Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 2. 2014 | 10:30

Tiger og O´Meara í skugganum á 6 ára golfgutta í Dubaí – Myndskeið

Tiger Woods veit eitt og annað um það að vera undrabarn í golfi. Eftir allt þá byrjaði hann jú 2 ára í golfi og var aðeins 21 árs þegar hann vann the Masters risamótið 1997.

Eftir hræðilega viku sína á Farmers Insurance Open þá er hann búin að vera í Dubai s.l. viku, þar sem hann hefir verið að keppa á Omega Dubai Desert Classic og hefir gengið mun betur þar, en er langt frá því að vera í toppformi sínu.

Milli hringja hitti Woods Mark O’Meara en þeir voru með golfkennslu á æfingasvæði Emirates golfklúbbnum og komu margir til að fylgjast með.

Fljótt féllu stórstjörnurnar í skuggann á 6 ára golfgutta. Tiger var í góðu skapi þegar hann fylgdist með stráksa slá mismunandi högg. Eftir að O´Meara spurði stráksa hversu gamall hann væri og fékk svarið „6 ára“, þá fannst Tiger hann verða að segja eitthvað líka og sagði: „Látum okkur nú sjá. Þegar hann klárar menntaskólann verð ég kominn á öldungamótarðina. Hann verður þá orðinn atvinumaður og ég farinn að svífa um í golfbíl.“

Þegar stráksi sló lokahögg sitt lyfti O´Meara lófa sínum til að fá „hi-five“ hjá stráksa sem hann endurgalt en sneri síðan bakinu í Tiger sem bauð upp á það sama, því hann var að því er virtist að flýta sér í burt frá allri athyglinni, en stráksi sneri samt glaður við til að fá „hi-five“ hjá Tiger.

Hér má sjá myndskeiðið af Tiger, O´Meara og 6 ára stráknum á æfingasvæði Emirates golfklúbbsins SMELLIÐ HÉR: