Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 10:55
Hver er kylfingurinn: Patrick Reed?

Bandaríski kylfingurinn, Partrick Reed rétt slapp inn og var einn af efstu 26 í síðasta lokaúrtökumóti Q-school PGA , sem fram fór 28. nóvember – 3. desember 2012, í La Quinta, Kaliforníu og hlaut í kjölfarið kortið sitt, þ.e. þátttökurétt á PGA Tour 2013. Hinir sem deildu 22.-26. sætinu með honum (þ.e. lægsta sætinu) voru: Constable Jr., Bobby Gates, Henrik Norlander og Chez Reevie. Síðan þá hefir Patrick Reed ekki gert endasleppt. Hann sigraði strax 1. árið sitt sem nýliði á PGA Tour þ.e. á Wyndham Championship og síðan vann hann líka á Humana Challenge 19. janúar 2014. WGC Cadillac Championship er 2. mótið sem hann vinnur á PGA Tour árið 2014 og samtals Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 10:30
GS hlaut háttvísibikar GSÍ á hálfrar aldar afmælinu – afmælisveislan vel sótt!!! – Myndasería

„Ef Golfsambandið ætti vinavelli væri Hólmsvöllur í Leiru svo sannarlega á meðal þeirra,“ var meðal þess sem forseti GSÍ sagði í ræðu sinni, en í gegnum tíðina hefur Hólmsvöllur í Leiru gjarnan verið vettvangur fyrir viðburði á vegum Golfsambandsins. Við þetta tækifæri afhenti Haukur Golfklúbbi Suðurnesja Háttvísibikar GSÍ en bikarinn verður í framtíðinni notaður til að verðlauna unga kylfinga í GS fyrir framúrskarandi íþróttamennsku. Það var mikill fjöldi sem sótti afmælisbarnið heim í gær og var stemmningin góð í skálanum. Þó nokkrir tóku til máls við tilefnið og óskuðu klúbbnum og félögum hans til hamingju með áfangann. Meðal ræðumanna voru sem bauð gesti velkomna, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ, Jóhann B. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 10:10
5 sæmdir gullmerki í glæsilegu 50 ára afmælishófi GS

Fimm núverandi og fyrrverandi félagar úr Golfklúbbi Suðurnesja voru sæmdir gullmerki GSÍ í dag á afmælishófi GS fyrir framlag þeirra til golfíþróttarinnar. Það var Haukur Örn Birgisson, formaður Golfsambands Íslands, sem sæmdi félagana við þetta hátíðlega tilefni. Eftirtaldir hlutu þessi heiðursverðlaun: Gunnar Þórarinsson (fæddur árið 1949) Formaður Golfklúbbs Suðurnesja á árunum 2003–2008. Gunnar tók við formennsku árið 2003 en þá var fjárhagstaða klúbbsins afar slæm. Í formannstíð Gunnars tókst Golfklúbbnum að grynnka verulega á skuldabagga félagsins. Sigurður Garðarsson (fæddur árið 1961) Formaður Golfklúbbs Suðurnesja á árunum 2009–2013. Sigurður tók við formennsku árið 2009, skömmu eftir bankahrunið fræga. Erfiðir tímar biðu klúbbsins, en með þrautsegju og útsjónarsemi Sigurðar og meðstjórnenda hans Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 10:00
Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Magnús hefur leik í Louisiana Classics

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“, golflið Louisiana Lafayette, spila í 29. árlega móti Louisiana Classic. Mótið fer fram í Oakborne Country Club í Lafayette, Louisiana. Mótið stendur dagana 10.-11. mars 2014 og þátttakendur eru 72 frá 12 háskólum. Haraldur Franklín fer út af 1. teig kl. 8 að staðartíma (kl. 13:00 að okkar tíma hér heima á Íslandi). Til þess að fylgjast með gengi Haraldar Franklíns SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 09:45
Hvað var í sigurpoka Patrick Reed á WGC Cadillac Championship?

Patrick Reed sigraði á WGC Cadillac Championship í gær, 9. mars 2014. Eftirfarandi var í sigurpokanum hjá honum: Dræver: Callaway Big Bertha Alpha (Fujikura Fuel Tour Spec 85x skaft), 9° (Sjá nýlega kynningu Golf 1 á þeim dræver með því að SMELLA HÉR: 3-tré: Callaway Big Bertha (Mitsubishi Rayon Ahina 80x skaft), 16° Járn (3-PW): Callaway X Forged (3-4; True Temper Dynamic Gold X100 sköft); Callaway RAZR X Muscleback (5-PW; True Temper Dynamic Gold X100 sköft Fleygjárn: Callaway Mack Daddy 2 (50°, 56° og 60°; True Temper Dynamic Gold X100 sköft) Pútter: Odyssey Metal-X Milled #6 Bolti: Callaway SR-3
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 09:30
Reed góður með sig á blaðamannafundi e. sigur á WGC Cadillac Championship

