Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 14:45

Evróputúrinn: Lee leiðir fyrir lokahringinn í Abu Dhabi – Mickelson flýgur upp skortöfluna

Skotinn Craig Lee er búinn að leiða alla þrjá fyrstu hringina á Abu Dhabi HSBC Golf Championship í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í dag lék Lee á 3 undir pari, fékk 5 fugla og 2 skolla.  Samtals er Lee búinn að spila á 12 undir pari, 204 höggum (68 67 69). Í 2. sæti 2 höggum á eftir forystumanninum, Craig Lee eru þeir Gaganjeet Bhullar frá Indlandi og Phil Mickelson sem flýgur upp skortöfluna eftir glæsihring upp á 9 undir pari, 63 högg í dag!  Á hringnum fékk Phil örn, 9 fugla og 2 skolla og var að sjálfsögðu á besta skori dagsins! Hér má sjá myndskeið af frammistöðu Phil Mickelson Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 14:00

Viðtal við Paulu Creamer

Paula Creamer var í viðtali í Morning Drive í gær, 17. janúar 2014. Þar talaði hún m.a. um bónorð kærasta síns, en hann bað hennar eftir að þau höfðu stokkið fallhlífarstökk úr flugvél og lent á vellinum þar sem búið var að skrifa stórum stöfum: „Viltu giftast mér Paula?“ Sjá má viðtalið við Paulu Creamer á Morning Drive með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 13:00

PGA: Heppnishögg Mohans

Á 2. hring Humana Challenge mótsins í Kaliforníu náðist myndskeið af miklu heppnishöggi á par-3 17. brautinni. Sá sem átti höggið heitir Chris Mohan og er áhugamaður.  Hann lék með Harrison Frasier.  Mohan átti hátt högg inn á 17. flötina þegar ekki vildi betur til en að boltinn hans fór í steina í árbakka sem skilja flötina frá á, sem þarna er og boltinn spýttist í klett hinum meginn við flötina og rúllaði síðan inn u.þ.b. 3 metra frá pinna. Mohan setti síðan fuglapúttið niður eftir þetta mikla heppnishögg hans. Til þess að sjá myndskeið af höggi Mohan SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 12:45

PGA: Keegan Bradley með 1. ásinn á ferlinum! – Myndskeið

Á 2. hring Humana Challenge mótsins, í gær, 17. janúar 2014,  fékk Keegan Bradley fyrsta ás ferils síns. Keegan er fæddur 7. júní 1986 og því 27 ára þegar hann slær draumahöggið en hann er búinn að spila golf mestalla ævi. Ásinn kom á 180 yarda (165 metra) 3. holu Nicklaus vallarins í La Quinta, Kaliforníu. Höggið var hátt inn á flötina og boltinn virtist sveigja og rúllaði síðan beint í holu. Keegan fagnaði að vonum vel! Sjá má glæsiás Keegan Bradley með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 11:00

Rocco Mediate kvænist n.k mánudag

Hver sagði að lífið væri búið eftir fertugt hvað þá fimmtugt? Hún er merkileg öll æskudýrkunin í golfinu, en golfið er eins og Tiger sagði réttilega  spegill lífsins. M.ö.o. það er æskudýrkun í golfinu sem annarsstaðar í lífinu. Það sem hinir eldri gera vekur oft á tíðum minni athygli en verskuldað er. Fæstir golfvefir eru með fréttir af því að Rocco Mediate sé nú í forystu á Mitsubishi Electric Championship á Hualalai, í Hawaii, eftir glæsihring upp á 63 högg! Hver kylfingurinn Rocco er, er efni í aðra grein.  Hér skal þess einungis getið að hann er fæddur 17. desember 1962 og því nýorðinn 51 árs…. og hann er að fara Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 10:00

PGA: Reed leiðir e. 2. dag

Bandaríski kylfingurinn Patrick Reed heldur forystu sinni á Humana Challenge mótinu, átti lægsta skor 2. dags 63 högg (ásamt Brendon Todd, sem er í 2. sæti), en hann spilaði La Quinta völlinn. Þannig sagði Reed eftir 2. hring að hann hefði átt í vandræðum með drævin á 1. hring en hafi fyllst sjálfstrausti í La Quinta Country Club. „Þegar maður fer yfir á La Quinta, eru brautirnar miklu þrengri en þær eru hér þannig að maður verður að einbeita sér að smáum skotmörkum. Ég byrjaði vel þannig að sjálfstraustið óx strax eftir fyrstu 2 holurnar.“ Samtals hefir Reed leikið á 18 undir pari, 126 höggum (63 63) og hefir 2 högga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2014 | 09:00

Champions Tour: Mediate efstur e. 1. dag

Með þessari grein hefur Golf 1 fréttaflutning af Champions túrnum bandaríska, sem er bandaríska PGA Tour öldungamótaröðin. Í gær hófst nefnilega á  Hualalai, á Hawaii, Mitsubishi Electric Championship, sem er fyrsta mót bandarísku PGA öldungamótaraðarinnar. Eftir 1. dag er það Rocco Mediate sem leiðir eftir glæsihring upp á 9 undi pari, 63 höggum! Í 2. sæti er Dan Forsman, aðeins höggi á eftir og þriðja sætinu deila þeir: Fred Couples, Fred Funk, Stephen Elkington og Tom Pernice Jr. allir á samtals 7 undir pari, 65 höggum, eða 2 höggum á eftir Rocco. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Mitsubishi Electric Championship SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 21:00

Evróputúrinn: Rafa og Lee efstir eftir 2. dag í Abu Dhabi – Stenson náði ekki niðurskurði

Það eru Rafael Cabrera-Bello og Craig Lee, sem leiða eftir 2. dag Abu Dhabi HSBC Golf Championship. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir í 3. sæti er Englendingurinn Danny Willett. Í 4. sæti enn öðru höggi á eftir eru: Rory McIlroy, Ricardo Gonzalez og Thomas Björn. Nokkrir góðir náðu ekki niðurskurði en þ.á.m. er nr. 1 í Evrópu 2013: Henrik Stenson, en hjá honum munaði 2 höggum  að hann fengi að spila um helgina. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Abu Dhabi HSBC Golf Championship SMELLIÐ HÉR:  Til þessa að sjá hápunkta 2. dags á Abu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 15:45

GK: Þórdís Geirs efst eftir 1. púttmót Keiliskvenna 2014

Fyrsta púttmót ársins 2014 hjá Keiliskonum fór fram s.l. miðvikudaginn 15. janúar. 35 konur mættu galvaskar til leiks og var hart barist. Eftirfarandi konur skipuðu fyrstu fimm sætin: 1.sæti     Þórdís Geirsdóttir          28 2.sæti     Birna Ágústsdóttir         29 3-5 sæti Helga Laufey                   31 3-5 sæti  Lovísa Hermanns         31 3-5 sæti  Guðrún Bjarnadóttir    31 Kvennanefndin hvertur konur til að fjölmenna í púttmótið því það er kjörinn vettvangur fyrir konur í klúbbnum að kynnast. Næsta púttmót verður n.k. miðvikudag, 22. janúar 2014.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Elina Nummenpaa (10/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 19. sætinu (voru jafnar í 19.-22. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals slétt par, 360 högg:     Fiona Puvo, Krista Bakker, Julie Tvede  og Elina Lesa meira