Ishikawa

Simon Clarke er kylfusveinn Ryo Ishikawa. Hann fór til Japan til þess að læra tungumálið, japönsku, og fríska upp á kunnáttu sína í hlut Japana í seinni heimstyrjöldinni. Hann var reglulega spenntur fyrir því að fá að heimsækja Pearl Harbor (á Hawaii) þegar hann var í smá fríi frá kaddýstörfunum fyrir Ryo Ishikawa á Hawaii í Sony Open. Síðustu tveir áratugir hafa farið allt öðruvísi en hann gat órað fyrir. „Ég hef verið mjög heppinn,“ sagði Clarke. Hinn 44 ára Ástrali er pennafær rithöfundur. Hann hefir t.a.m skrifað 10.000 orða ritgerð um af hverju Japanir sprengdu Pearl Harbor, en Clarke er frægari á Japan Golf Tour fyrir að útbúa fjarlægðarbækurnar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 13:30

Tiger í ráshóp með Gallacher og Couples í Champions Challenge – Rástímar

Stephen Gallacher, sem á titil að verja í Omega Dubai Desert Classic, Fred Couples sigurvegari í mótinu 1995 og Tiger Woods drógust saman í ráshóp þ.e. þann síðasta á  Champions Challenge sem fram fer í  Emirates golfklúbbnum þriðjudaginn 28. janúar n.k. Þetta er 18 holu höggleikskeppni og keppt er um  US$600,000 í tilefni af 25 ára afmæli elsta móts Evrópumótaraðarinnar utan Evrópu. Eini fyrrum sigurvegari mótsins sem ekki keppir í því er Seve Ballesteros, sem lést af völdum krabbameins langt um aldur fram í maí 2011. Sonur hans Javier, sem keppir á Áskorendamótaröð Evrópu mun þó vera á staðnum og keppa í stað föður síns og er í ráshóp með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 11:30

GR: Púttmótaröð barna og unglinga hefst sunnudaginn 19. janúar n.k.

Púttmótaröð barna og unglinga hefst sunnudaginn 19 .janúar 2014. Mótið er opið öllum sem æfa golf hjá GR og er aldursskiptingin miðuð við 12 ára og yngri, 12 – 16 ára og 16 ára og eldri. Mótið samanstendur af 8 skiptum þar sem spilaðir eru tveir 18 holu hringir þar sem betri hringurinn telur. Fjórir bestu hringirnir telja til Púttmeistara GR í hverjum aldursflokki fyrir sig. Því fleiri hringir sem spilaðir eru því meiri möguleiki á að bæta skorið sitt. Húsið er opið á sunnudögum frá kl 11 – 13. Mótsgjald er kr 2000 fyrir öll skiptin. Púttmeistari GR í barna og unglingaflokkum verður krýndur í veglegu hófi um miðjan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 11:00

Hvernig Howard Stern hjálpaði Keegan Bradley – Myndskeið

Sjónvarps- og útvarpsstjórnandinn Howard Stern, sem alla tíð hefir verið hvorutveggja í senn, vinsæll og umdeildur, varð 60 ára í gær. Howard Stern spilar golf, en það má m.a. sjá hér þar sem hann slær 300 yarda dræv…. að eiginn sögn – en því miður var höggið tekið upp á vídeó og því komst hann ekki alveg upp með þessa hagræðingu sannleikans  SMELLIÐ HÉR:  Einn er sá sem alla tíð hefir verið jákvæður í garð Howard Stern (margir þola hann ekki) en það er Keegan Bradley. Í viðtali hjá Feherty á Golf Channel sagði Keegan þannig frá því hversu erfitt hefði verið að þvælast um í Ford Focus druslunni sinni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 08:00

PGA: Jimmy Walker sigraði á Hawaii!

Það var bandaríski kylfingurinn Jimmy Walker, sem stóð uppi sem sigurvegari á Sony Open í gær, 12. janúar 2014. Sjá má kynningu Golf 1 á Jimmy Walker með því að SMELLA HÉR:  Walker lék á samtals 17 undir pari, 263 höggum (66 67 67 63) og átti frábæran lokahring, var á besta skori dagsins, 63 höggum á Waialea golfvellinum! Á lokahringnum einfaldlega missti Walker hvergi högg og skilaði inn „hreinu“ skorkorti með 7 fuglum og 11 pörum. Sá sem leiddi fyrir lokahringinn, Bandaríkjamaðurinn Chris Kirk, varð að sætta sig við 2. sætið þrátt fyrir frábæran lokahring sinn upp á 66 högg, sem oft áður hefði eflaust dugað til sigurs, en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2014 | 20:00

