Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 13. 2014 | 13:30

Tiger í ráshóp með Gallacher og Couples í Champions Challenge – Rástímar

Stephen Gallacher, sem á titil að verja í Omega Dubai Desert Classic, Fred Couples sigurvegari í mótinu 1995 og Tiger Woods drógust saman í ráshóp þ.e. þann síðasta á  Champions Challenge sem fram fer í  Emirates golfklúbbnum þriðjudaginn 28. janúar n.k.

Þetta er 18 holu höggleikskeppni og keppt er um  US$600,000 í tilefni af 25 ára afmæli elsta móts Evrópumótaraðarinnar utan Evrópu.

Eini fyrrum sigurvegari mótsins sem ekki keppir í því er Seve Ballesteros, sem lést af völdum krabbameins langt um aldur fram í maí 2011. Sonur hans Javier, sem keppir á Áskorendamótaröð Evrópu mun þó vera á staðnum og keppa í stað föður síns og er í ráshóp með löndum sínum þeim Miguel Angel Jiménez og José Maria Olazábal.

„Þegar svona mörg stór nöfn eru að keppa þá verður gaman að spila í Champions Challenge. Ég er þakklátur golf in DUBAi  fyrir að minnast föður míns og veita mér tækifæri til að spila,” sagði Javier, sem vann áhugamanna Madrid Open árið 2012,“ sagði Javier.

Ernie Els sem á metið hvað varðar fjölda skipta, sem nokkur hefir sigrað í Omega Dubai Desert Classic eða þrívegis mun spila með Mark O’Meara og Colin Montgomerie, meðan nr. 1 í Evrópu, Henrik Stenson er í ráshóp með Mark James, sigurvegara fyrsta mótsins árið 1989 og  Thomas Björn.

Annars eru ráshóparnir í Champions Challenge og rástímar 28. janúar eftirfarandi:

11am: Mark James (England), Henrik Stenson (Svíþjóð), Thomas Bjorn (Danmörk)

11.10: Alvaro Quiros (Spánn), Rafael Cabrera-Bello (Spánn), Jose Coceres (Argentina)

11.20: Miguel Angel Jimenez (Spánn), Jose Maria Olazabal (Spánn), Javier Ballesteros (Spánn)

11:30: Rory McIlroy (Norður-Írland), Eamonn Darcy (Írland), Richard Green (Ástralia)

11:40: Wayne Westner (Suður-Afríka), Robert Jan Derksen (Holland), David Howell (England)

11:50: Ernie Els (Suður-Afríka), Mark O’Meara (Bandaríkin), Colin Montgomerie (Skotland)

12:00: Tiger Woods (Bandaríkin), Fred Couples (Bandaríkin), Stephen Gallacher (Skotland)