Mörgum þótti Patrick Reed heldur góður með sig á blaðamannafundi eftir sigur sinn á WGC Cadillac Championship. A.m.k. var hógværðinni ekki fyrir að fara hjá honum. Viðtalið byrjar vel Reed þakkar „liði sínu“ eiginkonu (sem er oft kaddy hjá honum), Callaway og styrktaraðilum en er fljótt kominn í þann gírinn að hann hafi nú staðið sig vel á móti köppum á borð við Tiger, Jason Dufner og Hunter Mahan. Næsti fréttamaðurinn segir líka að sér virðist Reed hafa mikið sjálfstraust; hvaðan það komi? Reed segist hafa mikið sjálfstraust í leik sínum, það stafi af mikilli vinnu hans. Síðan segir hann: „Mér finnst ég vera sá leikmaður sem leggur harðast að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 09:00
Hver er kylfingurinn: Chesson Hadley?

Chesson Tyler Hadley vann í gær sinn fyrsta sigur á PGA Tour, þegar hann sigraði á Puerto Rico Open. Chesson Hadley fæddist 5. júlí 1987 í Raleigh, Norður-Karólínu og er því 26 ára. Hadley gerðist atvinnumaður í golfi árið 2010 en það ár kvæntist hann líka eiginkonu sinni, Amöndu en saman eiga þau soninn Hughes. Hadley spilaði golf með golfliði Georgia Tech þar sem hann var þrívegis All-American og vann síðan 2 mót árið 2012, þ.á.m. Atlantic Coast Conference championship. Hadley var í Palmer Cup liðinu árið 2008 Palmer Cup team. Fyrst eftir að Hadley gerðist atvinnumaður 2010 spilaði hann á Web.com Tour árið 2013 og vann fyrsta mótið sitt á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2014 | 05:45
Dýr á golfvöllum: Iguana eðla réðst á bolta Andrew Loupe á Puerto Rico Open – Myndskeið

Græn iguana eðla réðst á golfbolta bandaríska kylfingsins Andrew Loupe á Puerto Rico Open. Sjá atvikið með því að SMELLA HÉR: Atvikið hafði lítil áhrif á Loupe sem lauk lokahring sínum á 69 höggum og varð í 12. sæti í mótinu á samtals 14 undir pari, 274 höggum (70 70 65 69). Golf 1 hefir þegar kynnt Iguana eðlur lítillega, sem sjást af og til á golfvöllum í Suður-Flórída og Suður-Ameríku – sjá með því að SMELLA HÉR: Þess mætti geta að þessar eðlur eru oft haldnar sem gæludýr, vegna þess m.a. hversu litskrúðugar þær eru, en allt viðhald á þeim þ.e. það að skapa þeim lífsskilyrði sem þær eru vanar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 23:25
WGC Cadillac: Patrick Reed sigraði!

Það var Patrick Reed, sem stóð uppi sem sigurvegari á WGC Cadillac Championship. Reed lék á samtals 4 undir pari, 284 högg (68 75 69 72). Þetta er 3. sigur Reed á PGA Tour og í raun 2. sigurinn á skömmum tíma. Reed vann fyrsta sigur sinn á Wyndham Championship 2013 og síðan á Humana Challenge 19. janúar s.l. Í 2. sæti urðu þeir Bubba Watson og Jamie Donaldson aðeins 1 höggi á eftir Reed. Fjórða sætinu deildu þeir Dustin Johnson og Richard Sterne á samtals sléttu pari, hvor. Tiger Woods hrundi niður skortöfluna varð í 25. sæti, sem hann deildi ásamt Rory McIlroy, Adam Scott og 6 öðrum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2014 | 22:30
PGA Tour: Hadley sigraði á Puerto Rico Open

Það var nýliðinn á PGA Tour Chesson Hadley, sem sigraði á Puerto Rico Open. Hadley lék samtals á 21 undir pari, 267 höggum (68 65 67 67). Í 2. sæti varð ástralski kylfingurinn Danny Lee, tveimur höggum á eftir þ.e. á samtals 19 undir pari, 269 höggum (67 68 66 68) og Ben Martin varð síðan í 3. sæti enn tveimur höggum á eftir. Þrír kylfingar deildu síðan 4. sæti á samtals 16 undir pari: David Toms, Wes Roach og Richard H. Lee. Til þess að sjá lokastöðuna á Puerto Rico Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

