Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 21:00

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra og Guðrún Brá hittust í Kaliforníu

Það var íslenskur kylfingur sem þekkir vel til golfvalla í Kaliforníu, sem var meðal áhorfenda á fyrsta móti Guðrúnar Brá Björgvinsdóttur, GK, Peg Barnard mótinu , á golfvelli Stanford í Kaliforníu í gær …. Eygló Myrra Óskarsdóttir. Eygló Myrra útskrifaðist í fyrra vor frá University of San Fransisco  og auk þess að fylgjast með Guðrúnu Brá var hún að horfa á gömlu félaga sína í USF keppa. Eygló Myrra býr enn í San Francisco og æfir með golfliði USF, þó hún keppi ekki lengur með liðinu. Guðrún Brá var hins vegar að keppa í fyrsta sinn með „The Bulldogs“, kvennagolfliði Fresno State. Á heimasíðu Guðrúnar Brá sagði að gott hefði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Þór Bjarkason – 17. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Þór Bjarkason.  Hann er fæddur 17. febrúar 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Bjarki er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og er með 22,1 í forgjöf. Bjarki er trúlofaður Ingibjörgu Magneu og þau eiga 4 syni. Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Bjarki Bjarkason (50 ára stórafmæli – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Michael Hoke Austin, f. 17. febrúar 1910 – d. 23. nóvember 2005; Michael Jordan, 17. febrúar 1963 (51 árs); Ignacio Elvira, 17. febrúar 1987 (27 ára) ….. og ….. Aron Bragason Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 14:55

Hver er kylfingurinn: Kirk Triplett?

Kirk Alan Triplett sigraði í gær á Ace Group Classic mótinu á Champions Tour. En hver er þessi Triplett? Kirk Alan Triplett fæddist 29. mars 1962 í Moses Lake, Washington og er því 51 árs. Hann hefir spilað á Nationwide Tour, PGA Tour og er nú leikmaður á Champions Tour. Triplett ólst upp í Pullman og útskrifaðist frá Pullman High School 1980 og fór á golfskólastyrk í University og Nevada í Reno, þar sem hann hlaut gráðu í verkfræði. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1985. Triplett hefir 3 sinnum sigrað á PGA Tour á ferli sínum: Nissan Open árið 2000; Reno-Tahoe Open, árið 2003 og Chrysler Classic of Tucson mótinu 2006. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 14:00

Stricker með í heimsmótinu í holukeppni

Steve Stricker sagði í fyrradag, laugardaginn 15. febrúar að hann ætlaði að hann yrði með í heimsmótinu í holukeppni (ens. Match Play Championship)  þar sem bróðir hans hefir nú gengist undir lifrarflutning, sem tókst vel. Stricker hafði áður hallst að því að hann myndi EKKI spila í Arizona þar sem eldri bróðir hans, hinn 50 ára Scott Stricker, var að bíða eftir að gangast undir lífæraflutningsaðgerð, þar sem hann vantaði nýja lifur og þar sem hann beið í miklum sársauka á sjúkrahúsi í Wisconsin. Steve Stricker sagði áður að hann hefði æft en hugur hans hefði ekki verið í golfinu og það myndi verða ansi langsótt að hann tæki þátt ef Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 13:00

Champions Tour: Triplett sigraði á Ace Classic mótinu – Hápunktar

Það var Kirk Triplett sem stóð uppi sem sigurvegari á Ace Classic mótinu. Triplett lék mótshringina þrjá á samtals 16 undir pari, sléttum 200 höggum (67 67 66). Öðru sætinu, aðeins 1 höggi á eftir Triplett deildu 3 kylfingar: Bernard Langer, Olin Brown og Duffy Waldorf. Til þess að sjá lokastöðuna á Ace Classic mótinu SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3./lokadagsins á Ace Classic mótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 12:45

Eisenhower tréð á Augusta National fellt

Í áratugi hefir Eisenhower tréð, betur þekkt sem tré Ikes verið eitt af kennileitum við 17. braut (Nandínu) á Augusta National, á Masters risamótinu á vori hverju. Nú fyrr í mánuðnum gekk gríðarlegur snjóstormur yfir Georgíu-ríki í Bandaríkjunum og eyðilagði þetta fallega furutré, en Eisenhower tréð var ekki eikartré s.s. margir ruglast á heldur fura (lat.: Pinus taeda, á ensku þekkt sem loblolly pine). Í viðtali við The Augusta Chronicle sagði framkvæmdastjóri Augusta National og Masters, Billy Payne: „Það er erfitt að sætta sig við missi Eisenhower trésins. Við fengum skoðanir bestu trjásérfræðinga og því miður var niðurstaða þeirra að ekki væri hægt að laga skemmdirnar.  Við höfum þegar farið að velta Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 12:00

Hver er kylfingurinn: Bubba Watson?

