Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 12:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá spilar með Fresno State í vor

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, bætist í sístækkandi hóp ungra íslenskra kylfinga sem spila í bandaríska háskólagolfinu, nú í vor og mun Golf 1 að sjálfsögðu færa úrslitafréttir frá leikjum háskólaliðs hennar. Guðrún Brá mun spila með golfliði Fresno State háskólans í Kaliforníu. Emily Milberger þjálfari kvennaliðs Fresno State, The Bulldogs, fagnar komu Guðrúnar Brá í liðið og má sjá umsögn Milberger þar um með því að SMELLA HÉR: Okkur hér heima er vel kunnugt um góðan árangur Guðrúnar Brá t.a.m. á Unglingamótaröðinni, þar sem Guðrún Brá hefir orðið Íslandsmeistari (holukeppni/höggleik) í öllum aldursflokkum sínum. Auk þess hefir hún, þrátt fyrir ungan aldur sigrað í stigamótum Eimskipsmótaraðarinnar og hefir tekið þátt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lucie Andrè ——- 17. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Lucie Andrè.  Lucie er fædd 17. janúar 1988 í Bourg-en-Bresse í Frakklandi og á því 26 ára afmæli í dag. Lucie gerðist atvinnumaður í golfi 1. janúar 2011. Hún spilar á LET þ.e. Evrópumótaröð kvenna.  Lesa má nánar (n.b. aðeins fyrir þá sem lesa frönsku) um afmæliskylfinginn á heimasíðu Lucie með því að SMELLA HÉR:  Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmælí í dag eru:  Olin Dutra, f. 17. janúar 1901 – d. 5. maí 1983; Jimmy Powell, 17. janúar 1935 (79 ára); Nina Muehl, 17. janúar 1987 (27 ára – austurrísk – LET)   …. og ….. Sólrún Viðarsdóttir (52 ára) Unnur Pétursdóttir (57 ára) Binni Besti (18 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 11:30

Golfsvipmynd dagsins

Golfsvipmynd dagsins er af unglingunum í GR að æfa sig í Egilshöll í morgun – ótrúlegur dugnaður á ferð þar!


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 10:00

Golfútbúnaður: Nýi dræver Mickelson – Callaway Big Bertha Alpha

Callaway kom fyrst á markað með Big Berthu árið 1991 og það breytti golfheiminum. Nú er fyrirtækið að endurvekja nafnið og vonar að nýjasta nýjungin á drævernum vinsæla muni slá í gegn líkt og dræverinn gerði árið 1991. Nú verður hægt að aðlaga 4 þætti dræversins: 1) loftið – eða m.ö.o. fláann á kylfunni; 2) miðju þyngdarpunktssins (ens.: center of gravity); 3) leguna (ens. lie) og í fyrsta sinn CG hæðina, þ.e. hæðina á miðju þyngdaraflsins (ens. CG (Center of Gravity) height). Fyrir 20 árum þegar Ely Callaway og teymi hans hönnuðu Big Berthu vitnuðu þeir í Isaac Newton þegar sá sagði: „Að ekki væri hægt að deila við eðlisfræði.“ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 09:45

Evróputúrinn: Kaymer og McIlroy gekk vel á 1. hring í Abu Dhabi – Mickelson byrjar slælega

Martin Kaymer og Rory McIlroy eiga sameiginlegt að eiga að baki hræðilegt ár í golfinu 2013. Því var mikilvægt að byrja nýja árið vel og það gerðu þeir í gær en báðir léku fyrsta hring á 2 undir pari,  70 höggum og deildu 19. sætinu eftir 1. hring. Kaymer, sem fékk 5 fugla, skramba og skolla var ánægður: „Þetta var ágætis hringur, þetta er nefnilega erfiður völlur sérstaklega á morgnanna.“ „Þegar við vorum á fyrri 9 var karginn enn blautur – og ef maður lenti þar – þá komst maður ekkert – Þannig að allt í allt er 2 undir pari ágætis skor.“ „Þetta snýst í raun um að hitta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 09:00

Paulina Gretzky í nýrri TaylorMade auglýsingu

Paulina Gretzky, kærasta bandaríska kylfingsins DJ (Dustin Johnson)  er með aldeilis hreint fína golfsveiflu  sem hún þakkar DJ fyrir. Þetta barst til eyrna TaylorMade golfvöruframleiðandans, sem DJ er með auglýsingasamning við og nú er verið að taka upp nýja TaylorMade auglýsingu með Gretzky í aðalhlutverki. Það er reyndar enn allt á huldu um alla nánari útfærslu á hlutverki hennar í auglýsingunni.  Kemur hún til með að sýna okkur golfsveiflu sína? Verður DJ með henni í auglýsingunni? Það verður að bíða og sjá en Gretzky sjálf póstaði á Instagram að hún gæti varla beðið eftir að auglýsingin væri fullgerð. Á meðfylgjandi mynd virðist auglýsingin þó eitthvað hafa að gera með leikhraða Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 08:00

Golfbílakappakstur Donald, Casey, Garcia og Manassero í Yas Marina

Kylfingarnir Matteo Manassero, Sergio Garcia, Luke Donald og Paul Casey fengu að upplifa einhverja flottustu Formúlu 1 kappakstursbraut í heimi, ekki með því að horfa á hraðskreiðu kappakstursbílana í Abu Dhabi, þar sem þeir eru að keppa á fyrsta móti Miðaustur-sveiflu Evrópumótaraðarinnar, heldur með því að keppa sjálfir innbyrðis í golfbílakappakstri á brautinni. „Þegar golfbílarnir fóru út af sporinu, gat ég ekki annað en hlegið, þar sem við vorum að keppa á kappakstursbraut, þar sem einhverjir hraðskreiðustu bílar heims fljúga um og við vorum á golfbílum sem fóru ekki hraðar en 25 km/klst.“ sagði Manassero. „Þar sem ég hafði komið áður á  Abu Dhabi Grand Prix before, hafði ég hugmynd hvernig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 17. 2014 | 07:00

GG: Aðalfundur 18. janúar n.k.

Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur (GG) verður haldinn laugardaginn 18. janúar kl. 13:00 í Golfskálanum. Dagskrá aðalfundarins er svohljóðandi: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis 4. Kosning formanns 5. Kosning stjórnar og varastjórnar 6. Fjárhagsáætlun fyrir árið 2014 lögð fram 7. Ársgjöld 2014 8. Önnur mál Auglýst er eftir góðu fólki í stjórn klúbbsins og í nefndir á vegum hans. Ábendingar og tilkynningar sendist til gggolf@gggolf.is, merkt aðalfundur GG 2013.


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 23:45

PGA: Reed efstur e. 1. dag

Í dag hófst Humana Challenge mótið í La Quinta, Kaliforníu. Sá sem leiðir eftir 1. dag er bandaríski kylfingurinn Patrick Reed, sem var á besta skori dagsins, 9 undir pari, 63 höggum. Á hringnum fékk Reed 9 fugla og 9 pör – missti hvergi högg og skilaði því „hreinu skorkorti.“ Í 2. sæti urðu Ryan Palmer, Justin Hicks, Daniel Summerhayes og Charley Hoffman allir á 8 undir pari, 64 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Humana Challenge SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta eftir 1. dag á Humana Challenge SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 16. 2014 | 22:00

Dagsetningar fyrir risamótin 2014

Hér fyrir neðan eru dagsetningar yfir öll helstu risamót ársins í golfinu 2014: 77. Masters risamótið Fer fram: 10.-13. apríl 2014 Mótsstaður Augusta (Ga.) National Golf Club Par/metralengd vallar: 72 / 6799 metrar Sá sem á titil að verja: Adam Scott (sigurskor 2013: 9 undir pari, samtals 279 högg) Verðlaunafé  (2013): $8 milljónir (þar af $1.44 milljónir til sigurvegarans) • • • 114. Opna bandaríska Fer fram:  12.-15. júní 2014 Mótsstaður: Pinehurst Resort (No. 2), Pinehurst, N.C. Par/metralengd vallar: 70 / 6719 metrar Sá sem á titil að verja: Justin Rose (sigurskor 2013: 1 yfir pari 281 högg) Verðlaunafé (2013): $8 milljónir  ($1.44 milljónir til sigurvegarans) • • • 143. Opna breska Fer fram:  17.-20. júlí 2014 Mótsstaður: Royal Liverpool Golf Club, Hoylake, England Lesa meira