Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 22:15
Golfsvipmynd dagsins

Tiger Woods á sér dygga aðdáendur eins og glöggt má sjá á „heimaslóðum“ Tígursins í Doral, þar sem hann keppir á WGC Cadillac Championship. Þessi þrjú voru hæstánægð með frábæran 3. hring nr. 1 á heimslistanum þar sem hann fékk 8 fugla og 2 skolla og kom sér í 4. sætið fyrir lokahringinn, sem þegar er hafinn nú í kvöld. Tekst Tiger að verja titil sinn í kvöld? Það væru a.m.k. 3 aðdáendur sem væru yfir sig ánægðir enda búnir að hvetja Tiger áfram!
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 22:00
Ian Poulter rífst við blaðamann á Twitter

Ian Poulter gerir ekki endasleppt í tvítinu. Reyndar var hann bara að svara fyrir sig í þetta sinn. En sem fyrr fjúka gífuryrðin og veltur maður bara fyrir sér hvort ekki sé nóg komið af góðu og hvort svona samræður séu yfirleitt sæmandi og hafi gott fordæmisgildi fyrir kylfinga sem líta upp til stjarnanna sinna á borð við Poulter? Þannig var að golffréttamaðurinn Dale Concannon tvítaði eftirfarandi um „Matsuyama“-uppákomuna: Dale Concannon: (Ian Poulter) kallar rísandi stjörnuna Matsuyama hálfvita. Ég er að velta fyrir mér hvað japanska orðið er fyrir „stærilátan, ofmetinn montrass?“ Ian Poulter: Ó Dale. Dale Concannon: Afsakaðu vinur en sagan kennir okkur að allir hæfileikar heimsins skipti engu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 18:45
50 ára afmælishóf GS
Það var haldin mikil hátíð haldin í golfskálanum í Leiru í dag, sunnudaginn 9. mars 2014, en þar héldu félagar í Golfklúbbs Suðurnesja (GS) upp á hálfrar aldar afmæli klúbbsins. Húsið opnaði kl. 14.00 og um kl. 14.30 steig formaður GS, Friðjón Einarsson, á stokk og bauð gesti velkomna. Forseti Golfsambands Íslands, Haukur Örn Birgisson, ávarpaði einnig samkomuna við þetta hátíðlega tækifæri og heiðraði nokkra vel valda félaga fyrir framlag þeirra til golfíþróttarinnar. Fleiri tóku til máls í hófinu en þó var ræðuhöldum stillt í hóf. Dagskráin afmælishófsins var fjölbreytt. Íþróttastjóri Golfklúbbs Suðurnesja, Ingi Rúnar Gíslason, skrifaði undir hvatningarsamninga við þrjá af fjölmörgum ungum og bráðefnilegum kylfingum klúbbsins. Með þessum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 18:24
Afmæliskylfingur dagsins: Marlene Streit ——- 9. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Marlene Streit, en hún á 80 ára stórafmæli í dag. Streit er kanadískur kylfingur sem fæddist 9. mars 1934 í Cereal, Kanada og á því 80 ára stórafmæli í dag! Marlene Streit hefir alla tíð verið áhugamaður í golfi. Og sem slík var hún sá kanadíski kvenkylfingur sem náð hefir mestum árangri. Hún er eini kylfingurinn í sögunni sem sigrað hefir ástralska, enska, kanadíska og bandaríska Women’s Amateurs mótið. Streit útskrifaðist frá Rollins College árið 1956, og vann American individual intercollegiate golf titilinn þetta sama ár (gekk þá undir nafninu the Division of Women’s and Girls’ Sports (DWGS)); en þróaðist í það sem við í dag þekkjum sem NCAA Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 13:45
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Ariane Provot (22/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 10. sætinu (voru jafnar í 10.-14. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 undir pari, 358 högg: Ariane Provot, Kim Williams, Henni Zuël, Rebecca Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 11:00
Matsuyama baðst afsökunar

Ian Poulter kallaði nýjustu japönsku golfstjörnuna Hideki Matsuyama hálfvita og Matsuyama biðst afsökunar? Það var einmitt það sem gerðist. Ian Poulter snöggreiddist þegar Hideki sem var í ráshóp á undan honum, Charl Schwartzel og Jason Dufner, pirraðist á 13. flöt vegna þess að hann missti pútt og skellti pútter sínum í flötina þannig að heilmikill „eldfjallagígur“ (að sögn Poulter) varð eftir í flötinni og gekk af henni án þess að gera við skemmdirnar. Skemmdirnar voru í púttlínu Schwartzel, sem kallaði á dómara, sem gerði við skemmdirnar en Charl missti engu að síður púttið. Poulter pirraðist og tvítaði. Poulter tvítaði 3 harðyrt skeyti beind að Matsuyama á Twitter, þar sem hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 08:45
LET: Park sigraði í Kína

Inbee Park var ekkert á því að gefa norsku frænku okkar Suzann Pettersen eftir 1. sætið á heimslistanum. Hún sigraði nú rétt í þessu World Ladies Championship á Mission Hills golfvellinum í Haikou, Kína, með nokkrum yfirburðum. Inbee spilaði þannig á samtals 24 undir pari, (69 70 62 67). Á hringnum fékk Inbee 8 fugla og 2 skolla. Suzann Pettersen var heilum 5 höggum á eftir á samtals 19 undir pari, (67 68 66 72). Í 3. sæti varð síðan So Yeon Ryu, frá Suður-Kóreu á samtals 16 undir pari, þannig að það sést vel að Suzann og Inbee voru í algerum sérflokki. Til þess að sjá lokastöðuna á World Ladies Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 08:30
WGC Cadillac: Tiger á 66 – kominn í 4. sætið fyrir lokahringinn

Þó hann hafi fyrir aðeins viku síðan þjáðst svo af bakverkjum að hann varð að segja sig úr Honda Classic mótinu og þrátt fyirr slaka byrjun þá er Tiger nú kominn í 4. sætið fyrir lokahringinn á WGC Cadillac Championship, sem hann deilir með Wales-verjanum Jamie Donaldson. Hann lék 3. hring á glæsilegum 6 undir pari, 66 höggum fékk 8 fugla og 2 skolla. Samtals er Tiger hins vegar á 1 undir pari, 215 höggum (76 73 66) og eins og sést er 10 högga sveifla á 1. og 3. hring hans. „Ég spilaði vel“ sagði Tiger eftir hringinn góða. „Ég byrjaði vel. Ég náði að halda þessu saman og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 18:45
Golfgrín á laugardegi

Gústaf heimsækir framhjáhaldið sitt. Það er ekkert í veginum fyrir þeim – eiginmaður hennar er ekki heima. Á meðan þau kela, hringir síminn. Þegar hún leggur á spyr Gústaf: „ Jæja, hver var þetta?“ „Maðurinn minn,“ svarar hún. „Hann sagði að hann kæmi svolítið seint heim; hann væri með þér á golfvellinum.“
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 8. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Craig Warren —— 8. mars 2014

Það er ástralski kylfingurinn Craig Warren, sem er afmæliskylfingur dagsins. Warren fæddist 8. mars 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: ….. og …… Erla Þorsteinsdóttir 8. mars 1978 (36 ára) Jónmundur Guðmarsson F. 8. mars 1968 (46 ára) Eggert Bjarnason F. 8. mars 1978 (36 ára) Sunna Reynisdóttir F. 8. mars 1968 (46 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

