Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 19. 2014 | 07:00

Nýi golfpoki Rory

Á heimsmótinu í holukeppni verður Rory McIlroy með nýjan golfpoka. Sá er merktur styrktaraðila Rory, Bose, í bak og fyrir sem og nafni nr. 7 (Rory). Til stendur að bjóða pokann upp í lok mótsins og mun ágóðinn sem inn kemur renna til góðgerðarmála í gegnum stofnun Rory, „The Rory Foundation.“ Eftirfarandi stóð á heimasíðu Rory um pokann góða: „Check out my new Bose golf bag – I start to use it this week at the WGC-Accenture Match Play. With the huge support of my partner Bose, when the bag is auctioned, all proceeds will go to the Rory Foundation.“


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Örn Ævar Hjartarson – 18. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Örn Ævar Hjartarson, sem fæddur er 18. febrúar 1978 og á því 36 ára afmæli í dag. Eins og alltaf þegar miklir afrekskylfingar, líkt og Örn Ævar, eiga afmæli er erfitt nema rétt hægt að tæpa á nokkrum helstu afrekum viðkomandi. Þegar minnst er á Örn Ævar er ekki annað hægt en að geta allra vallarmetanna sem hann á, en það frægasta setti hann eflaust 1998 þegar hann spilaði Old Course í sjálfri vöggu golfíþróttarinnar St. Andrews á 60 höggum, sem er vallarmet! Eins á Örn Ævar ýmis vallarmet hér heima t.a.m. -10 undir pari, þ.e. 62 högg í Leirunni, 2009; -7 undir pari 63 högg á gamla Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 11:45

Gallacher mætir Els í heimsmótinu í holukeppni

Nú í vikunni hefst á Dove Mountain í Marana, Arizona heimsmótið í holukeppni. Það eru 64 sterkustu kylfingar heims að undanskildum Tiger, Phil og Adam Scott, sem þátt taka í mótinu. Í stað þeirra þriggja keppa þeir Richard Sterne, Scott Piercy og Kiradech Amphibarnrat. Eini Skotinn í þessum 64 kylfinga hóp er Stephen Gallacher, sem varði titil sinn svo glæsilega á Dubai Desert Classic nú í ár og er vegna þess kominn í 14. sæti á evrópska Ryder bikar listanum og í 7. sæti Race to Dubai. Gallacher mætir fyrrum meistara Opna breska, Ernie Els í 1. hring.  Aðrar paranir eru m.a. þær að Rory mætir Boo Weekley og Matt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 10:20

LEK: Mótaskrá 2014 á Öldungamótaröðinni

Tillaga mótanefndar LEK um mótaksrá 2014 var samþykkt í stjórn LEK nýverið. Eftirtaldar nýjungar má finna í mótaskránni: Í fyrsta lagi nefnist mótaröð LEK nú ÖLDUNGAMÓTARÖÐIN og til hennar teljast átta mót sem auk Íslandsmóts eldri kylfinga gefa stig til vals á landsliðum LEK. Síðan koma tvö ný mót sem verða parakeppnir og einnig nýtt mót þar sem bæði verður leikið golf og keppt í skák. Fyrirkomulag þessarra móta verður nánar kynnt síðar en þó ber þess að geta nú að krýndir verða í haust stigameistarar Öldunamótaraðarinnar. Fyrsta mótið verður þann 18. maí og fer það fram á Korpunni. Sjá má mótaskrá LEK með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már í 45. sæti og Andri Þór í 77. sæti e. 1. dag Rice mótsins í Texas

Andri Þór Björnsson, GR og félagar í Nicholls State annars vegar og Ragnar Már Garðarsson, GKG og félagar í McNeese hins vegar, taka þátt í Rice Intercollegiate mótinu á Westwood golfvellinum í Houston Texas. Mótið stendur dagana 17.-18. febrúar 2014 og verður lokahringurinn leikinn í dag. Í mótinu taka þátt 84 háskólastúdentar frá 15 háskólum. Eftir fyrri dag er Ragnar Már í 45. sæti á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (75 79) en Andri Þór er í 77. sæti á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (80 81). Ragnar Már er á 4. besta skori liðs síns og telur það því í 10. sætis árangri McNeese í liðakeppninni  og það sama Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 09:45