Hver er eiginlega Gerry „Bubba“ Watson?  Hann varð frægur eftir frækinn sigur á Masters risamótinu 2012 og í gær sigraði hann í fyrsta skipti í 2 ár aftur á PGA Tour, þegar hann vann Northern Trust Open á Riviera í Kaliforníu.  En hér fer allt nánar um Bubba…. Bubba fæddist 5. nóvember 1978, í Bagdad, Flórída og er því 33 ára. Hann er 1,91 m á hæð og 82 kg. Hann spilar á PGA túrnum og er þekktur fyrir  að vera einn af örvhentu kylfingum túrsins og eins er hann þekktur fyrir einstaka högglengd sína. Hann var t.a.m. högglengsti kylfingur PGA Tour 2007 og var meðaldrævlengd hans  315.2 yardar (þ.e. 288 metrar). Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 11:00

Bandaríska háskólagolfið: Skor Guðrúnar Brá taldi í fyrsta móti hennar í bandaríska háskólagolfinu!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og „The Bulldogs“ golflið Fresno State léku nú um helgina á gríðarsterku háskólamóti:  Peg Barnard Invitational á golfvelli Stanford háskóla, í Kaliforníu. Þetta var fysta mót Guðrúnar Brá í bandaríska háskólagolfinu. Þátttakendur voru 75 frá 14 háskólum og mótið stóð dagana 15.-16. febrúar og lauk því í gær. Skor Guðrúnar Brá var óvenjuhátt eða samtals 14 yfir pari, 156 högg (80 76), en eins og sést bætti Guðrún Brá sig um 4 högg milli hringja! Hún varð T-53 þ.e. deildi 53. sætinu með 6 öðrum kylfingum.  Sú sem varð í efsta sæti, Dana Finkelstein frá UNVL lék á 5 undir pari, 137 höggum (69 68). Það Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 10:30

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór, Berglind og Ragnar Már hefja leik í dag

Andri Þór Björnsson, GR, Ragnar Már Garðarsson, GKG og klúbbmeistari kvenna í GR 2013, Berglind Björnsdóttir hefja leik í dag í bandaríska háskólagolfinu. Andri Þór og félagar í Nicholls State annars vegar og Ragnar Már og félagar í McNeese hins vegar, hefja leik í Rice Intercollegiate mótinu á Westwood golfvellinum í Houston Texas. Andri Már fer út frá 16. teig kl. 8:00 að staðartíma (kl. 14 að okkar tíma hér heima á Íslandi) og Ragnar Már fer út á sama tíma (Shotgun start) en af 2. teig. Fylgjast má með gengi Andra Þór og Ragnars Más og félaga með því að SMELLA HÉR:  Berglind Björnsdóttir hefur leik ásamt kvennagolfliði UNCG í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2014 | 09:30

Bandaríska háskólagolfið: Ingunn lauk keppni í 45. sæti á Seminole Match Up

Ingunn Gunnarsdóttir, GKG og golflið Furman háskóla tóku nú um helgina þátt í Seminole Match Up, sem fram fór á Southwood golfvellinum í Tallahassee, Flórída. Mótið stóð dagana 14.-16. febrúar og voru þátttakendur eru 60 frá 11 háskólum. Ingunn tók bara þátt í einstaklingskeppninni.   Hún lék á samtals 18 yfir pari, 234 höggum  (78 77 79). Ef Ingunn tæki þátt í liðakeppninni væri hún á 4. besta skori liðs Furman, en skor hennar er mun betra en þeirra sem keppa f.h. Furman og eru í 4. og 5. sæti og væri lið Furman því ofar á skortöflunni hefði Ingunn keppt fyrir skólann, en Furman lauk keppni T-7. Til þess Lesa meira