Viðtalið: Birgir Björn Magnússon, GK

Viðtalið í kvöld er við einn alefnilegasta kylfing Íslandinga, 16 ára klúbbmeistara Golfklúbbsins Keilis 2013, sem á  ferli sínum í golfi hefir unnið mörg afrek á golfsviðinu.  Þannig hefir Birgir Björn bæði orðið. Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokkum og eins Íslandsmeistari með sveitum GK í sveitakeppni GSÍ. Nú síðast hlaut Birgir Björn háttvísibikar GSÍ, sem var afhentur á aðalfundi GK, 9. desember 2013 og er þá fátt eitt talið. Hér fer viðtalið: Fullt nafn:  Birgir Björn Magnússon. Klúbbur:   GK. Hvenær og hvar fæddistu?   12. maí 1997,  í Reykjavík. Hvar ertu alinn upp?   Í Hafnarfirði – ég hef alltaf búið í Hafnarfirði. Í hvaða starfi/námi ertu? Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2014 | 18:00

Hver er kylfingurinn: Keegan Bradley?

Hér verða  rifjaðar upp tvær greinar sem hafa áður birtst á Golf1.is 7. og 8. ágúst 2012 og eru um bandaríska kylfinginn Keegan Bradley.  Þær birtast hér nokkuð breyttar og uppfærðar og eru reyndar slegnar saman hér í 1 grein.  Tilefni skrifanna um Bradley 2012 var að hann var nýliði í bandaríska Ryder Cup liðinu í Medinah það ár,  auk þess sem hann sigraði í  Bridgestone Invitational heimsmótinu í Akron, Ohio í ágúst það ár (2012). Sem stendur er Keegan Bradley í 22. sæti heimslistans. En hver er þessi kylfingur, Keegan Bradley? Keegan Bradely fæddist 7. júní 1986 og því 27 ára. Hann spilar á PGA mótaröðinni og hefir nú þegar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Harold Horsefall Hilton – 12. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Harold heitni Horsefall Hilton, en hann fæddist í dag, fyrir 145 árum, 1869 og dó 5. mars 1942. Hann varð 2. áhugamaðurinn til þess að sigra Opna breska.  Golf 1 var  stuttu eftir að golfvefurinn fór í loftið með greinaröð um kylfinga 19. aldar. Hér má rifja upp greinina um afmæliskylfinginn: HAROLD HORSEFALL HILTON Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:   Patty Hayes, 12. janúar 1955; Craig Parry, 12. janúar 1966 (ástralski túrinn) ….. og ….. Berglind Richardsdóttir (41 árs) Sigríður Jóhannsdóttir (45 ára) Davíð Viðarsson (35 ára) Eiríkur Svanur Sigfússon (47 ára) Félag Um Jákvæða Sálfræði (24 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2014 | 15:25

Evróputúrinn: Oosthuizen sigraði á Volvo Golf Champions

Það var heimamaðurinn Louis Oosthuizen, sem sigraði á Volvo Golf Champions mótinu í Durban CC í KwaZulu Natal héraði í Suður-Afríku í dag. Hann var á skori upp á samtals 12 undir pari, 276 höggum (68 69 71 68) og hlaut að launum sigurtékkann upp á € 507,655. „Þetta var taugatrekkjandi hringur en ég lauk leik sterkt og ég er bara glaður að ég gat það. Þetta er frábær byrjun á árinu. Hvað sjálfstraustið varðar er þetta frábært,“ sagði Oosthuizen eftir að ljóst var að hann hefði sigrað! Í 2. sæti varð annar heimamaður Branden Grace aðeins 1 höggi á eftir Oosthuizen.  Tvær stjörnur mótsins Englendingurinn Tommy Fleetwood, sem leiddi fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 12. 2014 | 15:00

Tway golf-feðgarnir

Kevin Tway man eftir því sem strákur að gægjast í búningsskápa PGA Tour leikmannanna og snuðra í kringum vagna golfútbúnaðarfyrirtækjanna, sem fylgja PGA stjörnunum og reyna að tala fólkið þar til, til þess að gefa sér nýtt golfsett. Nú er Kevin með sinn eiginn búningsskáp og er borgað fyrir að leika með ákveðnum kylfum. Hann er sonur fyrrum PGA Championship sigurvegara og spilar nú sjálfur á PGA Tour. Kevin er sonur Bob Tway, sem vann 8 sinnum á PGA Tour, þ.á.m. á PGA risamótinu 1986. Að vera sonur Bob hafði marga kosti.  Sérfræðingar fylgdust með öllum framförum stráksa. Sjálfur fékk hann að kynnast lífinu á túrnum áður en hann byrjaði Lesa meira