GKG: Úrvalshópur GKG hitti Charlotte Sörenstam í æfingaferð í Orlando

Valinn hópur fremstu kylfinga í GKG er  þessa dagana í æfingaferð í Orlando í Flórída. Skilyrði fyrir þátttöku í þessari ferð var að vera hluti af Afrekshópi GSÍ og hafa náð menntaskólaaldri. Kylfingarnir eru að æfa og leika við frábærar aðstæður á Orlando svæðinu, og stendur æfingaferðin yfir í rúma viku. Á æfingu í fyrradag (16. febrúar 2014)  hittu þau Charlotte Sörenstam, sem rekur golfskóla á Reunion Resort, en hún er systir einnar af goðsögnum golfsins, Anniku Sörenstam. Á meðfylgjandi mynd af úrvalshópnum vantar Ragnar Má Garðarsson, sem þurfti að yfirgefa hópinn og halda til golfliðs háskóla síns, McNeese, sem er við keppni í Texas.   Á forsíðumyndinni eru frá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 09:30

EPD: Þórður Rafn úr leik

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tók þátt í Open Samanah mótinu sem fram fór á Jack Nicklaus hannaða golfvellinum í Samanah Country Club í Marakesh,Marokkó,  en mótið er hluti af þýsku EPD mótaröðinni. Þórður lék fyrstu tvo hringina á samtals 6 yfir pari, 150 höggum (74 76). Aðeins 40 efstu og þeir sem jafnir voru í 40. sætinu komust áfram og var niðurskurður að þessu sinni miðaður við samtals 2 yfir pari. Það munaði því 4 höggum að Þórður Rafn kæmist í gegn. Til þess að sjá stöðuna á Open Samanah SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 09:15

GR: Æfingamottum stolið í Básum

Á heimasíðu GR má finna eftirfarandi frétt: „Miðvikudaginn 12. febrúar á milli kl.11:00 og  kl.15:00 gerðust einhverjir óprúttnir aðilar fingralangir og tóku ófrjálsri hendi sex æfingamottur úr Básum. Meðfylgjandi mynd hér að neðan sýnir hvernig motturnar eru. Aðferðin sem þeir notuðu virðist hafa verið á þá leið að þeir hafa hent mottunum niður af annarri hæð í norður enda Bása, sett þær í bíl og ekið burt. Þeir aðilar sem hugsanlega hafa orðið varir við mannaferðir sem hugsanlega tengjast þessum  aðgerðum,  góðfúslega hafið samband við Skrifstofu Golfklúbbs Reykjavíkur, sími 580-0200. Golfklúbbur Reykjavíkur“


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 09:00

Kate eiginkona Aiken var kaddýinn hans í Africa Open

Heimamaðurinn Thomas Aiken vann Africa Open mótið nú um helgina, en það var sameiginlegt mót Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins og telst því sem sigur á báðum mótaröðum.   Aiken sigraði með fugli á fyrstu holu bráðabanans í  East London golfklúbbnum, eftir að hann og Englendingurinn Oliver Fisher voru báðir á 20 undir pari, hvor eftir hefðbundnar 72 holur.   Reyndar missti Fisher rétt af sigri á 18. flöt nokkrum mínútum fyrir bráðabanann þegar hann missti fuglapútt og varð því að fara í bráðabanann.  Þar var 18. spiluð aftur og Fisher átti eftir 5 metra parpútt …. meðan Aiken setti niður 12 metra fuglapútt. Þetta var fyrsti sigur Thomas Aiken á heimavelli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2014 | 08:30

GK: Auglýst laust starf vélvirkja

Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði óskar eftir að ráða öflugan aðila í starf vélvirkja. Vélvirki ber ábyrgð á fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á vélaflota klúbbsins. Um framtíðar starf er að ræða fyrir réttan aðila. Golfklúbburinn Keilir er einn stærsti golfklúbbur landsins. 4 heilsársstarfsmenn vinna við viðhald vallarins í viðbót við 16 sumarstarfsmenn. Golfvöllurinn er þekktur fyrir góða umhirðu á meðal kylfinga og því mikilvægt að vélar klúbbsins séu ávalt í góðu ásigkomulagi svo hægt sé að viðhalda þeim gæðum sem meðlimir og aðrir kylfingar búast við. Starfssvið: • Umsjón á viðhaldi alls vélaflota golfklúbbsins, frá smátækjum til bifreiða. • Sér til þess að vélafloti klúbbsins sé starfshæfur og fullgildi allar öryggiskröfur. Lesa meira